Aðgengi að fundarsölum Eignaumsjónar

Aðgengi að fundarsölum Eignaumsjónar

Aðalfundir 2026 fara vel af stað og frá 5. janúar hefur Eignaumsjón þegar haldið um 40 af þeim 1.220 aðalfundum sem eru á dagskrá fram að lokum maímánaðar. Meirihluti þessara funda verður haldinn í nýlegum fundarsölum félagsins á Suðurlandsbraut 30 í Reykjavík og því hefur verið búin til stutt vídeóklippa til að sýna aðgengi að fundaraðstöðunni og bílastæðum.

Fundarsalir Eignaumsjónar á 2. hæð í bakhúsinu á Suðurlandsbraut 30 í Reykjavík verða meginvettvangur aðalfundanna 2026. Þar eru fimm fundarsalir sem taka frá 12 til 100 manns í sæti. Fundir verða að jafnaði kl. 17 og 19 mánudaga til fimmtudaga og kl. 10, 12 og 14 á laugardögum. Hér er sýnt hvar er farið inn á bílastæðin á baklóðinni og gengið inn í fundaraðstöðuna á suðurhlið bakhússins frá efra bílastæðinu.

Fundarsalir Eignaumsjónar í Hafnarfirði

Nú er einnig boðið upp á að halda aðalfundi í fyrrum húsnæði Rekstrarumsjónar á 2. hæð í Bæjarhrauni 6 í Hafnarfirði, á sömu dögum og tímum og á Suðurlandsbrautinni. Þar eru tveir fundarsalir sem taka 25 og 40 manns í sæti. Hægt er að skoða staðsetningu húsnæðisins í Hafnarfirði hér.

Þá má nefna að áætlað er að halda um þriðjung aðalfunda á þessari fundatíð í sameignum húsfélaga og/eða sölum í þeirra nærumhverfi, t.d. skólum, hjá íþróttafélögum og safnaðarheimilum.

Ertu að mæta á aðalfund?

Á forsíðu heimasíðu Eignaumsjónar geta áhugasamir fundið hlekk þar sem á einum stað er hægt að skoða aðkomu að fundarsölum Eignaumsjónar, hvaða mál eru almennt til afgreiðslu á aðalfundum, sækja umboð ef viðkomandi hefur ekki tök á að mæta á aðalfund en vill senda fulltrúa fyrir sig – og fara inn á Húsbók viðkomandi húsfélags þar sem fundargögn eru aðgengileg í aðdraganda aðalfundar.

Ertu að leita að fundaraðstöðu miðsvæðis í Reykjavík?

Ertu að leita að fundaraðstöðu miðsvæðis í Reykjavík?

Funda- og ráðstefnusalir eru til leigu hjá Eignaumsjón á Suðurlandsbraut 30, miðsvæðis í Reykjavík. Stærsti salurinn tekur allt að 120 manns í sæti, sá næst stærsti er fyrir allt að 50 manns, tveir salir taka 25 manns í sæti hvort og fimmti salurinn er 12-14  manna. Salirnir henta vel fyrir fundi og ráðstefnur, fyrirlestra, námskeið, kennslu og fleira.

Salirnir eru á 2. hæð í bakhúsinu á Suðurlandsbraut 30. Inngangur í salina er um merktar dyr á suðurhlið bakhússins frá efra bílastæðinu, þar sem eru næg stæði fyrir fundargesti, sem og á neðra bílastæðinu. Gott aðgengi og þægileg aðkoma er fyrir jafnt gangandi, hjólandi sem akandi fundargesti að Suðurlandsbraut 30. Strætóstoppistöðvar eru einnig framan við húsið, beggja vegna Suðurlandsbrautar.

Til leigu alla daga vikunnar

Salirnir eru til útleigu alla daga vikunnar, bæði að degi til og kvöldi. Leigutími er að jafnaði 2 klst. Fast tímagjald er innheimt fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram leigutíma.

  • Innifalið í leigu er; fundarsalur, stólar, borð fyrir fundarstjóra og fráleggsborð, afnot af upplýsingaskjá og borðtölvu.
  • Þráðlaust net, upplýsingaskjáir og tölvu- og fjarfundarbúnaður er í öllum sölunum. Í stóru sölunum eru 98 tommu upplýsingaskjáir (led) sem geta tengst fartölvu og Yealink fundarsalalausn. Ef óskað er eftir að nota fjarfundarbúnað þarf að taka það fram þegar gengið er frá salarleigu og fær leigutaki þá leiðbeiningar um virkjun búnaðar. Greitt er sérstaklega fyrir afnot af fjarfundarbúnaði.
  • Gott aðgengi er að salernisaðstöðu á hæðinni og hjólastólaaðgengi er til staðar.
  • Hægt er að fá kaffiuppáhelling milli kl. 8-17 á virkum dögum. Sjálfsali með drykkjum og fleiru er til staðar.
  • Við skil er miðað við að frágangur í fundarsölum sé með sama hætti og tekið var við þeim og umgengi þrifaleg.

Nánari upplýsingar eru veittar hjá Eignaumsjón á skrifstofutíma, í síma 585-4800 eða í netspjalli. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið thjonusta@eignaumsjon.is.

Sjá frekari upplýsingar á salir.is og fleiri myndir.

Ríflega þúsund fundir á döfinni fram á vor

Ríflega þúsund fundir á döfinni fram á vor

Aðalfundir hjá Eignaumsjón fara vel af stað og frá 8. janúar hefur félagið þegar haldið 55 af þeim 923 aðalfundum sem eru þegar komnir á dagskrá fram í miðjan maí. Gert er ráð fyrir að á tímabilinu bætist við húsfundir og stofnfundir, þannig að heildarfjöldi funda verði ríflega þúsund.

Fjölgun funda má rekja til mikillar fjölgunar viðskiptavina  hjá Eignaumsjón á liðnu ári, bæði vegna kaupa á Fjöleignum sem og vegna almennrar fjölgunar.

Ný og glæsileg fundaraðstaða

Til að mæta þessari aukningu hefur Eignaumsjón tekið í notkun nýja fundaraðstöðu á Suðurlandsbraut 30. Nýju fundarsalirnir eru staðsettir í bakhúsinu á annarri hæð þar sem eru fimm vandaðir fundarsalar með aðstöðu fyrir allt að 120 manna fundi. Reiknað er með að 80% af fundum á yfirstandandi tímabili verði haldnir í þessari nýju fundaraðstöðu.

Aðkoma að fundarsölunum er frá efra bílastæðinu sunnan við húsið og inngangur á suðurhlið bakhússins (sjá mynd).

Aðalfundir líka á laugardögum

Auk hefðbundinna fundardaga frá mánudögum til fimmtudaga, bætast laugardagar við sem aðalfundadagar seinnipartinn í janúar. Jafnframt hafa fundartímar breyst og eru fundir haldnir kl. 17 og 19 á virkum dögum. Á laugardögum eru nú líka þrír fundartímar í boði, kl. 10, 12 og 14. Á virkum dögum er því hægt að halda allt að 10 fundi á hverju kvöldi og allt að 15 fundi á laugardögum. Til að mæta fjölgun funda hefur Eignaumsjón einnig fjölgað fundarstjórum og sjá nú 33 fundarstjórar um framkvæmd funda hjá félaginu.