Feb 20, 2025 | Fréttir
Mælt er með að klippa tré seinni hluta vetrar þegar þau eru í vetrardvala eða yfir hásumar þegar þau eru í fullum vexti. Stjórnir húsfélaga geta leitað til þjónustuvers Eignaumsjónar ef þörf er á aðstoð við að afla tilboða í trjáklippingar.
Það hefur færst í vöxt á undanförum árum, sérstaklega hjá stærri húsfélögum, að bjóða út umsjón með lóð húsfélagsins, s.s. runna- og trjáklippingum, hreinsun beða, áburðargjöf og garðslætti. Reynslan sýnir að mörg húsfélög eru þegar farin að huga framkvæmdum á þessum tíma ársins og því ráðleggjum við félögum, sem vilja tryggja sér slíka þjónustu fá tilboð í slíka vinnu, að bregðast hratt við því.
Ekki klippa tré á haustin
Klipping og snyrting trjáa er vandasöm iðja og mælum við með því að láta fagfólk annast verkið, því auðvelt er að vinna meira ógagn en gagn með því að fara óvarlega með verkfærin. Þá er mikilvægt að klippa á réttum tíma, sem er seinni hluta vetrar, frá miðjum desember og út marsmánuð þegar trén eru í vetrardvala, eða þá yfir hásumar frá miðjum júní til ágústloka þegar tré eru í fullum vexti. Eindregið er varað við því að klippa tré á haustin en þá er hætt við að fúasveppir, sem geta valdið óbætanlegum skemmdum, komist í vefi trjánna.
Við aðstoðum við öflun tilboða
Öflun tilboða í lóðarvinnu er innifalin í þjónustuleið 3 hjá Eignaumsjón. Húsfélög í þjónustuleiðum 1 og 2 geta einnig nýtt sér aðstoð þjónustuvers Eignaumsjónar við öflun slíkra tilboða gegn vægu gjaldi. Mikilvægt er að þjónustuverið fái greinargóða lýsingu frá stjórnum húsfélaga um þau verk sem vinna skal. Þannig fást samanburðarhæf tilboð og minni líkur eru á að ágreiningur rísi við verklok.
Hægt er að hafa samband við þjónustuverið í síma 585-4800 og á netspjalli, eða með því að senda tölvupóst á thjonusta@eignaumsjon.is.
Feb 12, 2025 | Fréttir
Töluvert er um að húsfélög leiti til Eignaumsjónar um aðstoð við umsjón og rekstur öryggiskerfa, bæði í fjölbýlishúsum og bílageymslum, en mikil aukning hefur verið á undanförnum árum í uppsetningu slíkra kerfa.
„Við höfum undanfarið ár boðið upp á sérþjónustu sem við köllum Eignavakt,“ segir Bjarni G. Hjarðar, sérfræðingur á þróunarsviði Eignaumsjónar. Hann er menntaður byggingar- og umhverfisverkfræðingur og ber hitann og þungann af þessari vinnu.
Öryggisúttekt og verðkönnun
„Fyrsta skrefið í öryggisúttekt okkar er að skoða viðkomandi fasteign í samráði við stjórn húsfélags og útbúa skýrslu með tillögu að viðkomandi kerfi, megi það vera aðgangsstýring, öryggismyndavélar eða bílnúmeragreining“, segir Bjarni.
Með skýrslunni fylgir tillaga að verk- og kostnaðaráætlun sem kynnt er stjórn húsfélagsins samhliða skýrslunni, ásamt áhættugreiningu viðkomandi fasteignar og tillögum til úrbóta.
„Næsta skref er að gera verðkönnun meðal þjónustuaðila í viðkomandi kerfi, í samræmi við þá tillögu sem stjórn samþykkir. Þar leggjum við allt kapp á að tilboðslýsingin sé þannig úr garði gerð að engin vandkvæði séu á að bera tilboðin saman,“ segir Bjarni og áréttar að minnisblaði með yfirliti og ráðleggingum er skilað til stjórnar húsfélagsins fyrir ákvörðunartöku.
