Vorfundur 2026 fyrir stjórnir hús- og rekstrarfélaga hjá Eignaumsjón

Vorfundur 2026 fyrir stjórnir hús- og rekstrarfélaga hjá Eignaumsjón

Á hádegisfundi Eignaumsjónar í dag með stjórnendum hús- og rekstrarfélaga sem eru í þjónustu hjá fyrirtækinu var farið yfir hlutverk og ábyrgð stjórna hús- og rekstrarfélaga, þjónustu Eignaumsjónar og samstarfið fram undan.

Framkvæmdastjóri Eignaumsjónar, Daníel Árnason setti fundinn og bauð gesti velkomna, en alls mættu um 100 gestir, ríflega 60 í sal og hinir á Teams, á Vorfundinn, sem haldinn hefur verið undanfarin fjögur ár til upplýsingar fyrir nýjar stjórnir sem kosnar voru til starfa á nýlega afstöðnum aðalfundum.

Þjónusta og samskipti

Fyrstur á mælendaskrá var Gunnþór Steinar Jónsson, forstöðumaður þjónustusvið Eignaumsjónar, sem fór m.a.  yfir hlutverk og samskiptaleiðir stjórna við Eignaumsjón, sem er í raun skrifstofa húsfélagsins og sér um dagleg samskipti við félagsmenn, þjónustuaðila og banka, í samræmi við þá þjónustuleið sem viðkomandi félag er í.

Gunnþór kynnti einnig viðbótarþjónustu sem hús- og rekstrarfélögum standa til boða, s.s. Húsumsjón, Hitavaktina, þjónustu vegna rafhleðslumála og úttektir á öryggismálum og aðgangsstýringum o.fl. og svaraði fyrirspurnum úr sal. Sjá kynningu hér.

Hlutverk stjórnar – ákvarðanataka

Eignaumsjón og Húseigendafélagið gerðu nýlega með sér samkomulag um að beita sér saman fyrir hagsmunamálum eigenda fasteigna þegar við á. Sérlegur gestur fundarins var Jónína Þórdís Karlsdóttir, lögfræðingur frá Húseigendafélaginu, sem fór yfir hlutverk stjórna í fjöleignarhúsum og ákvarðanatöku. Var erindi Jónínu vel tekið og fékk hún ýmsar krefjandi lögfræðispurningar úr sal. Sjá kynningu hér.

Fjármál, öryggi og nýjungar í Húsbókinni

Ágústa Katrín Auðunsdóttir, forstöðumaður fjármálasviðs Eignaumsjónar, kynnti hvernig Eignaumsjón heldur utan um fjármál hús- og rekstrarfélaga. Hún fór bæði yfir reynslu, þekkingu og lög sem grundvalla verklag Eignaumsjónar þegar kemur að innheimtu, bókhaldi, uppgjöri, kostnaðarskiptingu, áætlanagerð og kostnaðarsamanburði/aðhaldi.

Ágústa fjallaði einnig um það sem gert hefur verið til að tryggja öryggi, s.s. með aðgangsstýringum, reglubundnu eftirliti og úttektum. Þá væri félagið með jákvæða eiginfjárstöðu og starfsábyrgðartryggingu til að geta mætt skakkaföllum. Þá hefði tæknisvið félagsins verið eflt umtalsvert á liðnum misserum, m.a. til að styrkja tæknilegar öryggislausnir, bæði vegna tölvu- og tæknibúnaðar, afritunar gagna og til að efla varnir gegn ytri árásum.

Þá kynnti forstöðumaður fjármálasviðs nýjungar sem eru á döfinni í upplýsingagjöf í Húsbókinni – mínum síðum, einkum til stjórnarmanna. Þá verður rauntímastaða bankareikninga aðgengileg stjórn á Húsbókinni, sömuleiðis reikningar húsfélagsins og á árinu á líka að klára að smíða samþykktarferli fyrir reikninga, sem stjórn getur þá afgreitt á  Húsbókinni.  Sjá kynningu hér.

Gagnlegar ábendingar

Ingibjörg Anna Björnsdóttir stýrði fundinum og Þór Gíslason sá um Teams-þátt fundarins. Í lokin var opnað fyrir fyrirspurnir og umræður og bárust ýmsar gagnlegar ábendingar, áður en fundarstjóri þakkaði gestum fyrir komuna og sleit fundi.