Sífellt fleiri atvinnuhús nýta sér húsumsjón Eignaumsjónar, sem stuðlar bæði að lægri viðhaldskostnaði og tryggir að ástand viðkomandi fasteignar sé ávallt eins og best verður á kosið.
Ástandið er oft slæmt í sameign atvinnuhúsa sem eru að byrja í húsumsjón hjá Eignaumsjón. Þar hefur verið skilið eftir allskyns dót, bæði úti og inni, sem enginn virðist eiga. Fyrsta verkefni húsumsjónarmanna Eignaumsjónar er þá að koma lagi á alla umgengni um sameignina, í samstarfi við stjórn viðkomandi húsfélags.
Eftirlit og fyrirbyggjandi viðhald
Ásamt því að tryggja góða umgengni um sameignina, felur húsumsjón í sér reglulegt eftirlit með að þrif og önnur aðkeypt þjónusta sé vel af hendi leyst. Einnig er minniháttar viðhaldi sinnt, s.s. peruskiptum og tryggt að skrár og lamir séu í lagi. Jafnframt er fylgst með ástandi og búnaði viðkomandi eignar, s.s. aðgangs-, hita- og snjóbræðslukerfum, lyftum, sorphirðu, raf- og pípulögnum og brunavörnum.
Fyrirbyggjandi viðhaldi er einnig sinnt og bent á úrbætur þegar við á. Skýrsla er send stjórn húsfélagsins eftir hverja heimsókn, enda skipta góð samskipti og upplýsingagjöf til viðskiptvina sköpum í þjónustu Eignaumsjónar.
Þessi grein birtist í nýjasta tölublaði Sóknarfæris, sem er kynnignarblað fyrir íslenskt atvinnulíf.