Oct 7, 2023 | Fréttir
Á sama hátt og skattaívilnanir vegna kaupa á rafbílum falla niður um áramótin, renna líka út á sama tíma ívilnanir um vsk endurgreiðslur til stjórna húsfélaga og íbúðaeigenda, sem eru að kaupa vinnu við uppsetningu hleðslustöðva fyrir rafbíla í eða við sitt fjölbýlishús eða heimili.
VSK ívilnanir vegna uppsetningar hleðslukerfa og af hleðslustöðvum, sem tóku gildi í ársbyrjun 2020 og gilda til ársloka 2023, eru liður í aðgerðum stjórnvalda að rafvæða bílaflota landsmanna til að flýta fyrir orkuskiptum með því. Samkvæmt þessum ívilnunum eiga bæði húsfélög og íbúðaeigendur sem eru að kaupa vinnu við uppsetningu hleðslustöðva fyrir rafbíla í eða við sitt fjölbýlishús eða heimili, rétt á að fá virðisaukaskatt endurgreiddan að fullu af vinnu við uppsetningu hleðslukerfis sem og af hleðslustöðum fyrir ofangreint tímabil.
Eignaumsjón sér að sjálfsögðu um að sækja um VSK-endurgreiðslur fyrir húsfélög og aðra viðskiptavini félagsins, samkvæmt greiddum reikningum. Tímamörk á endurgreiðslu miðast við sex ár, samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Skattsins, talið frá því að endurgreiðsluréttur stofnaðist samkvæmt útgáfudegi reikninga.
Sep 14, 2023 | Fréttir
Að gefnu tilefni skal áréttað að endurgreiðsla af greiddum virðisaukaskatti af vinnu á verkstað, vegna nýbygginga, endurbóta og viðhalds lækkaði úr 60% í 35% frá 1. júlí á þessu ári.
Eignaumsjón sækir um endurgreiðslur virðisaukaskatts fyrir hönd húsfélaga sem eru í þjónustu hjá félaginu. Hægt er að sækja um endurgreiðslur í sex ár talið frá því að endurgreiðsluréttur stofnaðist.
Umsóknir vegna eldri tímabila
Hægt er að sækja um 60% endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna framkvæmda sem féllu til á tímabilinu 1. september 2022 til 30. júní 2023, í allt að sex ár frá því endurgreiðsluréttur stofnaðist.
Jafnframt er hægt að sækja um 100% endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna framkvæmda sem féllu til á tímabilinu 1. mars 2020 til 31. ágúst 2022, í allt að sex ár frá því að endurgreiðsluréttur stofnaðist. Endurgreiðslan nær til vinnu á byggingarstað íbúðarhúsnæðis vegna nýbygginga, endurbóta og viðhalds. Almennt fellur undir ákvæðið öll sú vinna sem fram fer á staðnum, þó ekki sú vinna sem alla jafna er unnin á verkstæði eða vinna stjórnenda farandvinnuvéla og vinnuvéla sem eru skráningarskyldar í vinnuvélaskrá.
Aug 5, 2022 | Fréttir
Stjórnir húsfélaga og íbúðaeigendur, sem eru að kaupa vinnu við uppsetningu hleðslustöðva fyrir rafbíla í eða við sitt fjölbýlishús eða heimili, fá virðisaukaskatt endurgreiddan að fullu af vinnu við uppsetningu hleðslukerfis sem og af hleðslustöðum.
VSK-ívilnanir vegna uppsetningar hleðslukerfa og af hleðslustöðvum, sem tóku gildi í ársbyrjun 2020 og gilda til ársloka 2023, eru liður í aðgerðum stjórnvalda að rafvæða bílaflota landsmanna til að flýta fyrir orkuskiptum með því.
Eignaumsjón sér um að sækja um VSK-endurgreiðslur fyrir húsfélög og aðra viðskiptavini félagsins, samkvæmt greiddum reikningum. Tímamörk á endurgreiðslu miðast við sex ár, samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Skattsins, talið frá því að endurgreiðsluréttur stofnaðist samkvæmt útgáfudegi reikninga.
Dec 30, 2021 | Fréttir
Samþykkt hefur verið á Alþingi, í tengslum við afgreiðslu fjárlagafrumvarps ríkisstjórnarinnar fyrir næsta ár, að framlengja átakið ALLIR VINNA fram á mitt næsta ár í aðeins breyttri mynd. Eignaumsjón fagnar þessari ákvörðun sem vonandi tryggir að húsfélög, sem lent hafa í vandræðum með framkvæmdir vegna tafa á aðföngum af völdum COVID-19, nái að ljúka framkvæmdum innan framlengds gildistíma átaksins.
Efnt var til átaksins á fyrri hluta ársins 2020 sem hluta af aðgerðum stjórnvalda til að bregðast við áhrifum COVID-19 á efnahagslífið. Átakinu átti að ljúka nú um áramótin en samkvæmt tillögu meirihluta efnahags- og viðskiptanefndar við afgreiðslu bandormsins svokallaða, sem hefur að geyma ýmsar breytinga á lögum í tengslum við afgreiðslu fjárlaga, hefur nú verið samþykkt að framlengja átakið en þó í aðeins breyttri mynd.
