Uppbygging Vesturvinar, nýrrar íbúðarbyggðar á gamla Héðinsreitnum í Vesturbæ Reykjavíkur, er óðum að taka á sig mynd. Fyrstu íbúarnir fluttu inn haustið 2024 og samtímis tók til starfa deildaskipt heildarhúsfélag fyrir Vesturvin, sem verður virkjað í takt við uppbyggingu og afhendingu eigna.

Alls verða 210 íbúðir og fimm atvinnurými í húsunum sex, sem rísa í Vesturvin. Undir húsunum er sameiginlegur bílakjallari og ofan á honum verður glæsilegur inngarður með torgum, göngustígum og aðgengi að verslunar- og veitingarýmum.

Fyrstu tvö húsin, með samtals 95 íbúðum, eru þegar risin við Mýrargötu 41-43 og Ánanaust 1-3. Framkvæmdir hófust síðla árs 2021 og nú er annar áfangi verkefnisins, bygging 57 íbúða húss við Ánanaust 5 og Vesturgötu 66, vel á veg kominn. Fram undan er svo vinna við byggingu 58 íbúða í þremur húsum við Vesturgötu 60-64. Það er Fasteignaþróunarfélagið Festir sem er lóðarhafi og er nánari upplýsingar um verkefnið að finna á heimasíðunni www.vesturvin.is.

Markmiðið að búa til gott og farsælt samfélag

„Það var gaman að geta lagt lóðarhafanum lið við undirbúning og útfærslu samþykkta fyrir húsfélag, með það að markmiði að búa til gott og farsælt samfélag íbúa og atvinnustarfsemi í Vesturvin, sem verður sannkallað kennileiti til framtíðar í Vesturbæ Reykjavíkur,“ segir Páll Þór Ármann, sem til fjölda ára hefur annast stofnun og innleiðingu nýrra húsfélaga hjá Eignaumsjón.

„Húsin þarna eru skilgreind sem eitt mannvirki í eignaskiptasamningi með sjö matshlutum á sameiginlegri lóð ofan á sameiginlegum bílakjallara og því var best að okkar mati að stofna þarna deildaskipt heildarhúsfélag, í stað sjö húsfélaga með tilheyrandi fjölda stjórnarmanna og meiri kostnaði fyrir eigendur. Eitt félag heldur þá utan um hagsmuni heildarinnar; ytra byrði, lóðina og bílakjallarann, og deildirnar gæta hagsmuna eigenda og notenda í hverju húsi. Í húsfélagsdeildunum eru bæði íbúðir og atvinnustarfsemi, sem ramma þarf inn með bæði skýrum samþykktum og uppgjörsreglum,“ segir Páll og bætir við að þannig verði hagsmunir allra viðkomandi tryggðir.

Húsfélagsdeildir virkjaðar í takt við innflutning íbúa

Húsfélagið Vesturvin er í Þjónustuleið Þ-3; fjármál, fundir og þjónusta hjá Eignaumsjón, ásamt Húsumsjón, sem tryggir reglubundna umsjón með sameign húsfélagsins. Húsfélagsdeildin í Ánanaustum 1-3 hóf starfsemi í nóvember 2024 og deildin í Mýrargötu 41-43 fór í gang í maí á þessu ári. Deildir í húsunum fjórum, sem ekki er lokið við að byggja, verða síðan virkjaðar í takt við uppbyggingu þeirra og innflutning íbúa.

„Það er okkar reynsla að deildaskipt heildarfélög í stærri fjöleignarhúsum skapi aukna samstöðu og samheldni, tryggi betra jafnvægi í rekstri til lengri tíma, samræmt utanumhald eigna og auðveldi hagræðingu; í innheimtu, öflun þjónustu og fleiru,“ áréttar Páll Þór Ármann að lokum.