Öryggisviðurkenning Aftra árið 2025

Öryggisviðurkenning Aftra árið 2025

Eignaumsjón hlaut á dögunum Öryggisviðurkenningu Aftra 2025 fyrir framúrskarandi árangur í netöryggi.

Aftra stóð fyrir fyrsta netöryggisátaki fyrirtækisins í október 2025, sem er alþjóðlegur netöryggismánuður. Fyrirtæki og stofnanir sem eru í þjónustu hjá Aftra fengu þá tækifæri til að efla þekkingu sína, með það að markmiði að efla netöryggi sitt með fyrirbyggjandi hætti og draga úr hættu á árásum með markvissum aðgerðum.

Að átakinu loknu fengu fyrirtæki og stofnanir sem náðu framúrskarandi árangri í netöryggisátakinu séstaka netöryggisviðurkenningu frá Aftra. Eignaumsjón er í þeim hópi, ásamt 24 örðum fyrirtækjum og stofnunum.

Þjónustan sem Aftra býður upp var sett á markað haustið 2023 sem hluti af starfsemi netöryggisfyrirtækisins Syndis og vorið 2024 tók Aftra til starfa sem dótturfyrirtæki Syndis. Félagið kortleggur svokallað stafrænt fótspor fyrirtækja til þess að koma auga á hugsanlega veikleika sem hakkarar gætu nýtt sér, en markmið Aftra er að hjálpa stjórnendum að skilja og taka aukna ábyrgð á netöryggi sinna fyrirtækja.

Nýir starfsmenn á tæknisviði Eignaumsjónar

Nýir starfsmenn á tæknisviði Eignaumsjónar

Þrír nýir starfsmenn komu nýlega til liðs við tæknisvið Eignaumsjónar til að mæta sívaxandi umsvifum í starfsemi fyrirtækisins. Þetta eru Halldór Ingólfsson þjónustufulltrúi, Pétur Sigurðsson forritari og Sigurður Smári Hergeirsson, sem annast einnig forritun og gagnavinnslu.

Ráðning þremenninganna er í framhaldi af breytingum sem gerðar voru í lok síðasta árs með áherslu á enn frekari stafræna vegferð Eignaumsjónar og eru starfsmenn á tæknisviði nú sjö talsins.

Halldór var þjónustufulltrúi hjá Fjöleignum áður en félagið var sameinað Eignaumsjón sumarið 2024 og var fulltrúi í þjónustuveri Eignaumsjónar, áður en hann færði sig um set yfir á tæknisvið félagsins. Halldór er með próf í vefþróun og margmiðlunarhönnun frá dönskum háskóla og framhaldsskólapróf frá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra.

Pétur starfaði sem forritari hjá fyrirtækinu Helix, áður en hann réðst til starfa hjá Eignaumsjón. Þar áður starfaði hann sem app forritari hjá Origo heilbrigðislausnum og þar áður sem tæknimaður hjá Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands. Pétur er með háskólapróf, BSc í tölvunarfræði, frá Háskóla Íslands.

Sigurður Smári vann sem hugbúnaðarsérfræðingur á veflausnasviði hjá Advania áður en hann kom til starfa hjá Eignaumsjón. Þar á undan vann hann sem forritari á hugbúnaðarsviði hjá Reiknistofu bankanna/Teris og þar áður sem sérfræðingur á hugbúnaðarsviði hjá Skýrr. Sigurður Smári er menntaður kerfisfræðingur frá Tölvuháskóla Verzlunarskólans og er með raungreinadeildarpróf/stúdentspróf frá Tækniskóla Íslands.

„Það eru spennandi tímar hjá okkur að mæta fyrirliggjandi áskorunum í hugbúnaðarmálum,“ segir Sigurður Gauti Hauksson, forstöðumaður tæknisviðs Eignaumsjónar, en félagið þjónar í dag á annað þúsund hús- og rekstrarfélögum með á 27. þúsund íbúðum/eignum.

Um Eignaumsjón

Eignaumsjón býr að 25 ára þekkingu og reynslu í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög atvinnuhúsnæðis. Áhersla er lögð á hlutlausa nálgun, öryggi, gæðamál og skýra verkferla til að gera rekstur fasteigna markvissari og ódýrari, auka upplýsingaflæði til eigenda og auðvelda störf stjórna.

Enn frekari áhersla á stafræna vegferð hjá Eignaumsjón

Enn frekari áhersla á stafræna vegferð hjá Eignaumsjón

Breytingar hafa verið gerðar á skipuriti Eignaumsjónar og er Tæknisvið fyrirtækisins  nú eitt af meginsviðum starfseminnar, ásamt fjármálasviði og þjónustusviði.  Samhliða þessum breytingum hefur forstöðumaður tæknisviðs tekið sæti í framkvæmdastjórn fyrirtækisins.

