Með innleiðingu á nýju flokkunarkerfi úrgangs á höfuðborgarsvæðinu haustið 2023 hafa fjölmörg húsfélög þurft að grípa til aðgerða og endurbóta á fyrirkomulagi sorpmála. Eignaumsjón aðstoðar húsfélög, bæði sem eru í þjónustu hjá félaginu sem önnur, við að leysa fyrirkomulag sorpgeymslna og sorpgerða á skynsamlegan og hagkvæman hátt.
Breytingar á fyrirkomulagi sorpmála hjá húsfélaginu Sólheimum 27 í Reykjavík, sem verið hefur í húsfélagsþjónustu hjá Eignaumsjón í um áratug, er dæmi um ráðgjöf og aðstoð sem skilaði húsfélaginu um 10 milljóna króna sparnaði frá upphaflegum áformum.
Hótað sektum ef ekki yrðu gerðar úrbætur
Eftir tunnuskiptin haustið 2023 var staða sorpmála í ólestri hjá umræddu húsfélagi. Tunnum og kerjum hafi verið komið fyrir undir svölum á fyrstu hæð með tilheyrandi brunahættu og hótaði byggingafulltrúinn í Reykjavík sektum, ef ekki yrði brugðist við. Þegar Eignaumsjón kom til aðstoðar í málinu var húsfélagið þegar komið með í hendurnar teikningu af stórri ruslageymslu á lóðinni og tilboð í verkið, sem hljóðaði upp á um 14 milljónir króna.
Sparaði húsfélaginu 10 milljónir króna
Eftir að hafa skoðað málið og m.a. borið saman fjölda sorpíláta sem húsfélagið var með og þörfina, með því að setja þessar tölur inn í svokallaðan „ruslareikni“ sem ráðgjafar Eignaumsjónar hafa þróað, var sett fram ný tillaga um hvernig best væri að leysa málið. Hún fólst í því að setja upp netta sorpgerðislausn frá BM Vallá, sem uppsett kostaði húsfélagið um fjórar milljónir króna, og var það samþykkt og gert. Kostnaðarlækkun húsfélagsins vegna verkefnisins er því rétt ríflega 70%.
„Það er okkar mat að vel hafi tekist til með þetta verkefni, það fór vissulega mikil vinna í þetta hjá okkur, sérstaklega að finna rétta staðsetningu fyrir skýlin og útkoman er góð kostnaðurinn við verkefnið umtalsvert lægri en útlit var fyrir í byrjun,“ segir Jóhanna Magnúsdóttir, formaður húsfélagsins Sólheimar 27.