Uppbygging á Heklureitnum við Laugaveg í Reykjavík gengur vel og tvö fyrstu húsin þar eru þegar farin að setja svip sinn á umhverfið. Fyrstu íbúarnir fluttu inn í hornhúsið á Laugavegi 168 haustið 2025 og deildarskipt heildarhúsfélag tók til starfa þar í ársbyrjun 2026.
Framkvæmdir við Laugaveg 168, átta hæða byggingu á horni Nóatúns og Laugavegar, hófust árið 2023 og eru nú langt komnar. Í húsinu eru 82 íbúðir af öllum stærðum og gerðum og eitt stórt atvinnubil á jarðhæð fyrir verslun og þjónustu, ásamt bílakjallara.
Fjölbreyttar íbúðir og sameiginleg rými
Þegar er búið að selja yfir 80% íbúðanna á Laugavegi 168, en þær henta bæði einstaklingum og fjölskyldum. Gott útsýni er frá húsinu til norðurs en skjólsælt til suðurs þar sem húsið stallast niður í tvær hæðir við Brautarholt. Sameiginlegur inngarður og þakgarður eru í húsinu og einkaþakgarðar fylgja jafnframt sumum íbúðum á efri hæðum.
Markmiðið að móta gott og farsælt samfélag
Húsfélagið Laugavegur 168 tók til starfa um síðustu áramót undir stjórn byggingaraðilans, sem er algeng nálgun hjá Eignaumsjón til að tryggja að starfsemin komist vel af stað áður en eigendur/ íbúar taka við rekstrinum.
„Við vorum í góðum samskiptum við byggingaraðilann um undirbúning samþykkta og útfærslu stofnunar húsfélagsins, með það að markmiði að móta bæði gott og farsælt samfélag þarna við Laugaveginn,“ segir Páll Þór Ármann, sem um árabil hefur annast stofnun og innleiðingu nýrra húsfélaga hjá Eignaumsjón.
Á aðalfundi húsfélagsins, sem haldinn var nýlega, tóku eigendur við stjórn húsfélagsins af byggingaraðilanum. Á þeim fundi var staðfest að Eignaumsjón annist áfram daglegan rekstur og umsýslu félagsins, skv. þjónustuleið Þ-2, sem heldur utan um fjármála-, bókhalds- og fundaþjónustu fyrir húsfélagið. Jafnframt var samþykkt að taka tilboði í Húsumsjón, sérþjónustu hjá Eignaumsjón sem felur í sér reglubundið eftirlit og umsjón með sameign húsfélagsins.
Framkvæmdir við Laugaveg 170
Bygging sjö hæða húss á Laugavegi 170 er einnig vel á veg komin. Þar verða 100 íbúðir, bílakjallari og fjögur atvinnubil. Íbúðirnar á Laugavegi 170 eru komnar í sölu og er þegar búið að selja hátt í helming þeirra.
Stofnun húsfélags fyrir Laugaveg 170 er í undirbúningi hjá Eignaumsjón með byggingaraðilanum, með sama hætti og gert var fyrir Laugaveg 168, þannig að starfsemi húsfélagsins geti farið sem þægilegast af stað fyrir bæði byggingaraðilann og eigendur.
Næstu áfangar á Heklureitnum
Samkvæmt gildandi deiliskipulagi er alls áætlað að byggja um 440 íbúðir í fimm húsum á Heklureitnum. Tímasetning næstu áfanga á svæðinu ræðst m.a. af því hvenær Bílaumboðið Hekla flytur starfsemi sína endanlega af reitnum. Framkvæmdafélagið Laugavegur ehf. annast uppbyggingu á Heklureitnum. Sjá nánar á https://heklureitur.is/