Hjá okkur í Eignaumsjón einkennist tímabilið frá janúarbyrjun til aprílloka af álagi vegna aðalfunda húsfélaga. Við höfum nú þegar lokið um 50 aðalfundum og hefur framkvæmd þeirra gengið vel. Við finnum fyrir meiri vilja eigenda til að gæta vel að viðhaldi eigna sinna og nokkur húsfélög hafa samþykkt bæði stór og smá viðhaldsverkefni. Tíminn til að bjóða út viðhaldsverkefni er einmitt núna, verktakar eru að tryggja sér verkefni fyrir vor og sumarmánuðina.
Mikilvægt er að undirbúa slíkar ákvarðanir vandlega því slíkt auðveldar eigendum að taka ákvarðanir sem oft eru mjög íþyngjandi fyrir heimili og fjölskyldur sem hafa úr litlu að spila. Við höfum þess vegna gjarnan mælt með að húsfélög vinni stöðugt að endurbótum í stað þess að bíða þangað til í óefni er komið.