Dec 19, 2025 | Fréttir
Með innleiðingu á nýju flokkunarkerfi úrgangs á höfuðborgarsvæðinu haustið 2023 hafa fjölmörg húsfélög þurft að grípa til aðgerða og endurbóta á fyrirkomulagi sorpmála. Eignaumsjón aðstoðar húsfélög, bæði sem eru í þjónustu hjá félaginu sem önnur, við að leysa fyrirkomulag sorpgeymslna og sorpgerða á skynsamlegan og hagkvæman hátt.
Breytingar á fyrirkomulagi sorpmála hjá húsfélaginu Sólheimum 27 í Reykjavík, sem verið hefur í húsfélagsþjónustu hjá Eignaumsjón í um áratug, er dæmi um ráðgjöf og aðstoð sem skilaði húsfélaginu um 10 milljóna króna sparnaði frá upphaflegum áformum.
Hótað sektum ef ekki yrðu gerðar úrbætur
Eftir tunnuskiptin haustið 2023 var staða sorpmála í ólestri hjá umræddu húsfélagi. Tunnum og kerjum hafi verið komið fyrir undir svölum á fyrstu hæð með tilheyrandi brunahættu og hótaði byggingafulltrúinn í Reykjavík sektum, ef ekki yrði brugðist við. Þegar Eignaumsjón kom til aðstoðar í málinu var húsfélagið þegar komið með í hendurnar teikningu af stórri ruslageymslu á lóðinni og tilboð í verkið, sem hljóðaði upp á um 14 milljónir króna.
Sparaði húsfélaginu 10 milljónir króna
Eftir að hafa skoðað málið og m.a. borið saman fjölda sorpíláta sem húsfélagið var með og þörfina, með því að setja þessar tölur inn í svokallaðan „ruslareikni“ sem ráðgjafar Eignaumsjónar hafa þróað, var sett fram ný tillaga um hvernig best væri að leysa málið. Hún fólst í því að setja upp netta sorpgerðislausn frá BM Vallá, sem uppsett kostaði húsfélagið um fjórar milljónir króna, og var það samþykkt og gert. Kostnaðarlækkun húsfélagsins vegna verkefnisins er því rétt ríflega 70%.
„Það er okkar mat að vel hafi tekist til með þetta verkefni, það fór vissulega mikil vinna í þetta hjá okkur, sérstaklega að finna rétta staðsetningu fyrir skýlin og útkoman er góð kostnaðurinn við verkefnið umtalsvert lægri en útlit var fyrir í byrjun,“ segir Jóhanna Magnúsdóttir, formaður húsfélagsins Sólheimar 27.
Aug 14, 2023 | Fréttir
Dreifingu á nýjum tunnum fyrir sorphirðu lauk í síðustu viku í Vesturbæ og miðborg Reykjavíkur. Í framhaldinu hófst tunnudreifing í borgarhluta 4, Laugardal, sem er norðan Suðurlandsbrautar allt frá Snorrabraut í vestri að Elliðaám í austri. Búist er við að dreifing þar taki allt að tvær vikur og verði lokið um miðja næstu viku. Þá verður hafist handa við tunnuskipti í síðasta borgarhlutanum, Háaleiti-Bústöðum. Gert er ráð fyrir að dreifingunni þar ljúki í byrjun september. Þar með lýkur tunnuskiptum í Reykjavík vegna innleiðingar nýs og samræmds flokkunarkerfis úrgangs, um mánuði á undan áætlun en dreifingin hófst á Kjalarnesi í byrjun maí.
Skylt varð að flokka heimilisúrgang í fjóra flokka við húsvegg hjá heimilum með lögum um hringrásarhagkerfi, sem tóku gildi í janúar 2023. Þessir flokkar eru matarleifar/lífrænn úrgangur, pappír og pappi, plastumbúðir og blandaður úrgangur.
Tunnum er úthlutað samkvæmt gerð húsnæðis og fjölda íbúa og meginmarkmiðið er að fjölga tunnum hjá íbúum eins lítið og hægt er. Öll heimili fá jafnframt körfu og bréfpoka undir matarleifar sem dreift er samhliða tunnuskiptunum.
Nýjum sorphirðubílum fjölgað í borginn
Áætlun sorphirðu með blandaðan úrgang og matarleifar er á áætlun í höfuðborginni en umtalsverðar tafir hafa verið í hirðu á pappír og plasti undanfarnar vikur. Vonir standa til að nú fari að rætast úr í þeim efnum.
Þrír nýir sorphirðubílar voru teknir í gangið í dag, mánudaginn 14. ágúst. Til að byrja með verður lögð áhersla á að vinna upp þær tafir sem orðið hafa í austurhluta borgarinnar, í Árbæ, Grafarholti og Grafarvogi. Sjá nánar hér.
Jun 28, 2023 | Fréttir
Breytingar hafa verið gerðar á dreifingaráætlun Reykjavíkur vegna innleiðingar nýs og samræmds flokkunarkerfis úrgangs. Þegar dreifingu í Breiðholti lýkur í byrjun næsta mánaðar verður í framhaldinu farið í dreifingu í Vesturbænum og miðborginni. Standa vonir til að dreifingu þar verði lokið fljótlega eftir verslunarmannahelgi.
Breytingarnar eru gerðar til að nýta sem best tímann til dreifingar í áðurnefndum hverfum þegar minnst umferð er í borginni vegna sumarfría og áður en kennsla í skólum hefst. Af þessum sökum færist tunnudreifing í Hlíðum og Laugardal fram í ágúst og dreifingunni lýkur í Háaleiti- Bústöðum í septembermánuði.
