Nýtt starfsfólk hjá Eignaumsjón

Nýtt starfsfólk hjá Eignaumsjón

Við kynnum nýtt starfsfólk sem er nýlega komið til starfa hjá Eignaumsjón til að  mæta sívaxandi umsvifum í starfsemi fyrirtækisins. Þetta eru þau Gyða Björg Jóhannsdóttir og Ormur Karlsson á þjónustusviði og Esther Ýr Kjartansdóttir, Sara Rós Waltersdóttir og Sveinn Ingi Einarsson á fjármálasviði.

Sveinn Ingi Einarsson starfar í fjármálateymi fjármálasviðs Eignaumsjónar. Sveinn er með BS gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri og meistaragráðu í fjármálum frá Háskóla Íslands. Sveinn starfaði hjá Origo, áður en hann kom til starfa hjá Eignaumsjón. Þar áður starfaði hann hjá Ls Retail og sem viðskiptastjóri hjá Símanum.

Sara Rós Waltersdóttir starfar í innheimtuteymi fjármálasviðs Eignaumsjónar. Hún er með BS gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Stokkhólmi og hefur m.a. unnið sem fjármála- og skuldaráðgjafi í Stokkhólmi, innheimtufulltrúi hjá Skattinum í Svíþjóð, fulltrúi fógeta í Stokkhólmi og viðskiptastjóri hjá Intrum í Stokkhólmi.

Esther Ýr Kjartansdóttir starfar í gjaldkerateymi fjármálasviðs Eignaumsjónar. Hún hefur lagt stund á íþrótta- og heilsufræði við Háskóla Íslands og er með stúdentspróf frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. Esther starfaði hjá fyrirtækinu SalesCloud/Noona Iceland, áður en hún kom til starfa hjá Eignaumsjón. Þar áður starfaði hún sem þjónustufulltrúi/markaðsfulltrúi hjá Alvotech/Alvogen.

Ormur Karlsson er fulltrúi á þjónustusviði Eignaumsjónar. Ormur starfaði hjá Icelandair, m.a. við þjónustutengd störf og þjónustueftirlit, áður en hann kom til Eignaumsjónar. Þar á undan vann hann m.a. hjá Símanum sem sérfræðingur í fræðslu til viðskiptavina og viðskiptavernd. Ormur er með próf í markaðs- og sölumálum frá Viðskipta- og tölvuskólanum og stundaði nám á hagfræðibraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti.

Gyða Björg Jóhannsdóttir er fulltrúi á þjónustusviði Eignaumsjónar. Hún starfaði í 21 ár hjá Símanum, áður en hún kom til Eignaumsjónar, bæði sem þjónustufulltrúi í þjónustuveri og í reikningaþjónustu og síðar sem ráðgjafi og skráningarfulltrúi á fyrirtækjasviði. Gyða er með stúdentspróf frá Kvennaskólanum í Reykjavík og hefur einnig lokið margskonar starfstengdum námskeiðum.

Um Eignaumsjón

Eignaumsjón býr að 25 ára þekkingu og reynslu í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög atvinnuhúsnæðis og er umsvifamesta fyrirtæki landsins á þessu sviði. Áhersla er lögð á hlutlausa nálgun, öryggi, gæðamál og skýra verkferla til að gera rekstur fasteigna markvissari og ódýrari, auka upplýsingaflæði til eigenda og auðvelda störf stjórna.