Framlenging vegna íbúðarhúsnæðis gildir til ágústloka
Full endurgreiðsla virðisaukaskatts af vinnu iðnaðar- og verkamanna sem unnin er á byggingarstað við nýbyggingu, viðhald og endurbætur íbúðarhúsnæðis, er framlengd til og með 31. ágúst 2022 en eftir þann tíma, frá og með 1. september 2022, skal endurgreiðslan miðast við 60%.
Jafnframt er 100% endurgreiðsla virðisaukaskatts framlengd af vinnu iðnaðar- og verkamanna sem unnin er á byggingarstað við nýbyggingu, viðhald og endurbætur frístundahúsnæðis og húsnæði í eigu sveitarfélaga, sem og vinnu við hönnun og eftirlit með byggingum, endurbótum og viðhaldi frístundahúsnæðis, ásamt vinnu manna vegna heimilisaðstoðar og reglulegrar umhirðu íbúðarhúsnæðis. Gildistími þessara ívilnana er til og með 30. júní 2022 og falla þær því niður frá og með 1. júlí 2022.
Það var hins vega ekki samþykkt að framlengja ívilnanir vegna 100% endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu manna við bílaviðgerðir, bílamálningu eða réttingar fólksbifreiða. Falla þær niður frá og með 1. janúar 2022.
Ánægjuleg niðurstaða Alþingis og stjórnvalda
„Þessi framlenging átaksins ætti að tryggja að húsfélög, sem sáu fram á að geta ekki lokið umfangsmiklum viðhaldsframkvæmdum nú fyrir áramót vegna tafa af völdum COVID-19, geti nú lokið þeim á gildistíma framlengingarinnar og þar með vonandi innan þess fjárhagsramma sem búið var að samþykkja með tilliti til 100% endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu iðnaðarmanna,“ segir Daníel Árnason, framkvæmdastjóri Eignaumsjónar.
„Það er mjög ánægjulegt að Alþingi og stjórnvöld skuli hafa hlustað á raddir okkar sem hvöttum til framlengingar átaksins ALLIR VINNA. Við höfum verið leiðandi í yfir 20 ára í þjónustu við húsfélög fjöleignarhúsa og ég fullyrði að þessar skattaívilnanir hafa skilað fjölmörgum eigendum íbúðarhúsnæðis í fjöleignarhúsum verulegum ávinningi, ekki síst í eldra húsnæði þar sem ráðist hefur verið í löngu tímabært viðhald og endurbætur sem má beinlínis rekja til minni framkvæmdakostnaðar vegna átaksins ALLIR VINNA.“
Dec 17, 2021 | Fréttir, Greinar
Sú staða blasir nú við mörgum húsfélögum sem farið hafa af stað í góðri trú með umfangsmiklar viðhaldsframkvæmdir í tengslum við átakið ALLIR VINNA að ekki næst að ljúka þeim fyrir áramót vegna tafa af völdum COVID-19. Algengast er að um sé að ræða tafir á vinnuþættinum hjá verktökum vegna fjarvista erlends starfsfólks, s.s. vegna smit- og sóttvarna. Tafa vegna COVID-19 gætir einnig í vaxandi mæli á ýmis aðföng vegna viðhalds- og byggingarframkvæmda, s.s. á framleiðslu erlendis og flutninga.
Fjölmörg dæmi eru um það hjá húsfélögum sem eru í þjónustu hjá okkur að framkvæmdum, sem átti að ljúka í haust, hafi verið slegið á frest til vors 2022 af þessum orsökum. Aðdragandi framkvæmda hjá húsfélögum er umtalsverður, bæði öflun tilboða og samþykktarferlið. Eðlilega verðum við því vör við gremju hjá stjórnum húsfélaga sem eru lent í þessari stöðu, enda allt útlit er fyrir að fjárhags- og framkvæmdaáætlanir raskist með tilheyrandi viðbótarkostnaði fyrir eigendur, fari svo að ALLIR VINNA ljúki nú um áramótin.
Efnt var til átaksins sem hluta af aðgerðum stjórnvalda til að bregðast við áhrifum COVID-19 á efnahagslífið. Kórónuveirufaraldurinn er langt frá því að vera yfirstaðinn og því er full þörf á að framlengja átakið að okkar mati. Átakið hófst í mars 2020 og það hefur haft mikil og jákvæð áhrif fyrir eigendur íbúðarhúsnæðis í fjöleignarhúsum. Húsfélög í mörgum eldri fjöleignarhúsum hafa ráðist í tímabært viðhald og endurbætur, beinlínis vegna minni kostnaðar sem fylgir 100% endurgreiðslu á virðisaukaskatti.
Við hjá Eignaumsjón, sem höfum verið leiðandi hérlendis í yfir 20 ár í þjónustu við húsfélög fjöleignarhúsa, tökum því heilshugar undir áskoranir til stjórnvalda og Alþingis um að átakið ALLIR VINNA verði framlengt enn um sinn. Jafnframt höfum við komið þessum sjónarmiðum okkar á framfæri við félagsmálaráðuneytið, sem fer með málefni fjöleignarhúsa.
Daníel Árnason, framkvæmdastjóri Eignaumsjónar, birti ofangreinda SKOÐUN á visir.is 17. desember 2021.