Dec 23, 2025 | Fréttir
Starfsfólk Eignaumsjónar óskar viðskiptavinum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári og þakkar ánægjuleg samskipti á liðnum árum.
Skrifstofa Eignaumsjónar er lokuð á aðfangadag, jóladag og annan í jólum. Mánudaginn 29. og þriðjudaginn 30. desember er skrifstofan opin á milli kl. 9 og 16. Lokað er á gamlársdag og nýársdag en frá og með föstudeginum 2. janúar er opið á hefðbundnum skrifstofutíma, milli klukkan 9 og 16 mánudaga til fimmtudaga og milli klukkan 9 og 15 á föstudögum.
Við minnum líka á að hægt er að senda tölvupóst á þjónustuver Eignaumsjónar á netfangið thjonusta@eignaumsjon.is, hafa samband í netspjalli á heimasíðunni, www.eignaumsjon.is. Símatími er milli kl. 10 og 15 alla virka daga í síma 585-4800.
Viðskiptavinir sem það kjósa geta líka skilað inn gögnum í póstkassa Eignaumsjónar við aðalinngang á suðurhlið/bakhlið Suðurlandsbrautar 30, 108 Reykjavík.
Dec 12, 2025 | Fréttir, Greinar
Hjá Eignaumsjón er mikið er lagt upp úr réttri boðun aðalfunda til að tryggja að fundir húsféalga verði löglegir, en boða skal til aðalfunda með sannanlegum hætti með minnst átta og mest 20 daga fyrirvarai. Fyrstu aðalfundirnir hefjast 12. janúar nk. en alls verða ríflega 1.200 aðalfundir húsfélaga og rekstrarfélaga á dagskrá fram til maíloka 2026.
Að öllu jöfnu verða aðalfundirnir haldnir frá mánudegi til fimmtudags og á laugardögum í fundarsölum Eignaumsjónar á Suðurlandsbraut 30 í Reykjavík og Bæjarhrauni 6 í Hafnarfirði, en einnig í sameignum húsfélaga og fundarsölum í þeirra nærumhverfi, s.s. í skólum, safnaðarheimilum og hjá íþróttafélögum.
Rafræn boðun funda í Húsbókinni er öruggust
Öruggasta og skilvirkasta boðunarleið aðalfundar er með tölvupósti til eiganda sem skráður er í Húsbókina á heimasíðunni okkar. Við hvetjum því alla eigendur, sem hafa ekki virkjað Húsbókina til að gera það strax. Það er ekki flókið. Viðkomandi skráir sig inn í fyrsta sinn með því að smella á Húsbókarhnappinn efst til hægri á www.eignaumsjon.is, auðkennir sig með rafrænum skilríkjum og skráir inn netfang. Nánari upplýsingar um Húsbókina, innskráningu og notendastillingar er að finna hér.
Aðalfundarboð eru send í bréfapósti á eigendur sem eru með lögheimili utan viðkomandi fasteignar og jafnframt sjá stjórnir um að hengja aðalfundarboð upp í sameign. Það má ekki gleymast – þá telst fundurinn ekki löglega boðaður.
Aðalfundargögn aðgengileg í Húsbókinni
Tímanlega fyrir aðalfund geta íbúðareigendur nálgast aðalfundargögnin í Húsbókinni. Þar verður líka hægt að skoða ársreikning viðkomandi hús- eða rekstrarfélags, kostnaðar- og húsgjaldaáætlun fyrir árið 2026, aðalfundarboðið og önnur gögn sem leggja á fyrir aðalfund. Í Húsbókinni er einnig hægt að skoða húsgjaldaseðla, fundargerðir og fleiri upplýsingar sem tengjast rekstri viðkomandi húsfélags og kynna sér vildarkjör og afslætti, sem bjóðast öllum viðskiptavinum Eignaumsjónar.
Að lokum skal áréttað að fundargögn eru ekki lengur prentuð út fyrir aðalfundi sem eru haldnir í fundarsölum Eignaumsjónar, heldur varpað upp á skjá, en það er liður í viðleitni Eignaumsjónar að sýna samfélagslega ábyrgð með því að draga úr pappírsnotkun.
