Haustið er góður tími fyrir stjórnir húsfélaga að byrja að huga að viðhaldsverkefnum næsta sumars. Undirbúningur tekur gjarnan 5–8 mánuði og því er mikilvægt að hefjist handa tímanlega.
Með góðum undirbúningi geta húsfélög forgangsraðað verkefnum, fengið skýrari mynd af kostnaði og eigendur hafa betri tíma til að undirbúa sig fjárhagslega vegna fyrirhugaðra viðhaldsframkvæmda.
Hvar stendur þitt húsfélag?
- Er til viðhaldsáætlun fyrir húsið?
- Liggur fyrir hvaða verkefni þarf að ráðast í á næstu 1–3 árum?
- Hefur verið lagt mat á líklegan kostnað?
- Er nægilegum fjármunum safnað í framkvæmdasjóð?
- Hefur verið gert ráð fyrir tíma til undirbúnings, húsfunda og tilboðsöflunar?
Ef svarið við einhverjum þessara spurninga er „nei“ gæti verið kominn tími til að hefja undirbúning.
Hvað þarf að gera?
Fyrsta skrefið er að fá yfirsýn yfir ástand hússins og viðhaldsþörf næstu ára. Ákveða þarf hvaða verkefni eru brýn, til fyrirbyggja að stærri og kostnaðarsamari vandamál komi upp síðar, sem og hvað verkefni mega bíða. Hér getur verið um að ræða verkefni á borð við:
- Viðhald eða endurnýjun á ytra byrði hússins
- Þak og þakfrágang
- Gluggar og hurðir
- Svalir
- Lagnir, dren og fráveita
- Múrviðgerðir og málun
- Lagfæringar á sameiginlegu rými og lóð
- Önnur verkefni sem komið hafa í ljós við skoðun á húseigninni
Þegar búið er að kortleggja verkefnin þarf að forgangsraða þeim, áætla kostnað og ákveða hvernig haga skuli fjármögnun.
Mikilvægt að standa rétt að ákvarðanatöku
Stærri framkvæmdir krefjast góðs samráðs eigenda í húsfélaginu og löglega boðaðra funda. Yfirleitt þarf að taka ákvarðanir í nokkrum skrefum, þar sem samráð eigenda á löglega boðuðum húsfundum er lykillinn að farsælli niðurstöðu og tryggir að rétt er staðið að ákvarðanatöku.
Samþykki húsfundar þarf fyrir að taka tilboði í úttekt á ástandi hússins og kostnaðarmat, en stjórn má sækja tilboð og leggja fyrir fund.
Niðurstöður um forgangsverkefni þarf að kynna eigendum á húsfundi og taka ákvörðun um forgang viðhaldsverkefna og veita stjórn heimild til að afla tilboða í verkið.
Tilboð sem berast frá verktökum þarf að kynna á húsfundi, með sundurliðun á aðgerðum og kostnaði. Einnig þarf að taka ákvörðun, annað hvort á sama húsfundi eða sérstökum fundi, um hvaða tilboði skuli taka.
Í framhaldi af samþykkt húsfundar gerir stjórn samninga við verktaka og eftirlitsaðila og þá geta framkvæmdir hafist, samkvæmt samþykktri forgangsröðun.
Betri yfirsýn yfir rekstur og kostnað
Með skipulegu verklagi fæst betri yfirsýn yfir kostnað, minni líkur eru á óvæntum útgjöldum og greiðsludreifing í framkvæmdasjóð verður jafnari fyrir eigendur.
Við hjá Eignaumsjón aðstoðum húsfélög í þessu ferli. Hægt er að senda erindi á þjónustuverið okkar; í netspalli á www.eignaumsjon.is, í tölvupósti á netfangið thjonusta@eignaumsjon.is, eða hringa í síma 585-4800 og óska eftir nánari ráðgjöf hjá sérfræðingum okkar um hvernig best er að byrja að huga að viðhaldsframkvæmdum næsta sumars!