íbúðir/einingar
í okkar umsjón
starfsmenn
eru á skrifstofu okkar
ára reynsla
í umsjón húsfélaga
aðal- og húsfundum stjórnað af okkur árið 2018
Leyfðu Eignaumsjón að létta þér lífið við
húsfélagsstörfin
Allir sem hafa setið í stjórnum húsfélaga vita að störf stjórnarmanna eru krefjandi og oft vanmetin hvað varðar vinnuframlag, umfang og ábyrgð. Rekstur húsfélags krefst vandvirkni og er viðkvæmur fyrir gagnrýni félagsmanna. Eignaumsjón hefur sérhæft sig í rekstri húsfélaga og býr yfir mikilli sérþekkingu á þessu sviði.
Við bjóðum heildarlausnir í rekstri fjöleignarhúsa bæði íbúðarhúsnæðis og atvinnuhúsnæðis. Eignaumsjón hefur umsjón með daglegum rekstri og kemur faglega að lausn ótal mála sem koma upp í fjölbýlum og fjöleignarhúsum.
Eignaumsjón sér um bókhald, umsjón með húsfélagsfundum og þjónustar húsfélög á fjölbreyttan máta, svo sem með því að útvega iðnaðarmenn, aðstoða við tryggingarmál og leysa úr vandamálum sem koma upp.
Láttu umsjón rekstrarfélagsins í hendur
reynslumikils starfsfólks Eignaumsjónar
Vanda þarf til verka við rekstur atvinnuhúsnæðis eins og annarra fjöleignarhúsa. Eignaumsjón býður eigendum og leigjendum umsjón rekstrar- og húsfélaga í atvinnuhúsnæði. Þjónusta Eignaumsjónar byggir á áralangri reynslu, hlutleysi og faglegri aðkomu við allan rekstur, stjórnun og samskipti eigenda og leigjenda.
Rekstrarfélög geta verið með ýmsu sniði, félög um rekstur sameignar og snúa eingöngu að notendum/leigjendum húsnæðis, félög sem snúa bæði að eigendum og notendum og síðan rekstrarfélög og húsfélög sem eingöngu snúa að eigendum í atvinnuhúsnæði.
Eignaumsjón vinnur fyrir fasteignaeigendur og leigjendur með faglegum vinnubrögðum og ákvarðanatökum. Gegnsæi í öllum rekstri og aðgengilegar upplýsingar auka skilvirkni og bætir samskipti eigenda og leigjenda.
Eignaumsjón sérhæfir sig í umsjón
leigufélaga
Eignaumsjón sérhæfir sig í umsjón leigufélaga og leiguhúsnæðis fyrir eigendur fasteigna hvort sem um íbúðar- eða atvinnuhúsnæði er að ræða. Hjá Eignaumsjón er leigufélag með aðgang að hagnýtu kerfi sem bætir utanumhald og eftirlit með að leigutekjur skili sér. Markmið okkar er að auðvelda fasteignaeigendum útleigu fasteigna, rekstur þeirra og að hámarka arð eignarinnar.
Meðal þeirrar þjónustu sem Eignarumsjón veitir leigufélögum er gerð leigusamninga, áreiðanleikakönnun, innheimta, bókhald og umsjón með eignum.
Við önnumst
- Gerð leigusamninga
- Áreiðanleikakönnun – tryggingar
- Reikningagerð og innheimta leigutekna
- Samskipti og upplýsingagjöf gagnvart leigutaka
- Umsjón og eftirlit með eignum
- Greiðsluumsjón og bókahald leigufélags
- Rekstrarleg umsjón
Umsagnir viðskiptavina
Sjáðu hvað okkar viðskiptavinir hafa að segja
Þjónusta Eignaumsjónar inniheldur meðal annars:
Fundir og samskipti
- Umsjón húsfélagsfunda
- Umsjón og undirbúningur aðalfunda
- Fundarboð
- Fundarstjórn
- Fundarritun
- Samskipti við leigutaka
- Samningagerð og samskipti við iðnaðarmenn
Fundir og samskipti
- Umsjón með fjármálum
- Bókhald
- Reikningsgreiðslur
- Fundarstjórn
- Innheimta reikninga
- Innheimta húsaleigu með sérsniðnu innheimtukerfi
- Ársreikningagerð
- Umsóknir um endurgreiðslu virðisaukaskatts
- Samningar um afsláttarkjör sem spara félagögum verulegar fjárhæðir
Ráðgjöf
- Ráðgjöf um rekstur
- Ráðgjöf í vafa- og deilumálum
- Ráðgjöf um hagkvæmustu leiðir fyrir þitt félag
- Aðstoð við tryggingar
- Öflun tilboða í þrif á sameign, bílageymslu og umsjón með lóð
- Tillögur að hússjóðs- og framkvæmdargjöldum
- Ráðgjöf og aðstoð við hagræðingu í rekstri
- Umsjón með húsvörslu
- Eftirlit með eignum
Hafa samband
Skrifstofan er opin frá kl. 9-16 mánudaga til fimmtudaga og kl. 9-15 á föstudögum. Hægt er að senda tölvupóst á
thjonusta@eignaumsjon.is, í netspjalli eða í síma 585-4800