Það styttist í haustið og því er tímabært fyrir stjórnir og eigendur húsfélaga að huga að helstu haustverkum og undirbúa hús og lóðir fyrir haust- og vetrarveðrin.
Húsfélög kunna að bera ábyrgð ef lausamunir, sem tengjast sameign eða lóð húsfélagsins, fjúka og valda tjóni. Það ætti því að vera fastur liður hjá stjórnum húsfélaga að huga að frágangi slíkra muna. Þar má meðal annars nefna útihúsgögn, grill, trampólín og önnur stærri leikföng eða lausamuni. Best er að koma þeim í skjól eða festa þá tryggilega áður en haustlægðirnar láta á sér kræla.
Þakrennur og niðurföll
Haustið er einnig góður tími til að huga að þakrennum og niðurföllum. Þegar tré og runnar fara að fella lauf getur safnast saman talsvert magn af laufblöðum, til viðbótar við sand, drullu og rusl, sem getur stíflað rennur og niðurföll og jafnvel leitt til vatnstjóns. Gott er því að ganga úr skugga um að rennur og niðurföll séu hrein og geti tekið við þeirri úrkomu sem fylgir haustinu. Með haustrigningum eykst einnig hætta á að vatn komist inn um ytra byrði húsa, glugga eða aðrar viðkvæmar leiðir. Verði vart við leka eða rakamerki er mikilvægt að bregðast strax við og grípa til viðeigandi ráðstafana til að lágmarka hugsanlegt tjón.
Hitavakt og annað haustviðhald
Með kólnandi veðri er rétt að huga að hitakerfum og öðrum atriðum sem hafa áhrif á orkunotkun og rekstur húsfélagsins. Eignaumsjón býður húsfélögum upp á mánaðarlegt eftirlit með notkun á heitu vatni, með það að markmiði að draga úr sóun, stuðla að skilvirkari orkunotkun og lægri rekstrarkostnaði. Þjónustan felur meðal annars í sér faglega skoðun í tæknirýmum húsa á hitagrindum og snjóbræðslukerfum, þannig að hægt sé að bregðast við ef eitthvað er ekki að virka sem skyldi.
Þegar farið er að kólna kemur einnig oft í ljós að hitastillingar á ofnum virka ekki sem skyldi. Pinnar í ofnlokum geta til dæmis fest sig og þá þarf að losa þá og liðka svo hitastýringin virki eðlilega. Haustið er jafnframt góður tími til að skoða þéttingar við glugga og útihurðir og ganga úr skugga um að hurðir og gluggar lokist vel. Þannig má draga úr óþarfa hitatapi og halda kuldanum úti þegar veturinn gengur í garð.
Hálkuvarnir og snjómokstur – ekki bíða eftir fyrsta snjónum
Loks er rétt að minna stjórnir húsfélaga á að huga tímanlega að hálkuvörnum og snjómokstri, ef samningar um slíka þjónustu eru ekki þegar fyrir hendi. Það er reynsla okkar hjá Eignaumsjón að margir vakni við vondan draum þegar fyrsti snjórinn fellur – og þá getur reynst erfitt að finna verktaka sem hefur tök á að taka að sér snjómokstur og söltun með skömmum fyrirvara. Því er betra að vera tímanlega í þessu en að bíða eftir fyrsta snjónum.
Til þjónustu reiðubúin
Þjónustuver Eignaumsjónar aðstoðar viðskiptavini við að afla hagstæðra tilboða í snjómokstur, söltun og aðra haust- og vetrartengda þjónustu fyrir hús- og rekstrarfélög. Hægt er að hafa samband við Þjónustuver Eignaumsjónar með því að senda erindi á thjonusta@eignaumsjon.is, nota netspjallið á eignaumsjon.is eða hringja í 585 4800 á skrifstofutíma.