• Facebook
  • Instagram
  • Húsbókin
  • Húsbókin
Eignaumsjon
  • Húsfélög
  • Atvinnuhúsnæði
  • Leigufélög
  • Húsumsjón
  • Bílastuð
  • Um okkur
    • Starfsfólk
    • Mannauður
    • Hafa samband
    • Húsbók Eignaumsjónar
    • Umhverfisáherslur
    • Persónuvernd og skilmálar
    • Spurningar og svör
    • Fundarsalir til leigu
  • Fréttir
    • Greinar
    • Myndbönd
Select Page

Framkvæmdir húsfélaga – Uppgjör

Sep 3, 2015 | Fréttir

Frá því í vor hafa staðið yfir utanhússviðgerðir hjá fjölmörgum húsfélögum sem eru í þjónustu Eignaumsjónar. Nú eru flestir verktakanna að ljúka verkum sínum. Almennt hafa framkvæmdirnar gengið vel en verktakar standa sig misvel eins og gengur og gerist.

Hjá nokkrum húsfélaganna er uppgjörum lokið, búið að skipta upp séreignar- og sameignarkostnaði, senda út greiðsluseðla til þeirra sem skulda skv. raunkostnaðaruppgjöri og greiða þeim sem eiga inni. Uppgjör eru yfirleitt lögð fyrir húsfundi til samþykktar en á fundi fer umsjónar- eða eftirlitsaðili yfir verkið, greinir frá gangi þess og frávikum. Þar hafa eigendur komið á framfæri athugasemdum kunni einhverju að vera ábótavant af hálfu verktaka eða uppgjörsaðila.

Á fundunum hefur almennt komið fram ánægja með hvernig að framkvæmdum er staðið, alveg frá ákvörðun til uppgjörs. Það skiptir eigendur fasteigna miklu máli að ljúka verkum og uppgjörum sem fyrst þar sem lánveitingar bíða oft afgreiðslu eftir staðfestingu á fjárhæðum og verklokum.

0
0
0
0
0
0
0
0

Recent Posts

  • Yfir helmingi áætlaðra aðalfunda þegar lokið
  • Eignaumsjón komin með jafnlaunastaðfestingu Jafnréttisstofu
  • Yfirlýsing fra Eignaumsjón
  • Áhugaverður fundur um rafbíla og fjöleignarhús
  • Hádegisfundur um rafbíla og fjölbýlishús

Recent Comments

  • A WordPress Commenter on Hello world!
Eignaumsjón | Suðurlandsbraut 30 | Sími 585 4800