Viðbrögð við innbrotum í fjölbýlishús

Viðbrögð við innbrotum í fjölbýlishús

Tilkynningum um innbrot á heimili og þjófnaði fjölgaði í síðasta mánuði, samkvæmt mánaðarlegri samantekt Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Töluvert er um að íbúar í fjölbýlishúsum sem eru í þjónustu hjá Eignaumsjón leiti til félagsins með óskir um að tilkynna innbrot eða þjófnaði og því viljum við árétta að rétt viðbrögð í þeirri stöðu er að íbúar kalli sjálfir strax  til lögreglu. Hringja skal í neyðarsímann 112. Lögregla mætir þá á vettvang og gerir skýrslu sem er þá hægt að leggja til grundvallar kæru, enda lögregluskýrsla ávallt nauðsynleg til þess að fylgja eftir innbrota- og þjófnaðarmálum hjá tryggingarfélagi tjónþola.

Tjón á sameign skal tilkynna tryggingafélagi húsfélags

Ef tjón hefur verið unnið á búnaði í sameign eru rétt viðbrögð að tilkynna slíkt til tryggingafélags hússins eða húsfélagsins. Tryggingafélögin eru með neyðarþjónustu allan sólarhringinn, síma- og neyðarnúmer tryggingafélaganna eru:

  • Sjóvá: 440-1200, neyðarsími: 800-7112
  • TM : 515-2000, neyðarsími: 800-6700
  • VÍS: 560-5000, neyðarsími: 560-5070
  • Vörður: 514-1000, neyðarsími: 800-6700

Tjón á persónulegum munum er hægt að tilkynna með rafrænum skilríkjum, beint á heimasíðu tryggingarfélags viðkomandi, en bætur í slíkum tilvikum eru sóttar í innbústryggingu tjónþola.

Forvarnir og viðbrögð við innbroti

Rétt er að hvetja fólk til að huga að öryggismálum, jafnt heima fyrir sem á vinnustöðum, og skilja ekki eftir sýnileg verðmæti í bílum, hvorki úti við né inni í lokaðri bílageymslu.

Að lokum skal hér árétta skilaboð lögreglunnar um mikilvægi þess að bregðast rétt við ef fólk kemur að híbýlum sínum, íbúð, bílageymslu eða fyrirtæki, í þannig ástandi að grunur vakni um að þar hafi verið framið innbrot. Til að tryggja eigið öryggi þarf allra fyrst að huga að því hvort innbrotsþjófurinn sé enn á vettvangi. Því næst ber að loka fyrir óþarfa umgang á innbrotsstað svo hugsanlegum  sönnunargögnum verði ekki spillt og síðan skal hafa samband við lögreglu, eins og fyrr segir, í síma 112 og tilkynna um innbrotið.

Nánari leiðbeiningar um viðbrögð við innbroti er að finna á vef lögreglunnar