Eignaumsjón er Framúrskarandi fyrirtæki 2026

Eignaumsjón er Framúrskarandi fyrirtæki 2026

Þriðja árið í röð er Eignaumsjón í hópi íslenskra fyrirtækja sem teljast framúrskarandi samkvæmt lista Creditinfo, sem birtur var í dag. Þessi fyrirtæki eiga það sameiginlegt að byggja rekstur sinn á sterkum stoðum og eru í hópi þeirra fyrirtækja sem er best treystandi í viðskiptum á Íslandi að mati Creditinfo.

„Það er ánægjulegt að hljóta þessa viðurkenningu þriðja árið í röð, þar sem markviss vinna okkar frábæra starfsfólks með skilvirkni og þjónustuupplifun að leiðarljósi heldur áfram að skila árangri,“ segir Gunnar Egill Sigurðsson, framkvæmdastjóri Eignaumsjónar.

Aukin skilvirkni í krefjandi rekstrarumhverfi

Meðal þeirra skilyrða sem fyrirmyndarfyrirtæki þurfa að uppfylla er að hafa náð rekstrarhagnaði yfir þriggja ára tímabil, rekstrarhagnaður (EBIT) og ársniðurstaða hafi verið jákvæð reikningsárin 2023-2025, ársreikningi hafi verið skilað á tilskyldum tíma lögum samkvæmt og að eiginfjárhlutfall sé að minnsta kosti 20%.

„Rekstrarumhverfið hefur verið krefjandi síðustu árin en við höfum verið að sjá skilvirkni aukast í rekstrinum með sameiningum síðustu ára, þrátt fyrir að verðskrá okkar hafi hækkað minna en verðlagsþróun,“ segir Gunnar og áréttar að félagið sé vel í stakk búið til að takast á við framtíðaráskoranir.

Tilbúin í næstu ævintýri!

„Starfsfólk okkar er hæfileikaríkt og með mikla reynslu, ásamt því að tæknilegir innviðir okkar eru sterkir. Með stöðugum umbreytingum og áframhaldandi þróun tæknilausna teljum við okkur geta vaxið enn frekar – og ég veit að starfsfólk er tilbúið í næstu ævintýri!“

Listinn yfir Framúrskarandi fyrirtæki 2026 var gerður opinber á sérstökum vef á visir.is í dag og viðurkenningarnar voru afhentar við athöfn síðdegis í Hörpu.

Þórhallur nýr teymisstjóri Húsumsjónar Eignaumsjónar

Þórhallur nýr teymisstjóri Húsumsjónar Eignaumsjónar

Þórhallur Sveinsson hefur tekið við hlutverki teymisstjóra Húsumsjónar, sem er sérþjónusta hjá Eignaumsjón fyrir hús- og atvinnufélög. Þjónustan tryggir reglubundna umsjón með sameign fasteignar, stuðlar að lægri viðhaldskostnaði og sér til þess að ásýnd viðkomandi fasteignar verði eins og best er á kosið. 

Þórhallur, sem er menntaður smiður, mun leiða daglegt starf Húsumsjónarteymisins, styðja við áframhaldandi þróun þjónustunnar og leggja sitt af mörkum til að viðhalda þeirri faglegu og persónulegu þjónustu sem áhersla er lögð á hjá Eignaumsjón. Hann hefur víðtæka reynslu af viðhalds- og rekstrarmálum fasteigna og þekkir vel þarfir húsfélaga og íbúa þeirra.

Spennandi verkefni

„Ég er spenntur að taka við þessu nýja hlutverki og hlakka til að vinna enn nánar með viðskiptavinum okkar, húsfélögum og öflugu teymi Húsumsjónar,” segir Þórhallur, sem starfaði um árabil á þjónustusviði Eignaumsjónar. Hann hvarf um tíma til annarra starfa en er nú genginn til liðs við Eignaumsjón á ný.

„Það er spennandi verkefni að halda  áfram að þróa þjónustuna okkar, styrkja samskiptin og finna enn betri leiðir til að mæta þörfum húsfélaga sem eru í þjónustu hjá okkur. Markmiðið okkar hjá Eignaumsjón er að veita framúrskarandi þjónustu og vera traustur samstarfsaðili í daglegum rekstri fasteigna. Ég hlakka til að taka þátt í þeirri vegferð á komandi misserum með viðskiptavinum okkar og samstarfsfólki.“

Sjá nánari upplýsingar um Húsumsjón Eignaumsjónar hér.

Uppbygging á Heklureitnum í Reykjavík

Uppbygging á Heklureitnum í Reykjavík

Uppbygging á Heklureitnum við Laugaveg í Reykjavík gengur vel og tvö fyrstu húsin þar eru þegar farin að setja svip sinn á umhverfið. Fyrstu íbúarnir fluttu inn í hornhúsið á Laugavegi 168 haustið 2025 og deildarskipt heildarhúsfélag tók til starfa þar í ársbyrjun 2026.