Dec 11, 2025 | Fréttir, Greinar
Eignaumsjón hlaut á dögunum Öryggisviðurkenningu Aftra 2025 fyrir framúrskarandi árangur í netöryggi.
Aftra stóð fyrir fyrsta netöryggisátaki fyrirtækisins í október 2025, sem er alþjóðlegur netöryggismánuður. Fyrirtæki og stofnanir sem eru í þjónustu hjá Aftra fengu þá tækifæri til að efla þekkingu sína, með það að markmiði að efla netöryggi sitt með fyrirbyggjandi hætti og draga úr hættu á árásum með markvissum aðgerðum.
Að átakinu loknu fengu fyrirtæki og stofnanir sem náðu framúrskarandi árangri í netöryggisátakinu séstaka netöryggisviðurkenningu frá Aftra. Eignaumsjón er í þeim hópi, ásamt 24 örðum fyrirtækjum og stofnunum.
Þjónustan sem Aftra býður upp var sett á markað haustið 2023 sem hluti af starfsemi netöryggisfyrirtækisins Syndis og vorið 2024 tók Aftra til starfa sem dótturfyrirtæki Syndis. Félagið kortleggur svokallað stafrænt fótspor fyrirtækja til þess að koma auga á hugsanlega veikleika sem hakkarar gætu nýtt sér, en markmið Aftra er að hjálpa stjórnendum að skilja og taka aukna ábyrgð á netöryggi sinna fyrirtækja.
Dec 3, 2025 | Fréttir
Með gangsetningu sjöunda áfanga Orkuversins Svartsengis þann 1. desember sl. vex rafmagnsframleiðsla þar um þriðjung, úr 63 í 85 megawött. Eignaumsjón óskar HS Orku til hamingju með þennan merka áfanga en um átta ár eru nú frá því að fyrirtækin gerðu með sér samkomulag um raforkuviðskipti, sem hefur skilað viðskiptavinum Eignaumsjónar umtalsverðum afslætti af smásöluverði við kaup af raforku frá HS Orku.
Nýja orkuverið, Orkuver 7, leysir af hólmi tvö af eldri orkuverum HS Orku í Svartsengi, auk þess sem framkvæmdin felur í sér umtalsverðar endurbætur á ýmsum búnaði sem tengist heitavatnsframleiðslu fyrirtækisins. Stækkunin eykur framleiðslugetu á raforku í Svartsengi um allt að þriðjung en framleiðslugetan er nú um 63MW, að því er fram kemur á heimasíðu HS Orku, og Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku, er að vonum ánægður:
„Í ljósi náttúruhamfaranna sem gengið hafa yfir Reykjanes á framkvæmdatímanum, er það einstakt afrek að byggja þessa nýjustu virkjun Íslands þannig að allar áætlanir hafi staðist. Allir sem að verkefninu hafa komið eiga mikið hrós skilið, jafnt verktakar og ráðgjafar sem starfsfólk HS Orku.“ Sjá nánari umfjöllun í frétt á heimasíðu HS Orku.
Bestu kjör á markaði fyrir viðskiptavini Eignaumsjónar
Með samningi sínum við HS Orku getur Eignaumsjón boðið viðskiptavinum sínum upp á bestu kjör á rafmagni á markaði. Afsláttarkjör Eignaumsjónar hjá HS orku gilda um kaup á almennri, óskerðanlegri raforku en ná ekki til raforkuflutnings eða mælagjalds. Afsláttarkjörin gilda fyrir húsfélög og rekstrarfélög sem eru í þjónustu hjá Eignaumsjón. Afsláttarkjörin standa einnig til boða öllum eigendum fasteigna í húsfélögum sem eru í þjónustu hjá Eignaumsjón og eigendur/íbúar, sem vilja nýta sér afsláttarkjörin, geta skráð sig í viðskipti við HS Orku á Húsbókinni, mínum síðum eigenda á www.eignaumsjon.is.
Í ljósi verðhækkana á raforku undanfarið, er ljóst að það er ávinningur fyrir viðskiptavini Eignaumsjónar að nýta sér þessi kjör.
