Virði óháðrar rágjafar Eignaumsjónar er ótvírætt

Virði óháðrar rágjafar Eignaumsjónar er ótvírætt

Niðurstöður verðkannana sem Eignaumsjón hefur gert vegna uppsetningar hleðslukerfa rafbíla fyrir húsfélög sýna að meðalkostnaður við gott rafhleðslukerfi, bæði fyrir bílastæði í séreign og sameign, er um 100 þúsund krónur á hverja eign og fer heldur lækkandi.

Eignaumsjón hefur  gert fjölda úttekta fyrir húsfélög vegna skyldu þeirra til að bregðast við beiðnum um aðgengi að hleðslukerfi fjöleignarhúss, í samræmi við nýleg ákvæði fjöleignarhúsalaganna.

Í framhaldi af úttektunum hafa sérfræðingar Eignaumsjónar aðstoðað stjórnir húsfélaga, sem þess hafa óskað, við að útvega tilboð miðað við fyrirliggjandi verkáætlanir. Samanburður á 12 nýlegum  tilboðum okkar sýnir að næst hagstæðustu tilboðin í rafhleðslukerfi húsfélaga eru að meðaltali um 27% hærri en hagstæðustu tilboðin, eins og sjá má í meðfylgjandi stöplariti.

Samanburðurinn leiðir einnig í ljós að meðalkostnaður við gott rafhleðslukerfi, fyrir bæði bílastæði í séreign og sameign, er um 100 þúsund krónur á hverja eign og fer heldur lækkandi. Í fjöleignarhúsi sem telur 36 íbúðir er munurinn á lægsta og næst lægsta tilboði um ein milljón króna, auk þess sem úttekt og tilboð byggð á úttektinni eiga að tryggja að rafhleðslukerfi hússins virki til framtíðar, eins og önnur kerfi þess.

Til viðbótar við úttektir og verðkannanir/útvegun tilboða, er haldið utan um styrkumsóknir til sveitarfélaga (Reykjavík og fleiri sveitarfélög) hjá Eignaumsjón.

Nánari upplýsingar um þjónustu Eignaumsjónar vegna rafhleðslukerfa í fjöleignarhúsum og reksturs þeirra má finna hér.