Uppsetning og eftirlit
Eignaumsjón getur einnig séð um eftirlit með uppsetningu öryggiskerfa fyrir hönd húsfélaga, m.a. til að tryggja að uppsetning kerfis sé í samræmi við samþykkt tilboð með tilliti til efnis, vinnu og virkni kerfisins. Fylgst er með framvindu verks og skilamat, þ.m.t. prófanir á virkni kerfa, er sent stjórn húsfélags sem forsenda samþykktar á reikningum. Reynslan sýnir að við flóknari verk er skynsamlegt fyrir stjórnir húsfélaga að kaupa óháðan aðila til verkeftirlits.
Rekstur og persónuvernd
„Við tökum einnig að okkur rekstur, umsjón og umsýslu öryggiskerfa í umboði hússtjórna í fjölbýlishúsum, sem felur í sér eftirlit með stöðu og virkni kerfa í rauntíma,“ segir Bjarni.
Innheimt er fyrir þjónustuna með húsgjöldunum, sem lækkar kostnað og tryggir að sá greiði sem notar! Örugg meðhöndlun og varðveisla gagna er líka tryggð, sem og rétt skráning rétthafa.
„Þetta fyrirkomulag er að reynast vel og bæði íbúar og notendur hafa aðgang að þjónustuveri okkar á skrifstofutíma, ef eitthvað kemur upp á,“ segir Bjarni G. Hjarðar, sérfræðingur á þróunarsviði Eignaumsjónar, að lokum.
Feb 6, 2025 | Fréttir, Greinar
Mikil eftirspurn er eftir Húsumsjónarþjónustu Eignaumsjónar. Allir sem þekkja rekstur húsfélaga vita að þörf er á reglubundnu eftirliti með umhirðu og ástandi sameignar, innanhúss sem utan. Húsumsjón kemur í stað hefðbundinnar húsvörslu og er hagkvæm og skynsamleg lausn fyrir bæði húsfélög og rekstrarfélög.
Í stað húsvarðar í fullu starfi útvegar Eignaumsjón þjónustu fagmanns í hlutastarfi, með tilheyrandi sparnaði. Hann fer reglulega yfir ástand húseignarinnar, gerir nauðsynlegar úrbætur og fylgist með orkunotkun sem og öðrum kerfum og búnaði eignarinnar, sem þarf að vera í góðu lagi.
Helstu verk sem Húsumsjón sinnir
- Eftirlit með kerfum og búnaði: Reglubundið eftirlit með ræstingu, sorphirðu, snjóbræðslukerfum, öryggis- og aðgangskerfum, loftræstingu og álestri sameiginlegra mæla.
- Ábendingar og tillögur: Greining á þörf fyrir aðgerðir eins og sótthreinsun sorpgeymslu, teppahreinsun í sameign, málun sameignar eða bílastæða, þrif á bílageymslu og gluggum og athugun á vatnshita.
- Umsjón og eftirlit með sameign: Eftirlit með umgengni á lóð og í sameign, ástandi sorpgeymslu og notkun bílastæða.
- Brunavarnir: Eftirlit með slökkvitækjum, lýsingu, reykskynjurum og brunastöðum í sameign.
- Viðhald og umhirða: Athugun á lýsingu, neyðarlýsingu, húsbúnaði og umgengni um lóð og sameign.
Með því að sinna þessum verkum reglulega hjálpar Húsumsjón til við að fyrirbyggja stærri vandamál sem dregur úr heildarviðhaldskostnaði fasteignarinnar. Þetta stuðlar líka að betra ástandi eignarinnar og eykur öryggi og vellíðan fyrir alla íbúa.
Nánari upplýsingar um Húsumsjón er að finna hér.
Jan 31, 2025 | Fréttir
Aldís Dögg Ólafsdóttir, Anna Íris Sigurðardóttir, Ebba Björg Húnfjörð og Linda Lovísa Sigurbjörnsdóttir komu til liðs við fjármálasvið Eignaumsjónar síðastliðið haust til að styrkja starfsemina og mæta sívaxandi umsvifum félagsins.
Ebba Björg og Linda Lovísa vinna í bókhaldsteymi félagsins, Anna Íris er innheimtufulltrúi og Aldís er í gjaldkerateyminu.
