Húsfélagið að Löngulínu 2 í Garðabæ hefur auglýst eftir húsverði eða staðarhaldara í hlutastarf (30-35%) .
Verkefni húsvarðar eru almenn þrif á sameign, umhirða um lóð, bílastæði og bílageymslu auk minniháttar viðhalds og endurbóta. Húsvörður getur jafnframt tekið að sér sérverkefni eftir samkomulagi.
Staðarhaldari þarf að vera laghentur og útsjónarsamur og hafa auga fyrir því sem betur má fara. Í húsinu eru 48 íbúðir í þremur stigagöngum ásamt bílgeymslu.
Skriflegar umsóknir berist:
Eignaumsjón hf. Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík eða starfsumsokn@eignaumsjon.is Umsóknarfrestur er til og með 23. september 2015.