Ábyrgð á gæðum húsa lýkur ekki við lokaúttekt

Ábyrgð á gæðum húsa lýkur ekki við lokaúttekt

Hús eru reist á tiltölulega skömmum tíma en eiga að þjóna notendum sínum í áratugi. Samt beinist umræða um gæði mannvirkja oftast að byggingarstiginu sjálfu: Hvernig hús eru hönnuð, reist, skoðuð og afhent. En hvað tekur við eftir afhendingu? Hvernig tryggjum við að nauðsynlegu viðhaldi húsa sé sinnt og að fjármunir séu til staðar þegar framkvæmdir eru nauðsynlegar?

Þetta eru grundvallarspurningar í umræðunni um viðhaldsskuld íslenskra fjölbýlishúsa. Að mati okkar hjá Eignaumsjón þarf að taka skýrar á þessum þáttum við endurskoðun laga um mannvirki nr. 160/2010 sem nú stendur fyrir dyrum.

Eignaumsjón styður meginmarkmið frumvarpsdraganna sem legið hafa frammi til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda og snúast um einfaldara regluverk, skýrari ábyrgð, áhættumiðað byggingareftirlit og öflugri Mannvirkjaskrá. Þetta eru mikilvæg skref til að fækka byggingargöllum og styrkja neytendavernd. En löggjöfin þarf að horfa til lengri tíma en lokaúttektar og afhendingar mannvirkja. Hún þarf einnig að styðja við ábyrgan rekstur, reglubundið viðhald og fjármögnun viðhaldsins yfir allan líftíma húsa.

Viðhaldsáætlun án fjármögnunar dugar ekki

Í umsögn Eignaumsjónar um frumvarpsdrögin er lagt til að lögbundin verði skylda til að gera tíu ára viðhalds- og fjármögnunaráætlanir fyrir fjölbýlishús. Áætlanirnar byggist á reglubundnu ástandsmati og verði uppfærðar árlega. Þetta eigi ekki aðeins við um ný hús heldur einnig eldri fjölbýlishús, þar sem uppsöfnuð viðhaldsþörf getur verið veruleg.

Viðhaldsáætlun segir til um hvaða framkvæmdir þarf að ráðast í, hvenær og út frá hvaða áætlaða kostnaði. En áætlun ein og sér leysir ekki vandann. Það þarf líka að tryggja að fjármunir séu til staðar þegar að framkvæmdum kemur.

Gögn og greiningar Eignaumsjónar benda til þess að núverandi fjármögnun viðhalds sé langt undir áætlaðri langtímaþörf. Það er áhyggjuefni, enda getur frestun nauðsynlegs viðhalds aukið kostnað síðar og haft áhrif á verðmæti fasteigna og öryggi íbúa.

Tökum umræðuna alla leið

Það er jákvætt að endurskoðun laga um mannvirki skuli nú vera á dagskrá. Með henni gefst tækifæri til að bæta umgjörð byggingareftirlits og neytendaverndar. En við megum ekki láta umræðuna stoppa við afhendingu nýbygginga. Við þurfum að horfa á líftíma mannvirkjanna í heild og tengja saman ástandsmat, viðhaldsáætlanir, fjármögnun og upplýsingar.

Viðhaldsskuld verður ekki greidd niður með góðum ásetningi einum saman. Til þess þarf skýrar reglur, reglubundið óháð eftirlit, raunhæfar áætlanir og fjármuni sem eru til staðar þegar á reynir. Ábyrgð á gæðum mannvirkis lýkur ekki við lokaúttekt. Eftir afhendingu þarf að tryggja að húsinu sé sinnt og að til séu fjármunir til viðhaldsframkvæmdanna.

Til að ræða þessi mál  stendur Eignaumsjón fyrir málþingi miðvikudaginn 18. nóvember næstkomandi þar sem fjallað verður um fyrirhugaðar breytingar á lögum um mannvirki, farið yfir athugasemdir Eignaumsjónar við frumvarpsdrögin og mikilvægi viðhaldsáætlana í fjöleignarhúsum. Einnig verða reifuð sjónarmið Félags fasteignasala um virði fasteigna út frá ástandi og viðhaldsþörf. Sérstakur gestur málþingsins verður félags- og húsnæðismálaráðherra sem flytur lokaorð.

