Elsa Hákonardóttir, sem starfað hefur sem gjaldkeri í liðlega sjö ár hjá Eignaumsjón lætur af störfum í dag að eigin ósk.
„Við þökkum Elsu fyrir vel unnin störf fyrir Eignaumsjón til margra ára. Hún kom til starfa hjá okkur í febrúar 2014, fyrst í hálft starf en endaði fljótlega í fullu starfi og er nú með hvað lengsta starfsreynslu hér af okkar fólki. Það hefur verið mikill vöxtur í starfsemi okkar og þjónustu á þessum árum sem Elsa hefur verið með okkur, sem sést m.a. af því að hér voru starfsmenn 10 talsins og húsfélögin í þjónustu um 170 þegar hún kom til starfa en nú eru starfsmenn orðnir 28 og húsfélögin í þjónustu hjá okkur um 700 talsins,“ segir Daníel Árnason framkvæmdastjóri.
„Það er eftirsjá af Elsu. Hennar verður saknað bæði af samstarfsfólki og viðskiptavinum og við óskum henni gæfu og góðra stunda í framtíðinni.“