Vinna saman að hagsmunamálum eigenda fasteigna
Eignaumsjón og Húseigendafélagið hafa gert með sér samkomulag um samstarf og samvinnu og munu beita sér saman fyrir hagsmunamálum eigenda fasteigna þegar við á. Samkomulagið hefur þegar tekið gildi.
Auk þess að beita sér saman fyrir hagsmunamálum eigenda fasteigna þegar við á, nær samkomulagið einnig til eftirfarandi þátta:
- Eignaumsjón fær aðgang að lögfræðingum Húseigendafélagsins fyrir viðskiptavini Eignaumsjónar, skv. gjaldskrá Húseigendafélagsins.
- Húseigendafélagið leigir fundasali hjá Eignaumsjón á hagstæðu verði og Eignaumsjón fær aðgang að fundarstjórum sem Húseigendafélagið hefur í starfi, eftir nánara samkomulagi hverju sinni.
- Eignaumsjón getur boðið viðskiptavinum sínum upp á námskeið Húseigendafélagsins gegn hagstæðu gjaldi og fær aðgang að eldra fræðsluefni og greinaskrifum Húseigendafélagsins til úrvinnslu.
Húseigendafélagið, sem er yfir 100 ára gamalt og telur um 10.000 félagsmenn, hefur í áratugi barist fyrir bættum hag félagsmanna sinna, einkum með bættri löggjöf, og sinnt fræðslu til félagsmanna og almennings.
Eignaumsjón er umsvifamesta fyrirtæki landsins í þjónustu við hús- og rekstrarfélög og hefur verið brautryðjandi í þessari þjónustu hér á landi í 25 ár. Í dag hefur félagið umsjón með daglegum rekstri ríflega 1.350 félaga með hátt í 32.000 eignarhlutum.
Að lokum má til gamans geta þess að Húseigendafélagið var einn af stofnendum Eignaumsjónar árið 2000, en stofnendurnir höfðu allir reynslu af að þjóna eigendum fasteigna og höfðu áður rekið Ráðgjafarþjónustu húsfélaga, Húsráð, um nokkurra ára skeið.