Feb 20, 2025 | Fréttir
Mælt er með að klippa tré seinni hluta vetrar þegar þau eru í vetrardvala eða yfir hásumar þegar þau eru í fullum vexti. Stjórnir húsfélaga geta leitað til þjónustuvers Eignaumsjónar ef þörf er á aðstoð við að afla tilboða í trjáklippingar.
Það hefur færst í vöxt á undanförum árum, sérstaklega hjá stærri húsfélögum, að bjóða út umsjón með lóð húsfélagsins, s.s. runna- og trjáklippingum, hreinsun beða, áburðargjöf og garðslætti. Reynslan sýnir að mörg húsfélög eru þegar farin að huga framkvæmdum á þessum tíma ársins og því ráðleggjum við félögum, sem vilja tryggja sér slíka þjónustu fá tilboð í slíka vinnu, að bregðast hratt við því.
Ekki klippa tré á haustin
Klipping og snyrting trjáa er vandasöm iðja og mælum við með því að láta fagfólk annast verkið, því auðvelt er að vinna meira ógagn en gagn með því að fara óvarlega með verkfærin. Þá er mikilvægt að klippa á réttum tíma, sem er seinni hluta vetrar, frá miðjum desember og út marsmánuð þegar trén eru í vetrardvala, eða þá yfir hásumar frá miðjum júní til ágústloka þegar tré eru í fullum vexti. Eindregið er varað við því að klippa tré á haustin en þá er hætt við að fúasveppir, sem geta valdið óbætanlegum skemmdum, komist í vefi trjánna.
Við aðstoðum við öflun tilboða
Öflun tilboða í lóðarvinnu er innifalin í þjónustuleið 3 hjá Eignaumsjón. Húsfélög í þjónustuleiðum 1 og 2 geta einnig nýtt sér aðstoð þjónustuvers Eignaumsjónar við öflun slíkra tilboða gegn vægu gjaldi. Mikilvægt er að þjónustuverið fái greinargóða lýsingu frá stjórnum húsfélaga um þau verk sem vinna skal. Þannig fást samanburðarhæf tilboð og minni líkur eru á að ágreiningur rísi við verklok.
Hægt er að hafa samband við þjónustuverið í síma 585-4800 og á netspjalli, eða með því að senda tölvupóst á thjonusta@eignaumsjon.is.
Mar 25, 2024 | Fréttir, Greinar
Þótt enn sé kalt í veðri er lóan komin til landsins, sem segir okkur að tími vorverkanna er að renna upp og tímabært að huga að klippingu trjáa og runna, hreinsun beða, áburðargjöf og gluggaþvotti. Stjórnir húsfélaga í þjónustu hjá Eignaumsjón geta leitað til þjónustuversins ef vantar aðstoð við að leita tilboða hjá þjónustufyrirtækjum í framkvæmdir tengdar vorverkunum.
Hefð er fyrir því í mörgum húsfélögum að eigendur taki sig saman og haldi hreinsunardag á vorin þar sem lóð og bílastæði fjölbýlishússins eru hreinsuð og snyrt eftir veturinn og jafnvel tekið til í geymslum og sameign.
Vorhátíð húsfélaga
Tímasetning slíkra hreinsunardaga er jafnan á vorin. Dagskrá slíkra daga er jafnan rædd á aðalfundum viðkomandi húsfélaga en einnig geta stjórnir ákveðið hvað skuli gert á slíkum hreinsunardögum. Mikilvægt er að láta eigendur og íbúa vita með góðum fyrirvara og til að auka líkur á góðri mætingu bjóða mörg húsfélög upp á léttar veitingar. Myndast þá gjarnan vorhátíðarstemming, sem eflir og styrkir samstöðu og samheldni íbúa í viðkomandi húsfélagi!
Lóðarvinna
Það hefur færst í vöxt á undanförum árum, sérstaklega hjá stærri húsfélögum, að bjóða út umsjón með lóð húsfélagsins. Þetta á m.a. við um runna- og trjáklippingar, hreinsun beða, áburðargjöf og garðslátt. Húsfélög, sem vilja fá tilboð í slíka vinnu, ættu að bregðast hratt við því reynslan sýnir að mörg félög eru þegar farin að huga framkvæmdum á þessum tíma.
Öflun tilboða í lóðarvinnu er innifalin í þjónustuleið 3 hjá Eignaumsjón. Húsfélög í þjónustuleiðum 1 og 2 geta einnig, gegn vægu gjaldi, nýtt sér aðstoð þjónustuvers Eignaumsjónar við öflun slíkra tilboða. Hægt er að hafa samband við þjónustuverið í síma 585-4800 og á netspjalli, eða með því að senda tölvupóst á thjonusta@eignaumsjon.is. Mikilvægt er að þjónustuverið fái greinargóða lýsingu frá stjórnum húsfélaga um þau verk sem vinna skal. Þannig fást samanburðarhæf tilboð og minni líkur eru á að ágreiningur rísi við verklok
Að lokum minnum við á mikilvægi þess að klippa og snyrta trjágróður áður en gróður fer að bruma – og best er auðvitað að huga árlega að ástandi lóðar og gróðurs.