Það var í mörg horn að líta hjá starfsfólki Eignaumsjónar og fundarstjórum félagsins í nýliðinni viku, sem var stærsta fundavika félagsins á yfirstandandi aðalfundatíð með alls 92 aðalfundum.

Alls hafa nú verið haldnir 377 aðalfundir á vegum Eignaumsjónar á þessu ári, sem lætur nærri að vera þriðjungur þeirra aðalfunda sem ráðgert er að halda fram til maíloka á þessu ári.

Þegar búið boða um 40% allra funda

„Almennt má segja að aðalfundatíðin fari vel af stað hjá okkur,“ segir Inga, Ingibjörg Anna Björnsdóttir, þjónustufulltrúi í fundarteymi Eignaumsjón en bætir við að enn sé langt í að sjái fyrir endann á aðalfundahaldi hjá félaginu. Í þessari viku erum við að halda 78 aðalfundi en við erum þegar búin að boða um 40% þessara 1.250  aðalfunda hús- og rekstrarfélaga sem eru á dagskrá hjá okkur fram á vorið.“

2/3 aðalfunda í vel búnum eigin fundarsölum

Meirihluti aðalfundanna er haldinn í nýlegum fundarsölum Eignaumsjónar í Reykjavík, á 2. hæð í bakhúsinu á Suðurlandsbraut 30. Þar eru fimm vel búnir fundarsalir sem taka frá 12 til 100 manns í sæti og er m.a. hægt að varpa öllum fundargögnum upp á stóra sjónvarpsskjái. Fundir eru að jafnaði kl. 17 og 19 mánudaga til fimmtudaga og kl. 10, 12 og 14 á laugardögum. Einnig er nú í boði að halda aðalfundi í tveimur fundarsölum sem Eignaumsjón leigir á 2. hæð í Bæjarhrauni 6 í Hafnarfirði. Fundað er á sömu dögum og tímum og á Suðurlandsbrautinni.

„Þá má nefna að um þriðjungur aðalfunda hjá okkur á þessari fundatíð eru haldnir í sameignum húsfélaga og/eða sölum í þeirra nærumhverfi, s.s. í skólum, hjá íþróttafélögum og í safnaðarheimilum. Þar getur þó oft á tíðum verið erfiðara að varpa fundargögnum upp á skjá, því segja má að tækniaðstaða þar sé jafn misjöfn og salirnir eru margir,“ segir Inga að lokum