Nov 21, 2025 | Fréttir
Ríflega 1.200 aðalfundir húsfélaga og rekstrarfélaga eru á dagskrá hjá Eignaumsjón eftir áramót og fram til maíloka 2026, eða um 300 fleiri aðalfundir en á fundatímabilinu í fyrra. Þar munar mestu um félög sem voru hjá Rekstrarumsjón, sem flest eru í Hafnarfirði. Búið er að leigja tvo fundarsali við Bæjarhraun til afnota fyrir þessi félög á aðalfundatímabilinu, sem byrjar mánudaginn 12. janúar 2026.
Meginvettvangur aðalfunda félaga sem eru í þjónustu hjá Eignaumsjón verður í nýlegum fundarsölum fyrirtækisins á Suðurlandsbraut 30 í Reykjavík, en einnig í sameignum húsfélaga og fundarsölum í þeirra nærumhverfi, s.s. í skólum, safnaðarheimilum og hjá íþróttafélögum.
Sjö fundarsalir hjá Eignaumsjón – tveir í Hafnarfirði og fimm í Reykjavík
„Um 70% aðalfundanna 2026 verða í fundarsölum Eignaumsjónar. Við bjóðum upp á mjög góða fundaraðstöðu í fimm 12-120 manna sölum í bakhúsinu á 2. hæð á Suðurlandsbraut og nú er einnig verið að útbúa fundaraðstöðu við Bæjarhraun 6 í Hafnarfirði, þar sem Rekstrarumsjón var til húsa. Þar verða tveir salir, 25 og 40 manna, þar sem verður áfram í boði að halda aðalfundi fyrir félög í Hafnarfirði sem voru í þjónustu hjá Rekstrarumsjón,“ segir Þór Gíslason, sem er að undirbúa aðalfundadagskrána 2026, ásamt Höllu Mjöll Stefánsdóttur, Ingibjörgu Önnu Björnsdóttur, Sigríði Guðmundsdóttur og Tinnu Jónsdóttur.
„Meginviðfangsefnið þessa dagana er að raða hús- og rekstrarfélögum niður á fundarsali og fundardaga, frá janúarbyrjun til loka maímánaðar. Fundir á virkum dögum verða haldnir kl. 17 og 19, mánudaga til fimmtudaga og á laugardögum kl. 10, 12 og 14. Húsfélög, sem verið hafa í þjónustu hjá Rekstrar- eða Eignaumsjón, verða á þeim tíma og dögum sem þau hafa áður verið á, en ný félög eru sett á fundartíma sem eru lausir á tímabilinu. Ef stjórnir telja einhverra hluta vegna þörf á að færa til aðalfundinn er mjög mikilvægt að koma þeim upplýsingum sem allra fyrst til Eignaumsjónar,“ bætir Þór við.
Stjórnir húsfélaga hugi tímanlega að undirbúningi aðalfunda
Þá hvetur fundateymi Eignaumsjónar stjórnir hús- og rekstrarfélaga til að huga tímanlega að undirbúningi aðalfundarins. Stjórnir fá senda tilkynningu um aðalfund um 30 dögum fyrir fund og þá er mjög mikilvægt að svör berist sem fyrst frá stjórn um að fundartími henti, eða að fram komi tillaga um annan fundartíma ef þess er þörf, ásamt upplýsingum um önnur fundarefni ef eru, til viðbótar við hefðbundna dagskrá aðalfundar.
„Ég vil líka benda á að tími fyrir hvern aðalfund er tveir klukkutímar að hámarki, sem takmarkar fjölda annarra mála sem hægt er að koma fyrir í dagskrá aðalfundar. Við mælum almennt með því að taka ekki fleiri en 1-2 mál til umræðu og afgreiðslu, til viðbótar við hefðbundna aðalfundardagskrá. Þetta fer auðvitað eftir flækjustigi mála en 25 ára reynsla segir okkur að umræður um framkvæmdir, rafbílahleðslu, húsreglur og dýrahald geta tekið mjög langan tíma og því hæpið að setja mörg slíkt mál aukalega á dagskrá á aðalfundi. Mál, sem snúa t.d. að stórum viðhaldsframkvæmdum, er mun skynsamlegra að taka fyrir á sér húsfundi,“ segir Þór Gíslason og áréttar að lokum að langir aðalfundir hafi tilhneigingu til að missa marks þegar „fundarþreyta“ er komin í gesti.