Að jafnaði er tunnum dreift til um 650 heimila á dag og er þegar búið að dreifa nýjum tunnum, körfum og pokum til rúmlega 14.500 heimila í borginni. Það telst vera rúmlega fjórðungur þeirra 55.000 heimila í borginni sem Sorphirða Reykjavíkur þjónustar.
Sjá nánar hér.
May 19, 2023 | Fréttir
Innleiðing á samræmdu flokkunarkerfi sorphirðu hófst í Reykjavík í þessum mánuði . Þegar er búið að afhenda nýjar tunnur á Kjalarnesi, tunnuskiptum í Grafarholti og Grafarvogi á að ljúka fyrir mánaðamót og fyrir septemberlok á tunnuskiptum að vera lokið í höfuðborginni.
Skylt varð að flokka heimilisúrgang í fjóra flokka við heimili með lögum um hringrásarhagkerfi, sem tóku gildi í janúar 2023. Þetta er stórt umhverfismál en með réttri flokkun er hægt að minnka sóun og endurnýta verðmæti í stað þess að þeim sé hent. Flokkarnir fjórir eru;pappír og pappi, plastumbúðir, matarleifar og blandaður úrgangur.
Hvenær verður tunnunum skipt út?
- Kjalarnes, Grafarvogur, Grafarholt og Úlfarsárdalur fá nýjar tunnur í maí
- Árbær og Breiðholt fá nýjar tunnur í júní
- Háaleiti og Bústaðir fá nýjar tunnur í júní og júlí
- Laugardalur fær nýjar tunnur í júlí
- Miðborg og Hlíðar fá nýjar tunnur í ágúst
- Vesturbær fær nýjar tunnur í september
Útfærslur í fjölbýlum
Meginmarkmiðið er að fjölga tunnum eins lítið og hægt er. Í stærri fjölbýlum verða ekki notaðar tvískiptar tunnur heldur eingöngu heilar tunnur. Gráum tunnum fyrir blandaðan úrgang verður fækkað og þeim skipt út fyrir tunnur undir endurvinnsluefni. Í litlum fjölbýlum með þremur eða færri íbúum verða notaðar tvískiptar tunnur fyrir blandaðan úrgang og matarleifar og bláar og grænar tunnur fyrir plast og pappír. Þegar útskiptingu er lokið eiga að vera tunnur undir fjóra flokka við öll hús.
Húsfélög eiga ekki að þurfa að grípa til neinna aðgerða hvað varðar tunnuskipti en ef reisa þarf sorpgerði eða -skýli á lóð fjöleignarhúsa þarf að sækja um byggingarleyfi hjá byggingarfulltrúa.
Hverju verður dreift til heimila?
Körfur, pokar til söfnunar á matarleifum og útskýringarbæklingar á nýju kerfi verða í anddyri fjölbýlishúsa ásamt veggspjaldi sem útskýrir að hver íbúi eigi að taka körfur og poka.
Tunnur tæmdar oftar
Samhliða þessum breytingum verða tunnurnar tæmdar oftar. Tunnur undir pappír og plast verða tæmdar á tveggja vikna fresti eftir breytingarnar en hirðutíðnin hefur verið þrjár vikur.
Allar frekari upplýsingar um nýtt flokkunarkerfi og söfnun á matarleifum er að finna á vef Sorpu; www.flokkum.is. Frekari upplýsingar um dreifingu á tunnum má nálgast hjá þjónustuveri borgarinnar í síma 411 1111, á upplysingar@reykjavik.is og á www.reykjavik.is/flokkum.
Apr 27, 2023 | Fréttir
Áfangi næst í innleiðingu á nýju og samræmdu sorphirðukerfi í Reykjavík í næstu viku þegar tunnuskipti byrja á Kjalarnesi. Samtímis fá íbúar þar afhentar grænar körfur og pappírspoka fyrir lífrænan úrgang.
Samkvæmt lögum um hringrásarhagkerfi, sem tóku gildi í janúar 2023, er skylt að flokka heimilisúrgang í fjóra flokka við heimili; pappír og pappa, plastumbúðir, matarleifar og blandaðan úrgang.
Umhverfismál
Íbúar þurfa ekki að grípa til neinna aðgerða hvað varðar tunnuskipti, nema flokka en með réttri flokkun er hægt að minnka sóun og endurnýta verðmæti í stað þess að þeim sé hent.
Byrjað á Kjalarnesi og endað í Vesturbænum
Byrjað verður að dreifa nýjum tunnum fyrir flokkana fjóra til íbúa á Kjalarnesi í næstu viku, í byrjun maí, og á tunnuskiptunum í höfuðborginni að ljúka fyrir septemberlok. Samhliða afhendingu á nýjum tunnum fá íbúar afhenta þar til gerða grind og bréfpokum til að hafa innanhúss undir matarleifar.
- Íbúar í Grafarvogi, Grafarholti og Úlfarsárdal fá nýjar tunnur í maí.
- Íbúar í Árbæ og Breiðholt fá nýjar tunnur í júní.
- Íbúar í Háaleiti og Bústöðum fá nýjar tunnur í júní og júlí.
- Íbúar í Laugardal fá nýjar tunnur í júlí.
- Íbúar í Miðborg og Hlíðum fá nýjar tunnur í ágúst.
- Íbúar í Vesturbæ fá nýjar tunnur í september.
Meginmarkmiðið er að fjölga tunnum hjá íbúum eins lítið og hægt er. Samhliða þessum breytingum verða tunnurnar tæmdar oftar. Pappírs- og plasttunnur verða t.d. tæmdar á tveggja vikna fresti en hirðutíðnin hefur verið þrjár vikur. Nánar á https://reykjavik.is/flokkum