Félagsmálaráðuneytið leggur til í ljósi COVID 19 faraldursins að aðalfundum húsfélaga verði frestað enn frekar en áður var búið að heimila, eða um allt að sex mánuði. Ráðuneytið lítur jafnframt svo á að þessi ráðstofun sé ekki brot á 59. grein fjöleignarhúsalaganna.
Ákvörðun ráðuneytisins kemur í framhaldi af fyrirspurn Eignaumsjónar um framkvæmd aðalfunda sem ekki var búið að ljúka þegar 3ja bylgja COVID 19 skall yfir á dögunum.
Ljúka skal aðalfundi fyrir apríllok 2021
Samkvæmt tilkynningu ráðuneytsé hafa þau húsfélög sem hafa ekki enn haldið aðaldfund fyrir árið 2020 því sex mánaða framlengingu. Jafnframt er áréttað í tilkynningu ráðuneytisins að öllum aðalfundum húsfélaga skuli hafa vera lokið fyrir lok aprílmánaðar 2021 eða þeir mögulega sameinaðir aðalfundi viðkomandi húsfélags fyrir árið 2021. Þá leggur ráðuneytið enn fremur til að kjörtímabil stjórna húsfélaga verði framlengt sem nemur töfum á að halda aðalfund húsfélags, þó aldrei lengur en til loka aprílmánaðar 2021. Sjá nánar hér.