Markmiðið er að skapa vettvang fyrir málefnalega umræðu um betri umgjörð um byggingar og viðhald og rekstur húsnæðis til framtíðar. Það er umræða sem snertir alla fasteignaeigendur og samfélagið í heild.

Skoðunargrein sem Gunnar Egil Sigurðsson, framkvæmdastjóri Eignaumsjónar, birti í dag á visir.is í tilefni af málþingi Eignaumsjónar 18.11.2026 um breytingar á lögum um mannvirki og viðhaldsskuld fjöleigna.

Eignaumsjón er Framúrskarandi fyrirtæki 2026

Eignaumsjón er Framúrskarandi fyrirtæki 2026

Þriðja árið í röð er Eignaumsjón í hópi íslenskra fyrirtækja sem teljast framúrskarandi samkvæmt lista Creditinfo, sem birtur var í dag. Þessi fyrirtæki eiga það sameiginlegt að byggja rekstur sinn á sterkum stoðum og eru í hópi þeirra fyrirtækja sem er best treystandi í viðskiptum á Íslandi að mati Creditinfo.

„Það er ánægjulegt að hljóta þessa viðurkenningu þriðja árið í röð, þar sem markviss vinna okkar frábæra starfsfólks með skilvirkni og þjónustuupplifun að leiðarljósi heldur áfram að skila árangri,“ segir Gunnar Egill Sigurðsson, framkvæmdastjóri Eignaumsjónar.

Aukin skilvirkni í krefjandi rekstrarumhverfi

Meðal þeirra skilyrða sem fyrirmyndarfyrirtæki þurfa að uppfylla er að hafa náð rekstrarhagnaði yfir þriggja ára tímabil, rekstrarhagnaður (EBIT) og ársniðurstaða hafi verið jákvæð reikningsárin 2023-2025, ársreikningi hafi verið skilað á tilskyldum tíma lögum samkvæmt og að eiginfjárhlutfall sé að minnsta kosti 20%.

„Rekstrarumhverfið hefur verið krefjandi síðustu árin en við höfum verið að sjá skilvirkni aukast í rekstrinum með sameiningum síðustu ára, þrátt fyrir að verðskrá okkar hafi hækkað minna en verðlagsþróun,“ segir Gunnar og áréttar að félagið sé vel í stakk búið til að takast á við framtíðaráskoranir.

Tilbúin í næstu ævintýri!

„Starfsfólk okkar er hæfileikaríkt og með mikla reynslu, ásamt því að tæknilegir innviðir okkar eru sterkir. Með stöðugum umbreytingum og áframhaldandi þróun tæknilausna teljum við okkur geta vaxið enn frekar – og ég veit að starfsfólk er tilbúið í næstu ævintýri!“

Listinn yfir Framúrskarandi fyrirtæki 2026 var gerður opinber á sérstökum vef á visir.is í dag og viðurkenningarnar voru afhentar við athöfn síðdegis í Hörpu.

Annasöm aðalfundatíð hjá Eignaumsjón eftir áramót

Annasöm aðalfundatíð hjá Eignaumsjón eftir áramót

Aðalfundatíðin hjá Eignaumsjón, umfangsmesta verkefni fyrirtækisins á hverju ári, hefst í janúarbyrjun 2027 og stendur fram í maí.  Ráðgert er að halda um 1.300 aðalfundi á þessum fimm mánuðum. Þegar mest lætur verða allt að 75 fundir haldnir á viku.

Allt starfsfólk Eignaumsjónar tengist framkvæmd fundavertíðarinnar en það er fundateymi félagsins sem sér um skipulagningu, undirbúning og framkvæmd fundanna. Að sögn Ingu, Ingibjargar Önnu Björnsdóttur, sem er í fundarteyminu, hefst undirbúningurinn löngu áður en fyrsti fundurinn er haldinn.

„Þótt fundirnir fari ekki af stað fyrr en 11. janúar hófst undirbúningurinn snemma í haust. Það þarf að skipuleggja fundardaga, samræma verkefni milli deilda og tryggja að allar upplýsingar liggi fyrir þegar nær dregur,“ segir hún.