Framkvæmdir við Laugaveg 168, átta hæða byggingu á horni Nóatúns og Laugavegar, hófust árið 2023 og eru nú langt komnar. Í húsinu eru 82 íbúðir af öllum stærðum og gerðum og eitt stórt atvinnubil á jarðhæð fyrir verslun og þjónustu, ásamt bílakjallara.

Fjölbreyttar íbúðir og sameiginleg rými

Þegar er búið að selja yfir 80% íbúðanna á Laugavegi 168, en þær henta bæði einstaklingum og fjölskyldum. Gott útsýni er frá húsinu til norðurs en skjólsælt til suðurs þar sem húsið stallast niður í tvær hæðir við Brautarholt. Sameiginlegur inngarður og þakgarður eru í húsinu og einkaþakgarðar fylgja jafnframt sumum íbúðum á efri hæðum.

Markmiðið að móta  gott og farsælt samfélag

Húsfélagið Laugavegur 168 tók til starfa um síðustu áramót undir stjórn byggingaraðilans, sem er algeng nálgun hjá Eignaumsjón til að tryggja að starfsemin komist vel af stað áður en eigendur/ íbúar taka við rekstrinum.

„Við vorum í góðum samskiptum við byggingaraðilann um undirbúning samþykkta og útfærslu stofnunar húsfélagsins, með það að markmiði að móta bæði gott og farsælt samfélag þarna við Laugaveginn,“  segir Páll Þór Ármann, sem um árabil hefur annast stofnun og innleiðingu nýrra húsfélaga hjá Eignaumsjón.

Á aðalfundi húsfélagsins, sem haldinn var nýlega, tóku eigendur við stjórn húsfélagsins af byggingaraðilanum. Á þeim fundi var staðfest að Eignaumsjón annist áfram daglegan rekstur og umsýslu félagsins, skv. þjónustuleið Þ-2, sem heldur utan um fjármála-, bókhalds- og fundaþjónustu fyrir húsfélagið. Jafnframt var samþykkt að taka tilboði í Húsumsjón, sérþjónustu hjá Eignaumsjón sem felur í sér reglubundið eftirlit og umsjón með sameign húsfélagsins.

Framkvæmdir við Laugaveg 170

Bygging sjö hæða húss á Laugavegi 170 er einnig vel á veg komin. Þar verða 100 íbúðir, bílakjallari og fjögur atvinnubil. Íbúðirnar á Laugavegi 170 eru komnar í sölu og er þegar búið að selja hátt í helming þeirra.

Stofnun húsfélags fyrir Laugaveg 170 er í undirbúningi hjá Eignaumsjón með byggingaraðilanum, með sama hætti og gert var fyrir Laugaveg 168, þannig að starfsemi húsfélagsins geti farið sem þægilegast af stað fyrir bæði byggingaraðilann og eigendur.

Næstu áfangar á Heklureitnum

Samkvæmt gildandi deiliskipulagi er alls áætlað að byggja um 440 íbúðir í fimm húsum á Heklureitnum. Tímasetning næstu áfanga á svæðinu ræðst m.a. af því hvenær Bílaumboðið Hekla flytur starfsemi sína endanlega af reitnum. Framkvæmdafélagið Laugavegur ehf. annast uppbyggingu á Heklureitnum. Sjá nánar á https://heklureitur.is/

Tryggingaafsláttur  hjá Sjóvá fyrir húsfélög í Húsumsjón

Tryggingaafsláttur hjá Sjóvá fyrir húsfélög í Húsumsjón

Samningar hafa tekist við Sjóvá tryggingar um að húsfélög sem eru í Húsumsjón hjá Eignaumsjón njóti sérstakra afsláttarkjara af fasteignatryggingum hjá Sjóvá.

Húsumsjón er sérþjónusta fyrir hús- og atvinnufélög sem tryggir reglubundið eftirlit og  umsjón með sameign fasteignar, stuðlar að lægri viðhaldskostnaði og sér til þess að ásýnd viðkomandi fasteignar verði eins og best er á kosið.

Allt að 10% afsláttur af tryggingum

Samkvæmt samkomulaginu veitir Sjóvá allt að 10% afslátt af húseigendatryggingum fyrir viðskiptavini Eignaumsjónar sem eru í Húsumsjón og tryggja hjá félaginu, en endanleg afsláttarkjör ráðast þó af mati Sjóvá, þar sem horf er til aldurs fasteignar, tjónasögu og fleiri þátta.

„Við hjá Sjóvá leggjum mikla áherslu á forvarnir og lausnir sem stuðla að minni áhættu og betri vernd eigna. Húsumsjón Eignaumsjónar er gott dæmi um þjónustu sem styður við markvissari rekstur fasteigna, reglulegt eftirlit og betra viðhald. Með þessu samstarfi viljum við umbuna þeim húsfélögum sem leggja áherslu á faglega umsýslu og stuðla þannig að auknu öryggi og minni líkum á tjónum til lengri tíma,“ segir Heiður Huld Hreiðarsdóttir, forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar hjá Sjóvá.

