Gleðilegt nýtt ár og bestu þakkir fyrir það gamla.
Hjá Eignaumsjón reyndist árið 2013 farsælt og gott. Félagið vex jöfnum skrefum og þjónusta þess hefur styrkst og batnað ár frá ári. Við höfum svarað kröfum viðskiptamanna okkar með aukinni þekkingu innan félagsins. Félagið hefur nú á að skipa vel menntuðu fólki á ýmsum sviðum sem nýtist samstarfsaðilum okkar við daglega umsjón jafnt sem stærri ákvarðanir. Einnig höfum við komið okkur upp sérhæfðu tölvukerfi til að halda utanum þau fjölmörgu mál sem við er að glíma.
Þörf fyrir faglega umsjón fasteigna og félaga kringum fasteignir fer vaxandi. Allir vilja að vandað sé til meðferðar fjármuna, ákvarðanatöku og þjónustu af öllu tagi. Það er lágmarkskrafa.
Við hlökkum til að takast á við ný og spennandi viðfangsefni í samstarfi við okkar ágætu viðskiptavini.
Kveðja – Daníel Árnason framkvæmdastjóri