Starfsfólk Eignaumsjónar óskar viðskiptavinum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári og þakkar ánægjuleg samskipti á árinu sem er að líða.
Skrifstofa Eignaumsjónar er opin á hefðbundnum skrifstofutíma á virkum dögum milli jóla og áramóta og eftir áramót. Milli jóla og nýárs er opið til kl. 16 dagana 27.-28. desember en til kl. 15 föstudaginn 29. desember. Eftir áramót, frá þriðjudeginum 2. janúar 2023, verður skrifstofan opin á hefðbundnum skrifstofutíma.
Við minnum líka á að hægt er að senda tölvupóst á þjónustuver Eignaumsjónar á netfangið thjonusta@eignaumsjon.is, hafa samband í netspjalli á heimasíðunni, www.eignaumsjon.is, eða hringja á skrifstofutíma í síma 585-4800. Þau sem það kjósa geta líka skilað inn gögnum í póstkassa Eignaumsjónar við inngang á suðurhlið/bakhlið Suðurlandsbrautar 30.