Góð samskipti lykillinn að góðum fundum

Meginvettvangur aðalfunda félaga sem eru í þjónustu hjá Eignaumsjón verður í fundarsölum fyrirtækisins á Suðurlandsbraut 30 í Reykjavík, en einnig í sameignum húsfélaga eða í fundarsölum í þeirra nærumhverfi, s.s. í skólum, safnaðarheimilum og sölum hjá íþróttafélögum. Reynslan sýnir að góð samskipti við stjórnir húsfélaganna skipta sköpum fyrir árangursríka fundatíð.

„Því fyrr sem stjórnir koma upplýsingum til okkar um sérstök fundarmál eða breytingar á fundartíma, því auðveldara er að tryggja að allt gangi smurt fyrir sig,“ segir Inga. Þór Gíslason, kollegi Ingu í fundarteyminu, segir að þó umfang aðalfundanna hafi aukist jafnt og þétt á undanförnum árum sé markmiðið ávallt hið sama.

„Við viljum skapa sem bestar aðstæður fyrir húsfélögin til að taka upplýstar ákvarðanir. Hvert félag er einstakt og þarfir þeirra eru mismunandi.“

Réttu málin á réttum fundi

Auk hefðbundinna aðalfundarmála eru viðhaldsmál, framkvæmdir, fjárhagsáætlanir og rafbílahleðsla meðal mála sem oft eru til umræðu á aðalfundum. Þór segir mikilvægt að dagskráin sé skýr og raunhæf.

„Stærri og flóknari mál eiga oft betur heima á sérstökum húsfundum, þar sem meiri tími gefst til umræðna. Reynslan sýnir að það skilar betri niðurstöðu fyrir alla aðila.“

Þá hafa væntingar eigenda til upplýsingagjafar einnig breyst á síðustu árum. Sífellt fleiri vilja kynna sér fundargögn með góðum fyrirvara og til að koma til móts við þá eru öll fundargögn nú birt rafrænt fyrir fund á Húsbókinni, mínum síðum eigenda.

„Þegar fólk hefur kynnt sér vel ársreikninga, áætlanir og önnur fundargögn fyrir fram verða umræðurnar yfirleitt markvissari og ákvarðanir betur ígrundaðar,“ segir Inga.

Störf stjórna mikilvæg

Þrátt fyrir mikinn fjölda funda leggja þau bæði áherslu á að fundatíðin snúist fyrst og fremst um fólkið sem starfar í þágu húsfélaganna.

„Á hverju ári hittum við fjölda fólks sem leggur mikinn tíma í stjórnarsetu og aðra vinnu fyrir sitt hús- eða rekstrarfélag. Það er ánægjulegt að geta stutt við þeirra störf og hjálpa til við að skapa góðan grundvöll fyrir rekstur og umsjón þessara félaga,“ segir Inga.

Þegar litið er fram á fundatíðina 2027 eru skilaboð fundateymisins einföld: Góður undirbúningur og gott samstarf skila alltaf bestu niðurstöðunum.

„Því fyrr sem stjórnir hefja undirbúninginn, því betur gengur að halda skilvirka og árangursríka aðalfundi sem gagnast hús- og rekstrarfélögum til framtíðar,“ bætir Þór við að lokum.

Eignaumsjón er Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2026

Eignaumsjón er Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2026

Eignaumsjón er í hópi 1.780 fyrirtækja á Íslandi sem eru á lista Viðskiptablaðsins og Keldunnar yfir Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri árið 2026.

„Það er ánægjulegt fyrir okkur og styrkleikamerki að vera í hópi þeirra  fyrirtækja á Íslandi sem náðu að uppfylla öll þau ströngu skilyrði sem krafist er til að hljóta vottunina Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri árið 2026,“ segir Gunnar Egill Sigurðsson, framkvæmdastjóri Eignaumsjónar. Tilkynnt var formlega um listann í sérblaði Viðskiptablaðsins um Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri árið 2026, sem kom út í dag.

