• Facebook
  • Instagram
  • Húsbókin
  • Húsbókin
Eignaumsjon
  • Húsfélög
  • Atvinnuhúsnæði
  • Leigufélög
  • Húsumsjón
  • Bílastuð
  • Um okkur
    • Starfsfólk
    • Mannauður
    • Hafa samband
    • Húsbók Eignaumsjónar
    • Umhverfisáherslur
    • Persónuvernd og skilmálar
    • Spurningar og svör
    • Fundarsalir til leigu
  • Fréttir
    • Greinar
    • Myndbönd
Select Page

Eignaumsjón komin með jafnlaunastaðfestingu Jafnréttisstofu

Mar 7, 2023 | Fréttir

22153-jafnlaunakerfi_final

Eignaumsjón hefur öðlast jafnlaunastaðfestingu Jafnréttisstofu, sem er staðfesting á því að launakerfi fyrirtækisins og framkvæmd þess felur ekki í sér kynbundna mismunun. Sótt var um staðfestinguna í desember 2022 og í lok febrúar 2023 barst tilkynning frá Jafnréttisstofu um að öll umsóknargögn uppfylli kröfur sem gerðar eru í lögum nr. 151/2020, um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.

Samkvæmt lögunum geta fyrirtæki og stofnanir með 25 til 49 starfsmenn valið á milli jafnlaunastaðfestingar eða jafnlaunavottunar og er Eignaumsjón í hópi fyrstu fyrirtækja landsins af þessari stærðargráðu sem hafa öðlast jafnlaunastaðfestingu, sjá lista yfir fyrirtæki og stofnanir hér: https://www.jafnretti.is/is/vinnumarkadur/jafnlaunastadfesting/listi-yfir-adila-sem-hlotid-hafa-stadfestingu.

Vinnur gegn kynbundum launamun og stuðlar að jafnrétti kynja á vinnumarkaði

Meginmarkmið jafnlaunastaðfestingar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði. Til að öðlast þessa staðfestingu þarf að skila eftirfarandi gögnum til Jafnréttisstofu:

  • Jafnlaunastefna – stefna fyrirtækis eða stofnunar í jafnlaunamálum.
  • Jafnréttisáætlun eða samþætt jafnréttissjónarmið í starfsmannastefnu (þarf að vera samþykkt af Jafnréttisstofu).
  • Starfsflokkun.
  • Launagreining.
  • Áætlun til úrbóta þar sem við á.
  • Samantekt æðsta stjórnanda.

Jafnréttisstofa metur umsóknargögn og veitir jafnlaunastaðfestingu þegar innsend gögn uppfylla skilyrði laganna. Sækja þarf um endurnýjun jafnlaunastaðfestingar á þriggja ára fresti.

Sjá nánar hér: https://www.jafnretti.is/is/vinnumarkadur/jafnlaunastadfesting/jafnlaunastadfesting.

Allt starfsfólk metið að verðleikum og áherslu á að allir njóti jafnra tækifæra

Ávallt hefur verið lögð áhersla á jafnrétti kynja hjá Eignaumsjón og að allt starfsfólk njóti jafnra tækifæra á vinnustaðnum.

Meginmarkmið jafnréttisáætlunar félagsins, sem samþykkt hefur verið af Jafnréttisstofu, er að allt starfsfólk skuli metið að verðleikum, njóti sömu virðingar og hafi jöfn tækifæri óháð kyni til að þróast í starfi með því að takast á við krefjandi verkefni sem efla það og styrkja. Þá felur jafnlaunastefna félagsins það m.a. í sér að allt starfsfólk fái sömu laun og sömu kjör fyrir sömu eða jafnverðmæt störf.

0
0
0
0
0
0
0
0

Recent Posts

  • Yfir helmingi áætlaðra aðalfunda þegar lokið
  • Eignaumsjón komin með jafnlaunastaðfestingu Jafnréttisstofu
  • Yfirlýsing fra Eignaumsjón
  • Áhugaverður fundur um rafbíla og fjöleignarhús
  • Hádegisfundur um rafbíla og fjölbýlishús

Recent Comments

  • A WordPress Commenter on Hello world!
Eignaumsjón | Suðurlandsbraut 30 | Sími 585 4800