Á undanförnum vikum hafa fjölmörg húsfélög bæst í hóp viðskiptavina Eignaumsjónar. Það vekur athygli að það eru ekki bara stóru húsfélögin heldur einnig þau smærri sem sækjast eftir rekstrarumsjón og þeim stuðningi sem Eignaumsjón veitir. Algengt er að húsfélög sem samanstanda af 8 til 12 íbúðum í stigahúsi nýti sér rekstrarumsjón.
Nokkuð er um að húsfélög úr einu fjöleignarhúsi eru að sameinast í eitt félag. Þannig hafa t.d. þrjú stigahúsfélög í Fannborg í Kópavogi sameinast í eitt húsfélag, húsfélag sem var í rekstri fyrir og annaðist ytra byrði hússins og lóð. Þannig má m.a. ná fram kostnaðarlegri hagræðingu, betri stjórn og samræmingu varðandi rekstur og ástand hússins.