Aldís er með BSc próf í fjármálaverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík og stúdentspróf af raungreinasviði frá Menntaskólanum á Akureyri. Áður en Aldís kom til starfa hjá Eignaumsjón vann hún sem mannauðs- og launafulltrúi hjá Sjúkrahúsinu á Akureyri. Þar áður vann hún m.a. við öryggisleit hjá Isavia í sumarvinnu og afleysingum.
Áður en Anna kom til starfa hjá Eignaumsjón vann hún við bókhald og innheimtu hjá Innnes. Þar áður starfaði hún sem innheimtufulltrúi og gjaldkeri hjá Gjaldheimtunni/Momentum og hjá Landsbanka Íslands sem gjaldkeri og einnig í lögfræðideild. Anna er verslunarpróf frá Fjölbrautaskólanum í Ármúla og einnig grafíska miðlun.
Ebba Björg kom til Eignaumsjónar frá Rapyd Europe þar sem hún sá um færslu bókhalds og fleira. Áður vann hún m.a. hjá Kviku banka við bakvinnslu og erlend viðskipti og þar áður hjá PwC, Sparisjóðabanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands. Ebba er með verslunarpróf frá Fjölbrautaskólanum í Ármúla og er með nám sem viðurkenndur bókari.
Linda Lovísa var umsjónarmaður verslunar hjá Apóteki Vesturlands áður en hún kom til starfa hjá Eignaumsjón. Þar áður vann hún hjá JGR heildverslun, Eðalfiski og sem verslunarstjóri sérvöru hjá Hagkaup í Borgarnesi. Hún er með skrifstofu og bókhaldsmenntun frá Nýja tölvu- og viðskiptaskólanum og hefur sótt ýmis stafstengd endurmenntunarnámskeið.
Um Eignaumsjón
Eignaumsjón býr að 24 ára þekkingu og reynslu í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög atvinnuhúsnæðis. Félagið þjónar í dag á annað þúsund hús- og rekstrarfélögum með um 25.000 íbúðum/eignum. Áhersla er lögð á hlutlausa nálgun, öryggi, gæðamál og skýra verkferla til að gera rekstur fasteigna markvissari og ódýrari, auka upplýsingaflæði til eigenda og auðvelda störf stjórna.
Jan 17, 2025 | Fréttir, Greinar
Aðalfundir hjá Eignaumsjón fara vel af stað og frá 8. janúar hefur félagið þegar haldið 55 af þeim 923 aðalfundum sem eru þegar komnir á dagskrá fram í miðjan maí. Gert er ráð fyrir að á tímabilinu bætist við húsfundir og stofnfundir, þannig að heildarfjöldi funda verði ríflega þúsund.
Fjölgun funda má rekja til mikillar fjölgunar viðskiptavina hjá Eignaumsjón á liðnu ári, bæði vegna kaupa á Fjöleignum sem og vegna almennrar fjölgunar.
Ný og glæsileg fundaraðstaða
Til að mæta þessari aukningu hefur Eignaumsjón tekið í notkun nýja fundaraðstöðu á Suðurlandsbraut 30. Nýju fundarsalirnir eru staðsettir í bakhúsinu á annarri hæð þar sem eru fimm vandaðir fundarsalar með aðstöðu fyrir allt að 120 manna fundi. Reiknað er með að 80% af fundum á yfirstandandi tímabili verði haldnir í þessari nýju fundaraðstöðu.
Aðkoma að fundarsölunum er frá efra bílastæðinu sunnan við húsið og inngangur á suðurhlið bakhússins (sjá mynd).
Aðalfundir líka á laugardögum
Auk hefðbundinna fundardaga frá mánudögum til fimmtudaga, bætast laugardagar við sem aðalfundadagar seinnipartinn í janúar. Jafnframt hafa fundartímar breyst og eru fundir haldnir kl. 17 og 19 á virkum dögum. Á laugardögum eru nú líka þrír fundartímar í boði, kl. 10, 12 og 14. Á virkum dögum er því hægt að halda allt að 10 fundi á hverju kvöldi og allt að 15 fundi á laugardögum. Til að mæta fjölgun funda hefur Eignaumsjón einnig fjölgað fundarstjórum og sjá nú 33 fundarstjórar um framkvæmd funda hjá félaginu.