Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri árið 2023

Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri árið 2023

Þriðja árið í röð er Eignaumsjón hf. í hópi þeirra fyrirtækja á Íslandi sem eru á lista Viðskiptablaðsins og Keldunnar yfir Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri.

Að þessu sinni eru 2,8% fyrirtækja á Íslandi, eða 1.407 fyrirtæki, á lista Viðskiptablaðsins og Keldunnar. Til að komast á listann þurfa fyrirtækin, sem eru flokkuð í stór, meðalstór og lítil fyrirtæki, að uppfylla ströng skilyrði um afkomu, einginfjárhlutfall, tekjur og eignir.

Í fyrsta lagi þurfa fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri árið 2023 að hafa skilað ársreikningi fyrir rekstrarárin 2022 og 2021 en einnig er rekstrarárið 2020 haft til viðmiðunar. Fyrirtækin þurfa sömuleiðis að hafa skilað jákvæðri afkomu á rekstrarárunum 2022 og 2021. Tekjur fyrirtækjanna þurfa enn fremur að hafa verið umfram 40 milljónir króna á rekstrarárunum 2022 og 2021, eignir yfir 80 milljónum króna sl. tvö ár og eiginfjárhlutfall þarf að hafa verið yfir 20% í lok áranna 2022 og 2021, nema í tilviki bankanna.

Auk ofangreindra þátta er sömuleiðis tekið tillit til ýmissa annarra þátta, sem metnir eru af Viðskiptablaðinu og Keldunni.

Eignaumsjón er fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2022

Eignaumsjón er fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2022

Eignaumsjón hf. er í hópi þeirra 2,3% fyrirtækja á Íslandi sem eru á lista Viðskiptablaðsins og Keldunnar yfir Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri árið 2022.

Þetta er annað árið í röð sem Eignaumsjón er á lista Viðskiptablaðsins og Keldunnar, en til að komast á listann þurfa fyrirtæki að uppfylla ströng skilyrði um afkomu, einginfjárhlutfall, tekjur og eignir.

Í fyrsta lagi þurfa fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri árið 2022 að hafa skilað ársreikningi fyrir rekstrarárin 2021 og 2020 en einnig er rekstrarárið 2019 haft til viðmiðunar. Þau þurfa einnig að hafa skilað jákvæðri afkomu á rekstrarárunum 2021 og 2022. Tekjur fyrirtækjanna þurfa enn fremur að hafa verið umfram 40 milljónir króna á rekstrarárunum 2021 og 2020, eignir þurfa að hafa verið yfir 80 milljónir króna og eiginfjárhlutfall þarf að hafa verið yfir 20% í lok áranna 2021 og 2020, nema í tilviki bankanna.

Auk ofangreindra þátta er sömuleiðis tekið tillit til ýmissa annarra þátta, sem metnir eru af Viðskiptablaðinu og Keldunni.