Atvinnuhúsnæði – sérsniðnar lausnir

Eignaumsjón býður upp á heildarlausnir í rekstri atvinnuhúsnæðis. Með hlutlausum og faglegum vinnubrögðum gerum við rekstur atvinnuhúsnæðisins markvissari og ódýrari, auðveldum störf stjórnar, samskipti eigenda og/eða leigjenda, aukum samheldni, leysum ágreiningsmál og spörum tíma.
Öll helstu gögn í hús- og rekstrarfélögum í þjónustu Eignaumsjónar eru aðgengileg í Húsbókinni, mínum síðum eigenda á eignaumsjon.is.

Þjónustuleið A1 – fjármál og fundir

Umsjón með bókhaldi og fjármálum

» Innheimta húsgjalda og VSK endurgreiðslur
» Greiðsla reikninga og annarra útgjalda sem stjórn hefur samþykkt
» Færsla bókhalds, afstemmingar, milliuppgjör og gerð ársreiknings
» Ávöxtun framkvæmdasjóðs og annarra peningalegra eigna rekstrarfélagsins

Aðalfundir

» Undirbúningur, fundarboð, fundarstjórn, frágangur og fundargerðir

Húsfélagsyfirlýsingar samkvæmt verðskrá
Samskipti við stjórn og félagsmenn
Samskipti við opinbera aðila

Þjónustuleið A2 – fjármál, fundir og framkvæmdastjórn

Fjármál og fundir

» Sjá þjónustuleið A1

Framkvæmdastjórn – sérsniðnar lausnir fyrir hvert rekstrarfélag

» Framkvæmdastjórn rekstrarfélagsins samkvæmt nánari skilgreiningu
» Daglegur rekstur samkvæmt skilgreiningu í samningi

Húsbókin ykkar

Húsbókin er mínar síður eigenda. Þar geta stjórnir og eigendur skoðað rauntímaupplýsingar um sitt félag og sína eign, sent inn rafrænar þjónustubeiðnir og nýtt afslætti sem þar eru í boði.

Umboð eigenda

Eigendur fasteigna, sem hafa ekki tök á að mæta á hús- eða aðalfundi í sínu húsfélagi, geta nálgast umboð hér til að fylla út fyrir fulltrúa sem á að mæta fyrir þeirra hönd.

Spurt og svarað

Hér eru svör við algengum spurningum um þjónustu okkar. Svo má alltaf senda póst á þjónustuverið okkar, spjalla á netinu eða hringja í síma 585-4800.