Sjötta árið í röð

Þetta er sjötta árið í röð sem Eignaumsjón er á listanum en til að komast á lista Viðskiptablaðsins og Keldunnar þurfa fyrirtæki að uppfylla eftirtalin skilyrði:

  • Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri þurfa að hafa skilað ársreikningi fyrir rekstrarárin 2025 og 2024 og rekstrarárið 2023 er einnig notað til viðmiðunar.
  • Afkoma þarf að hafa verið jákvæð rekstrarárin 2025 og 2024.
  • Tekjur þurfa að hafa verið umfram 50 milljónir króna á rekstrarárunum 2025 og 2024.
  • Eignir þurfa að hafa verið umfram 90 milljónir króna í lok áranna 2025 og 2024.
  • Eiginfjárhlutfall þarf að hafa verið yfir 20% í lok áranna.
  • Ýmsir aðrir þættir eru einnig metnir af Viðskiptablaðinu og Keldunni.
Tímabært að huga að haustverkunum

Tímabært að huga að haustverkunum

Það styttist í haustið og því er tímabært  fyrir stjórnir og eigendur húsfélaga að huga að helstu haustverkum og undirbúa hús og lóðir fyrir haust- og vetrarveðrin.

Húsfélög kunna að bera ábyrgð ef lausamunir, sem tengjast sameign eða lóð húsfélagsins, fjúka og valda tjóni. Það ætti því að vera fastur liður hjá stjórnum húsfélaga að huga að frágangi slíkra muna. Þar má meðal annars nefna útihúsgögn, grill, trampólín og önnur stærri leikföng eða lausamuni. Best er að koma þeim í skjól eða festa þá tryggilega áður en haustlægðirnar láta á sér kræla.

Þakrennur og niðurföll

Haustið er einnig góður tími til að huga að þakrennum og niðurföllum. Þegar tré og runnar fara að fella lauf getur safnast saman talsvert magn af laufblöðum, til viðbótar við sand, drullu og rusl, sem getur stíflað rennur og niðurföll og jafnvel leitt til vatnstjóns. Gott er því að ganga úr skugga um að rennur og niðurföll séu hrein og geti tekið við þeirri úrkomu sem fylgir haustinu. Með haustrigningum eykst einnig hætta á að vatn komist inn um ytra byrði húsa, glugga eða aðrar viðkvæmar leiðir. Verði vart við leka eða rakamerki er mikilvægt að bregðast strax við og grípa til viðeigandi ráðstafana til að lágmarka hugsanlegt tjón.

Hitavakt og annað haustviðhald

Með kólnandi veðri er rétt að huga að hitakerfum og öðrum atriðum sem hafa áhrif á orkunotkun og rekstur húsfélagsins. Eignaumsjón býður húsfélögum upp á mánaðarlegt eftirlit með notkun á heitu vatni, með það að markmiði að draga úr sóun, stuðla að skilvirkari orkunotkun og lægri rekstrarkostnaði. Þjónustan felur meðal annars í sér faglega skoðun í tæknirýmum húsa á hitagrindum og snjóbræðslukerfum, þannig að hægt sé að bregðast við ef eitthvað er ekki að virka sem skyldi.

Þegar farið er að kólna kemur einnig oft í ljós að hitastillingar á ofnum virka ekki sem skyldi. Pinnar í ofnlokum geta til dæmis fest sig og þá þarf að losa þá og liðka svo hitastýringin virki eðlilega. Haustið er jafnframt góður tími til að skoða þéttingar við glugga og útihurðir og ganga úr skugga um að hurðir og gluggar lokist vel. Þannig má draga úr óþarfa hitatapi og halda kuldanum úti þegar veturinn gengur í garð.

Hálkuvarnir og snjómokstur – ekki bíða eftir fyrsta snjónum

Loks er rétt að minna stjórnir húsfélaga á að huga tímanlega að hálkuvörnum og snjómokstri, ef samningar um slíka þjónustu eru ekki þegar fyrir hendi. Það er reynsla okkar hjá Eignaumsjón að margir vakni við vondan draum þegar fyrsti snjórinn fellur – og þá getur reynst erfitt að finna verktaka sem hefur tök á að taka að sér snjómokstur og söltun með skömmum fyrirvara. Því er betra að vera tímanlega í þessu en að bíða eftir fyrsta snjónum.

Til þjónustu reiðubúin

Þjónustuver Eignaumsjónar aðstoðar viðskiptavini við að afla hagstæðra tilboða í snjómokstur, söltun og aðra haust- og vetrartengda þjónustu fyrir hús- og rekstrarfélög. Hægt er að hafa samband við Þjónustuver Eignaumsjónar með því að senda erindi á thjonusta@eignaumsjon.is, nota netspjallið á eignaumsjon.is eða hringja í 585 4800 á skrifstofutíma.