Hefð er fyrir því í mörgum húsfélögum að eigendur taki sig saman og haldi hreinsunardag þar sem lóð og bílastæði fjölbýlishússins eru hreinsuð og snyrt eftir veturinn og jafnvel tekið til í geymslum og sameign.
Tímasetning slíkra hreinsunardaga og hvað gera skal er jafnan rædd á aðalfundum viðkomandi húsfélaga. Í ljósi þeirrar stöðu sem nú er uppi vegna kórónaveirunnar og frestunar aðalfunda ákveða stjórnir húsfélaga hvenær slíkir hreinsunardagar skuli haldnir og láta eigendur/íbúa vita með fyrirvara.
Útboð vegna lóðavinnu
Það hefur færst í vöxt á undanförum árum, sérstaklega hjá stærri húsfélögum, að bjóða út umsjón með lóð húsfélagsins. Þetta á m.a. við um runna- og trjáklippingar, beðahreinsun, áburð og garðslátt. Húsfélög sem vilja fá tilboð í slíka vinnu þurfa að bregðast hratt við því nú er vor í lofti og margir þegar farnir að huga framkvæmdum!
Öflun tilboða í lóðavinnu er innifalin í þjónustuleið 3 hjá Eignaumsjón og húsfélög í þjónustuleiðum 1 og 2 geta einnig, gegn vægu gjaldi, nýtt sér aðstoð þjónustuvers Eignaumsjónar við öflun slíkra tilboða. Hægt er að hafa samband við þjónustuverið í síma 585-4800 og á netspjalli, eða með því að senda tölvupóst á thjonusta@eignaumsjon.is. Mikilvægt er að þjónustuverið fái greinargóða lýsingu frá stjórnum húsfélaga um þau verk sem vinna skal. Þannig fást samanburðarhæf tilboð og minni líkur eru á að ágreiningur rísi við verklok.