Bank í ofnum, fastir ofnkranar og fleira
Almennt er talið að um 90 % af heitu vatni sem heimili á hitaveitusvæðum nota fari til húshitunar. Heitavatnsnotkun eykst eðlilega þegar kólnar í veðri og þá verður fólk líka oft vart við „bank“ í ofnum og að þeir hitna ekki eðlilega.
Þegar heyrist bank í ofnum er það oft vegna lofts inni í ofnunum og þá virka þeir ekki sem skyldi. Þá þarf að tappa loftinu af ofnunum með því að opna tappa sem er oftast ofarlega á ofnunum. Það er gert með þar til gerðum ofnalykli og gott er að hafa ílát undir þegar þetta er gert því stundum koma vatnsdropar með loftinu.
Oft eru ofnar ekki að hitna þó að stillingum á ofnkrönunum sé breytt. Það getur stafað af því að pinninn í hitastillinum er fastur. Þá er hægt að prófa að taka hitastillinn af krananum (toga upp eða toga að sér) og ýta aðeins við pinnanum til að liðka hann, áður en hitastillinum er smellt aftur á kranann. Dugi þetta ekki til er vissara að leita til pípara.
Ofnar á bakvið sófa eða gardínur ná ekki að hita rýmið í heild, heldur hita bara aflokað svæði. Ofnar eiga almennt að vera heitir að ofan og við líkamshita neðst. Þá nýta þeir varmann vel. Að jafnaði er hæfilegt að stilla ofna þá á 2-3. Ef stillt er á hæsta gildi á ofninn að snarhitna uppi, en vera kaldari að neðan. Ef ofn er mjög heitur að neðan er væntanlega sírennsli í gegnum lokann og varmatap. Þá þarf að kalla til pípara til að skipta um loka eða ventil í ofnlokanum.
Ef þið þurfið aðstoð við að ná í pípara er hægt að hafa samband við þjónustuverið okkar í netspjalli, senda póst á thjonusta@eignaumsjon.is eða hringja í síma 585-4800.