• Facebook
  • Instagram
  • Húsbókin
  • Húsbókin
Eignaumsjon
  • Húsfélög
  • Atvinnuhúsnæði
  • Leigufélög
  • Húsumsjón
  • Bílastuð
  • Um okkur
    • Starfsfólk
    • Mannauður
    • Hafa samband
    • Húsbók Eignaumsjónar
    • Umhverfisáherslur
    • Persónuvernd og skilmálar
    • Spurningar og svör
    • Fundarsalir til leigu
  • Fréttir
    • Greinar
    • Myndbönd
Select Page

Nýtt starfsfólk í þjónustuveri Eignaumsjónar

Apr 13, 2021 | Fréttir

Þær Gréta María Dagbjartsdóttir, Sigríður Guðmundsdóttir og Sigríður Þóra Jafetsdóttir komu nýlega til starfa í þjónustuveri Eignaumsjónar.

Þrír nýir starfsmenn, Gréta María Dagbjartsdóttir, Sigríður Guðmundsdóttir og Sigríður Þóra Jafetsdóttir, hafa komið til starfa í þjónustuveri Eignaumsjónar á undanförnum mánuðum. Sjö manns standa nú vaktina í þjónustuverinu, sex konur og einn karlmaður.

Þjónustuverið sinnir erindum frá stjórnum hús- og rekstrarfélaga í umsjón Eignaumsjónar. Þjónustuverið annast líka öll samskipti við fagaðila sem eru að þjónusta hús- og rekstrafélögin á vegum félagsins ásamt öllum almennum erindum sem berast á hverjum degi, hvort sem það er í tölvupósti, netspjalli, símtölum eða heimsóknum á skrifstofu félagsins að Suðurlandsbraut 30.

Fjölbreytt menntun og starfsreynsla

Þær Gréta María, Sigríður og Sigríður Þóra eru með fjölbreytta menntun og starfsreynslu og er ráðning þeirra liður í að styrkja þjónustu Eignaumsjónar enn frekar.

  • Gréta María starfaði m.a. hjá Iceland Travel áður en hún réðst til starfa hjá Eignaumsjón í febrúar 2021. Hún er með BS gráðu frá Háskóla Íslands í ferðamálafræði, með viðskipafræði sem kjörsvið og stúdentspróf frá Menntaskólanum á Egilsstöðum.
  • Sigríður Guðmundsóttir starfaði m.a. hjá Eimskip, Sjóvá og Landsbankanum áður en hún hóf störf hjá Eignaumsjón í nóvember 2020. Hún er með BSc gráðu í viðskiptafræði og markaðsfræði frá Háskóla Íslands og stúdentspróf frá Fjölbrautarskólanum við Ármúla.
  • Sigríður Þóra starfaði m.a. hjá Nordic Visitor, Bláa lóninu og Fosshótel Reykjavík áður en hún kom til Eignaumsjónar í desember 2020. Hún er með BSc próf í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og stúdentspróf frá Verslunarskóla Íslands.

Um Eignaumsjón

Eignaumsjón sérhæfir sig í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög atvinnuhúsnæðis með það að markmiði að gera rekstur fasteigna bæði markvissari og hagkvæmari, auka upplýsingaflæði til eigenda og hússtjórna og auðvelda störf þeirra.

1
0
0
0
0
0
0
0

Recent Posts

  • Yfir helmingi áætlaðra aðalfunda þegar lokið
  • Eignaumsjón komin með jafnlaunastaðfestingu Jafnréttisstofu
  • Yfirlýsing fra Eignaumsjón
  • Áhugaverður fundur um rafbíla og fjöleignarhús
  • Hádegisfundur um rafbíla og fjölbýlishús

Recent Comments

  • A WordPress Commenter on Hello world!
Eignaumsjón | Suðurlandsbraut 30 | Sími 585 4800