„Fram undan eru spennandi tímar í stafrænni vegferð Eignaumsjónar, bæði í tækniþróun og snjallvæðingu en fyrirtækið hefur unnið markvisst að því í allmörg ár að færa starfsemina yfir í stafrænt umhverfi,“ segir Sigurður Gauti Hauksson, forstöðumaður tæknisviðsins.

Umtalsverð efling tæknisviðs

Fjórir tölvunarfræðingar starfa nú hjá tæknisviði Eignaumsjónar og hefur verið auglýst eftir þremur sérfræðingum til viðbótar, til að mæta fyrirliggjandi áskorunum í hugbúnaðarmálum.

„Þörfin er sannarlega brýn að efla rafræna getu fyrirtækisins, sem er nú með um 1.200  hús- og rekstrarfélög í þjónustu með um 25 þúsund fasteignir/einingar.“

Laus störf í forritun, þróun og notendaþjónustu

Auglýst hefur verið eftir tveimur öflugum forriturum til að þróa Microsoft SQL gagnagrunna og Microsoft .Net C# hugbúnað. Jafnframt er leitað að öflugum starfskrafti til að annast notendaþjónustu við eigin hugbúnað fyrirtækisins og útstöðvar, ásamt því að sinna kennslu og fleiri verkefnum.  Nánari upplýsingar um störfin er að finna á alfred.is og eiga allar umsóknir að fara þar í gegn. Umsóknarfrestur er til 15. desember 2024. Auglýsinguna má skoða hér.

Tæknisviði Eignaumsjónar vex fiskur um hrygg

Tæknisviði Eignaumsjónar vex fiskur um hrygg

Nýlega var gengið frá ráðningu tveggja nýrra sérfræðinga til Eignaumsjónar og starfa nú fjórir tölvunarfræðingar hjá tæknisviði félagsins, sem komið var á laggirnar í fyrra í tengslum við skiplagsbreytingar. Með þessum ráðningum er verið að efla enn frekar tæknigetu fyrirtækisins í öryggismálum og rafrænum tæknilausnum. Tæknisviðinu er ætlað að leiða stafræna vegferð Eignaumsjónar, sem hefur það að markmiði að gera bæði starfsfólki og viðskiptavinum kleift að vinna rafrænt með öll gögn sem tengjast þjónustu og rekstri fyrirtækisins.

Sigurður Gauti Hauksson, sem hefur unnið lengi að tölvu- og tæknimálum fyrir Eignaumsjón, hefur nú verið ráðinn sviðsstjóri tæknisviðs Eignaumsjónar. Með honum kemur líka til starfa Snæbjörn Halldór Snæbjörnsson, sem mun sinna hugbúnaðarþróun. Aðrir starfsmenn tæknisviðsins eru Emil Hilmarsson, öryggis- og upplýsingatæknistjóri og Sævar Þór Sigfússon, sem annast bæði hugbúnaðargerð og tækniþjónustu.

Úr pappír í starfrænt umhverfi

„Eignaumsjón hefur unnið markvisst að því í allmörg ár að færa starfsemi sína yfir í starfrænt umhverfi,“ segir sviðsstjóri tæknisviðsins, Sigurður Gauti Hauksson. Hann bendir á að þörfin sé brýn þar sem félagið er með yfir 900 hús- og rekstrarfélög í þjónustu, með um 20 þúsund fasteignum/einingum.

„Það gefur auga leið að mikið hagræði er að geta sent yfir 20 þúsund kröfur út rafrænt í hverjum mánuði ásamt um sjöþúsund gjaldareikningum í stað þess að senda þetta allt út á pappír, með tilheyrandi prent- og sendingarkostnaði.“

Öryggi gagna, rekstur og þróun netkerfa

Efling tæknisviðs Eignaumsjónar er rökrétt skref á þeirri braut sem fyrirtækið hefur verið að feta í rekstri upplýsingakerfa sinna. Meginverkefni tæknisviðsins er annars vegar að tryggja öryggi allra gagna og hins vegar að þróa áfram netkerfi fyrirtækisins og sjá til þess að rekstur þeirra gangi snurðulaust fyrir sig.

„Svo til öll starfsemi okkar byggist orðið á tölvutækni og stefnan til framtíðar er að vinna allt rafrænt,“ segir Sigurður Gauti. Hann nefnir rafræna fundi, rafrænar undirskriftir og rafrænt greiðsluuppgjör sem dæmi um áhugaverða áfanga sem Eignaumsjón hefur náð á undanförnum misserum og árum , að ógleymdri Húsbókinni, sem tekin var í gagnið árið 2020 á 20 ára afmælisári fyrirtækisins.

„Í upphafi var töluvert mikið lagt í Húsbókina, sem er rafræn upplýsingagátt fyrir viðskiptavini, en við erum stöðugt að vinna að uppfærslum og viðbótum til að bæta enn frekar upplifun viðskiptavina okkar,“ segir sviðsstjóri tæknisviðsins og klikkir út með að næsta stóra skrefið þar sé að tryggja alrafræna afhendingu allra gagna yfir í Húsbókina.