Skrifstofa Eignaumsjónar er lokuð á aðfangadag og gamlársdag en opið er á hefðbundnum skrifstofutíma virka daga milli jóla og áramóta.
Vegna hertra COVID-19 sóttvarnaraðgerða hefur að nýju verið tekið upp það verklag á skrifstofu Eignaumsjónar að hluti starfsfólks er með viðveru á Suðurlandsbraut 30 og hluti er heima í fjarvinnslu.
Þá er þess farið á leit við viðskiptavini að þeir takmarki eins og hægt er heimsóknir í þjónustuverið og skrifstofuna á Suðurlandsbraut 30. Þar er eigi að síður tekið á móti gögnum á skrifstofutíma og gögn afhent viðskiptavinum en hvatt er til þess að almennar fyrirspurnir og samskipti fari sem mest fram rafrænt.
Hægt er að senda tölvupóst á þjónustuverið á netfangið thjonusta@eignaumsjon.is, hafa samband í netspjalli á heimasíðunni, www.eignaumsjon.is eða hringja í síma 585-4800. Þá geta þeir sem það kjósa skilað inn gögnum í póstkassa Eignaumsjónar, sem er við inngang á suðurhlið/bakhlið hússins að Suðurlandsbraut 30.
Þrátt fyrir samkomutakmarkanir og ýmsa erfiðleika á árinu sem er að líða hefur starfsemi Eignaumsjónar gengið vel og tókst að ljúka meginhluta allra aðalfunda ársins 2021 og undirbúningur vegna aðalfunda árið 2022 er vel á veg kominn.
Starfsfólk Eignaumsjónar óskar viðskiptavinum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári og þakkar ánægjuleg samskipti á árinu sem er að ljúka!