• Facebook
  • Instagram
  • Húsbókin
  • Húsbókin
Eignaumsjon
  • Húsfélög
  • Atvinnuhúsnæði
  • Leigufélög
  • Húsumsjón
  • Rafbílahleðsla
  • Um okkur
    • Starfsfólk
    • Mannauður
    • Hafa samband
    • Húsbók Eignaumsjónar
    • Umhverfisáherslur
    • Persónuvernd og skilmálar
    • Spurningar og svör
    • Fundarsalir til leigu
  • Fréttir
    • Greinar
    • Myndbönd
Select Page

Sigríður Lára ráðin sérfræðingur á fjármálasviði Eignaumsjónar

May 28, 2019 | Fréttir

Sigríður Lára Þorvaldsdóttir er nýráðinn sérfræðingur á fjármálasviði Eignaumsjónar.

Sigríður Lára Þorvaldsdóttir hefur verið ráðin í stöðu sérfræðings á fjármálasviði Eignaumsjónar vegna aukinna umsvifa í starfsemi félagsins, sem er sérhæft í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög. Sigríður Lára mun sinna jöfnum höndum þjónustu við ört vaxandi viðskiptavinahóp Eignaumsjónar og greiningavinnu fyrir stjórnendur.

Sigríður Lára er með B.Sc gráðu frá Háskóla Íslands í viðskiptafræði af reikningsskilasviði og stundar fjarnám í viðburðastjórnun við Háskólann á Hólum. Hún kemur til Eignaumsjónar frá fjármálasviði verkfræðistofunnar Mannvits. Þar áður starfaði hún hjá Borguni sem sérfræðingur í reikningshaldi.

Eignaumsjón hf. tók til starfa árið 2001 og er leiðandi fyrirtæki hérlendis í þjónustu við hús- og rekstrarfélög með það að markmiði að gera rekstur fasteigna markvissari og hagkvæmari. Félagið tók nýverið við allri starfsemi Húsastoðar og þjónustar nú hátt í 500 hús- og rekstrarfélög með nærri 12 þúsund íbúðum eða einingum. Starfsmenn eru 20 talsins og er félagið til húsa að Suðurlandsbraut 30 í Reykjavík.

 

0
0
0
0
0
0
0
0

Recent Posts

  • Sjálfvirkur álestur og innheimta vegna hleðslukerfa rafbíla
  • Yfir helmingi áætlaðra aðalfunda þegar lokið
  • Eignaumsjón komin með jafnlaunastaðfestingu Jafnréttisstofu
  • Yfirlýsing fra Eignaumsjón
  • Áhugaverður fundur um rafbíla og fjöleignarhús

Recent Comments

  • A WordPress Commenter on Hello world!
Eignaumsjón | Suðurlandsbraut 30 | Sími 585 4800