Hitavaktin – reglulegt eftirlit með heitavatnsnotkun

Eignaumsjón býður húsfélögum upp á mánaðarlegt eftirlit með notkun á heitu vatni til að stuðla að skilvirkri orkunotkun og lægri rekstrarkostnaði.

Þjónustan felur í sér faglega skoðun í tæknirýmum húsa á hitagrindum og snjóbræðslukerfum með það að markmiði að tryggja að þau starfi á fullum afköstum og án vandamála.

Með eftirliti Eignaumsjónar getur þú:

  • » Sparað heitt vatn og dregið úr sóun
  • » Minnkað orkunotkun og lækkað rekstrarkostnað húsfélagsins
  • » Tryggt að hitakerfi hússins starfi á hámarksgetu
  • » Tryggt álestur á heitavatns-og rafmagnsmælum þar sem við á

Faglegt eftirlit

Sjálfbær hitastýring og skilvirkni í sameign hússins er hagur allra. Með reglubundnu eftirliti getur þú sparað orku og minnkað útgjöld.

Taktu fyrsta skrefið í dag

Láttu okkur fylgjast með heitavatnsnotkun og lágmarkaðu sóun. Hafðu samband núna og nýttu þér sérhæfða þjónustu okkar!