Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri árið 2023

Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri árið 2023

Þriðja árið í röð er Eignaumsjón hf. í hópi þeirra fyrirtækja á Íslandi sem eru á lista Viðskiptablaðsins og Keldunnar yfir Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri.

Að þessu sinni eru 2,8% fyrirtækja á Íslandi, eða 1.407 fyrirtæki, á lista Viðskiptablaðsins og Keldunnar. Til að komast á listann þurfa fyrirtækin, sem eru flokkuð í stór, meðalstór og lítil fyrirtæki, að uppfylla ströng skilyrði um afkomu, einginfjárhlutfall, tekjur og eignir.

Í fyrsta lagi þurfa fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri árið 2023 að hafa skilað ársreikningi fyrir rekstrarárin 2022 og 2021 en einnig er rekstrarárið 2020 haft til viðmiðunar. Fyrirtækin þurfa sömuleiðis að hafa skilað jákvæðri afkomu á rekstrarárunum 2022 og 2021. Tekjur fyrirtækjanna þurfa enn fremur að hafa verið umfram 40 milljónir króna á rekstrarárunum 2022 og 2021, eignir yfir 80 milljónum króna sl. tvö ár og eiginfjárhlutfall þarf að hafa verið yfir 20% í lok áranna 2022 og 2021, nema í tilviki bankanna.

Auk ofangreindra þátta er sömuleiðis tekið tillit til ýmissa annarra þátta, sem metnir eru af Viðskiptablaðinu og Keldunni.

Eignaumsjón – fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2021

Eignaumsjón – fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2021

Eignaumsjón hf. er meðal þeirra 2,2% fyrirtækja á Íslandi sem komust á lista Viðskiptablaðsins og Keldunnar yfir Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri árið 2021.

Til að komast á lista Viðskiptablaðsins og Keldunnar þurfa fyrirtæki að uppfylla ströng skilyrði um afkomu, einginfjárhlutfall, tekjur og eignir.

  • Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri þurfa að hafa skilað ársreikningi fyrir rekstrarárin 2020 og 2019 en rekstrarárið 2018 er einnig notað til viðmiðunar.
  • Fyrirtækin þurfa að hafa skilað jákvæðri afkomu á rekstrarárunum 2020 og 2019.
  • Tekjur fyrirtækja þurfa að hafa verið umfram 30 milljónir króna á rekstrarárunum 2020 og 2019.
  • Eignir fyrirtækja þurfa að hafa verið yfir 80 milljónir króna í lok áranna 2020 og 2019.
  • Eiginfjárhlutfall fyrirtækja þarf að hafa verið yfir 20% í lok áranna, nema í tilviki bankanna.

Auk þessa, er tekið tillit til annarra þátta sem metnir eru af Viðskiptablaðinu og Keldunni.