• Facebook
  • Instagram
  • Húsbókin
  • Húsbókin
Eignaumsjon
  • Húsfélög
  • Atvinnuhúsnæði
  • Leigufélög
  • Húsumsjón
  • Bílastuð
  • Um okkur
    • Starfsfólk
    • Mannauður
    • Hafa samband
    • Húsbók Eignaumsjónar
    • Umhverfisáherslur
    • Persónuvernd og skilmálar
    • Spurningar og svör
    • Fundarsalir til leigu
  • Fréttir
    • Greinar
    • Myndbönd
Select Page

Endurgreiðsla lækkar í árslok 2014

Jun 25, 2014 | Fréttir

Þann 1. janúar 2015 lækkar endurgreiðsluhlutfall virðisaukaskatts vegna aðkeyptrar vinnu verktaka til viðhalds íbúðarhúsnæðis úr 100% í 60%. Þetta þýðir til dæmis að af reikningi sem oft samanstendur af efni og vinnu frá verktaka eða iðnaðarmanni má gera ráð fyrir að í stað um 14-17% endurgreiðslu, lækki endurgreiðslan í 7-9%, þ.e. um 7-8%.

Þetta eru vissulega vond tíðindi fyrir eigendur íbúðarhúsnæðis.

Eigendum íbúðarhúsnæðis og frístundahúsnæðis er endurgreiddur sá virðisaukaskattur sem þeir greiða af vinnu iðnaðar- og verkamanna á byggingarstað vegna nýbygginga, endurbóta og viðhalds. Ekki er endurgreiddur virðisaukaskattur af efni eða vinnu stjórnenda farandvinnuvéla og vinnuvéla sem skráningarskyldar eru í vinnuvélaskrá.
Endurgreiðslan er m.a. háð framlagningu fullgildra reikninga frá seljanda þjónustunnar, þ.m.t. verður seljandi þjónustunnar að vera skráður á virðisaukaskattsskrá (vera með opið vsk-númer) á þeim tíma þegar vinnan er innt af hendi. Kaupandi þjónustunnar getur gengið úr skugga um hvort aðili er með opið vsk-númer með því að fletta upp kennitölu hans eða nafni hér.

0
0
0
0
0
0
0
0

Recent Posts

  • Yfir helmingi áætlaðra aðalfunda þegar lokið
  • Eignaumsjón komin með jafnlaunastaðfestingu Jafnréttisstofu
  • Yfirlýsing fra Eignaumsjón
  • Áhugaverður fundur um rafbíla og fjöleignarhús
  • Hádegisfundur um rafbíla og fjölbýlishús

Recent Comments

  • A WordPress Commenter on Hello world!
Eignaumsjón | Suðurlandsbraut 30 | Sími 585 4800