• Facebook
  • Instagram
  • Húsbókin
  • Húsbókin
Eignaumsjon
  • Húsfélög
  • Atvinnuhúsnæði
  • Leigufélög
  • Húsumsjón
  • Hitavaktin
  • AÐGANGSSTÝRINGAR
  • Íbúðaumsjón
  • Rafbílahleðsla
  • Um okkur
    • Mannauður
    • Hafa samband
    • Húsbók Eignaumsjónar
    • Umboð fyrir Húsbókina
    • Umhverfisáherslur
    • Persónuvernd og skilmálar
    • Spurningar og svör
    • Fundarsalir til leigu
  • Fréttir
    • Greinar
    • Myndbönd
Select Page

Nýtt starfsfólk hjá Eignaumsjón

Sep 26, 2024 | Fréttir

Nýtt starfsfólk Eignaumsjónar, frá vinstri: Valgerður Ingólfsdóttir, Hulda Sjöfn Kristinsdóttir og Sigurður Lárus Fossberg.

Hulda Sjöfn Kristinsdóttir, Sigurður Lárus Fossberg og Valgerður Ingólfsdóttir komu til starfa hjá  Eignaumsjónar fyrr á þessu ári. Hulda Sjöfn er innheimtufulltrúi á fjármálasviði, Sigurður sinnir húsumsjón, ráðgjöf um brunavarnir og fleiri tilfallandi verkefnum á þjónustusviði og Valgerður er bókhaldsfulltrúi á fjármálasviði Eignaumsjónar.

Valgerður er með B.S. próf í viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri og starfaði sem bókari hjá Truenorth, áður en hún kom til starfa hjá Eignaumsjón. Þar áður vann hún m.a. á fjármálasviði 66°Norður við bókhald, uppgjör og afstemmingar. Valgerður hefur einnig unnið við sölustörf, sem flugliði hjá Icelandair og leiðbeinandi við leikskóla.

Áður en Sigurður hóf störf hjá Eignaumsjón var hann slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður í 35 ár; fyrst hjá Slökkviliði Akureyrar og síðast hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Samhliða slökkviliðsstarfinu hefur Sigurður sinnt ýmiskonar iðnaðarvinnu, akstri og vélavinnu. Hann er með sveinsbréf í málaraiðn og slökkviliðs- og sjúkraflutningsmenntun frá Brunamálaskóla Íslands og Sjúkraflutningaskóla Íslands ásamt viðbótarmenntun í stjórnun og sjúkraflutningum frá  Svíþjóð og Bandaríkjunum.  Sigurður sat í stjórn Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og í skóla- og fagráði Brunamálaskólans, þar sem hann hefur einnig sinnt kennslu.

Hulda var gjaldkeri hjá Bílaumboðinu Heklu í sex ár, áður en hún kom til starfa hjá Eignaumsjón. Hún hefur einnig unnið sem þjónustu- og innheimtufulltrúi hjá Öryggismiðstöð Íslands og þar áður Tæknivali. Hulda er með stúdentspróf frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. Hún lærði einnig til sjúkraliða við FB og starfaði við það í rúman áratug á Sjúkrahúsi Reykjavíkur/Landspítalanum Háskólasjúkrahúsi. Hún hefur einnig m.a. lagt stund á tölvunám við Iðnskólann í Reykjavík og tækniteiknun, sem og verkefnastjórn/leiðtogaþjálfun hjá Endurmenntun HÍ.

Um Eignaumsjón

Eignaumsjón býr að 24 ára þekkingu og reynslu í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög atvinnuhúsnæðis. Félagið þjónar í dag  1.200 hús- og rekstrarfélögum með hátt í 25.000 íbúðum/eignum. Áhersla er lögð á hlutlausa nálgun, öryggi, gæðamál og skýra verkferla til að gera rekstur fasteigna markvissari og ódýrari, auka upplýsingaflæði til eigenda og auðvelda störf stjórna.

1
0
0
0
0
0
0
0

Recent Posts

  • Samkomulag við Brák íbúðafélag um rekstrar- og leiguumsjón
  • Nýir starfsmenn á tæknisviði Eignaumsjónar
  • Vorfundur 2025 um þjónustuna og samstarfið
  • Eignaumsjón í hópi fyrirmyndafyrirtækja 2025 hjá VR
  • Eignaumsjón um allt land
Eignaumsjón | Suðurlandsbraut 30 | Sími 585 4800