Húsumsjón – enn öflugri heildarlausn

„Það eru bráðum 10 ár frá því við byrjuðum að bjóða stærri húsfélögum upp á þessa sérþjónustu og þessi samningur undirstrikar það sem við höfum sagt frá upphafi: Markviss umsjón, reglulegt eftirlit og fagleg þjónusta dregur úr áhættu og stuðlar að öruggari rekstri sameigna fjöleignarhúsa,“ segir Gunnþór S. Jónsson, forstöðumaður þjónustusviðs Eignaumsjónar.

„Að rótgróið tryggingafélag eins og Sjóvá meti húsumsjónarþjónustu okkar með þessum hætti eru skýr skilaboð að okkar mati og ánægjuleg viðurkenning á gæðum þjónustunnar. Með þessu samkomulagi er Húsumsjón enn öflugri heildarlausn fyrir húsfélög, sem felur í sér aukið öryggi, einfaldara utanumhald og raunverulegan fjárhagslegan ávinning.“

Samkomulagið hefur þegar tekið gildi og geta áhugasamir fengið nánari upplýsingar með því að hafa samband við þjónustuver Eignaumsjónar í síma 585-4800, í tölvupósti á thjonusta@eignaumsjon.is, eða í netspjalli á eignaumsjon.is.

Um Eignaumsjón og Sjóvá

Eignaumsjón býr að 25 ára þekkingu og reynslu í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög atvinnuhúsnæðis og er umsvifamesta fyrirtæki landsins á þessu sviði. Áhersla er lögð á hlutlausa nálgun, öryggi, gæðamál og skýra verkferla til að gera rekstur fasteigna markvissari og ódýrari, auka upplýsingaflæði til eigenda og auðvelda störf stjórna.

Sjóvá hefur þjónustað einstaklinga og fyrirtæki á Íslandi í yfir 100 ár og er eitt stærsta tryggingafélag landsins. Félagið býður fjölbreyttar tryggingalausnir fyrir heimili, fyrirtæki og stofnanir og leggur ríka áherslu á góða þjónustu, öryggi og forvarnir. Sjóvá hefur mælst efst í Ánægjuvoginni níu ár í röð, sem endurspeglar sterka stöðu félagsins og mikið traust viðskiptavina.

Framkvæmdastjóraskipti hjá Eignaumsjón

Framkvæmdastjóraskipti hjá Eignaumsjón

Gunnar Egill Sigurðsson hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri Eignaumsjónar. Hann hefur starfað á dagvörumarkaðnum síðustu 23 árin, síðast sem forstjóri Samkaupa. Hann kemur til starfa í júní þegar Daníel Árnason, sem gegnt hefur starfi framkvæmdastjóra Eignaumsjónar síðustu tvo áratugina, lætur af störfum en Daníel kemur áfram að starfsemi félagsins sem stjórnarmaður.

Eignaumsjón er leiðandi fyrirtæki á Íslandi í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög fasteigna og býr yfir víðtækri þekkingu og reynslu í rekstri fjöleignarhúsa eftir rúmlega aldarfjórðungs starfsemi.

„Við bjóðum Gunnar Egil velkominn til starfa og hlökkum til að vinna með honum að áframhaldandi uppbyggingu Eignaumsjónar,“ segir Guðjón Ármann Jónsson, stjórnarformaður Eignaumsjónar.

„Ég er spenntur að leiða Eignaumsjón áfram veginn,“ segir Gunnar Egill Sigurðsson, verðandi  framkvæmdastjóri Eignaumsjónar. „Félagið er fjárhagslega sterkt, það býr yfir reynslumiklu starfsfólki og ég hlakka til að kynnast því öfluga fólki sem þar starfar. Innviðir eru sömuleiðis traustir og ég sé fjölmörg tækifæri fyrir félagið til að sækja fram.“

Um Eignaumsjón

Eignaumsjón býr að 25 ára þekkingu og reynslu í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög fasteigna og er umsvifamesta fyrirtæki landsins á þessu sviði. Áhersla er lögð á hlutlausa nálgun, öryggi, gæðamál og skýra verkferla til að gera rekstur fasteigna markvissari, öruggari og ódýrari, sem og að  auka upplýsingaflæði til eigenda og auðvelda störf stjórna.

Mikill vöxtur hefur verið í starfsemi Eignaumsjónar undanfarin ár, fjárhagsleg staða félagsins er traust, samtímis því sem kröfur hafa aukist um nýjar útfærslur á þjónustu og nýsköpun með enn frekari tæknivæðingu og stafrænum lausnum. Starfsmenn eru 65 talsins og hefur félagið nú umsjón með daglegum rekstri ríflega 1.350 hús- og rekstrarfélaga með hátt í 32.000 íbúðum/eignarhlutum.