Eru brunavarnir í lagi í þínu húsfélagi?

Eru brunavarnir í lagi í þínu húsfélagi?

Eldvarnarátak Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna stendur nú yfir 31 árið í röð, þar sem slökkviliðsmenn um allt land heimsækja grunnskóla og fræða átta ára nemendur um eldvarnir, mikilvægi reykskynjara og flóttaleiðir. Markmið átaksins er vekja athygli á eldvörnum og öryggi á heimilum. Sem fyrr er höfuðáhersla lögð á mikilvægi reykskynjara.

Brunavarnir eru lykilatriði í öryggi allra fjöleignarhúsa og mikilvægt að huga stöðugt að brunavörnum til að stuðla að öryggi íbúa. Mörg dæmi eru um að aukin hætta hafi skapast í eldsvoðum, bæði vegna þess að öryggismálum hafi ekki verið sinnt sem skyldi og einnig vegna slæmrar umgengni í sameign sem torveldaði umferð slökkviliðsmanna og annarra.

Eldvarnir í forgangi

Í húsfélögum sem eru í Húsumsjón hjá Eignaumsjón er farið reglulega yfir eldvarnir viðkomandi húsnæðis í hverri heimsókn húsumsjónarmanna, samkvæmt lista frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Þetta er á meðal þess sem er kannað:

  • Eru flóttaleiðir greiðfærar?
  • Eru útljós sílogandi og sýnileg?
  • Eru dyr og björgunarop opnanleg innan frá án lykils eða verkfæra?
  • Eru slökkvitæki, eldvarnateppi og brunaslöngur aðgengileg og í lagi?
  • Lokast brunadyr hindrunarlaust og eru pumpur virkar?
  • Sýnir brunaviðvörunarkerfi „í lagi“ og eru stakir reykskynjarar virkir?
  • Er umgengni góð, ruslsöfnun í lágmarki innan húss og utan og allt umfram rusl fjarlægt?

Jafnframt er alltaf minnt á að slökkvitæki á ekki að nota sem hurðastoppara. Þau eiga alltaf að vera á réttum stöðum, tilbúin til notkunar ef til eldsvoða kemur!

Tímabil kertaljósa að ganga í garð

Í lokin er líka rétt að minna á að nú styttist í að aðventan gangi í garð. Þá stinga margir  jólaseríum í samband, bæði utan- og innandyra og kveikja á kertum. Mikilvægt er því að fara vel yfir ástandið á gömlum fjöltengjum og jólaseríum og nota bara það sem er í góðu lagi. Það þarf líka að fylgjast vel með kertaskreytingum og passa vel upp á að kertaljós séu ekki nálægt gluggatjöldum eða öðru sem kviknað getur í.

Nýtt starfsfólk hjá Eignaumsjón

Nýtt starfsfólk hjá Eignaumsjón

Hulda Sjöfn Kristinsdóttir, Sigurður Lárus Fossberg og Valgerður Ingólfsdóttir komu til starfa hjá  Eignaumsjónar fyrr á þessu ári. Hulda Sjöfn er innheimtufulltrúi á fjármálasviði, Sigurður sinnir húsumsjón, ráðgjöf um brunavarnir og fleiri tilfallandi verkefnum á þjónustusviði og Valgerður er bókhaldsfulltrúi á fjármálasviði Eignaumsjónar.

Valgerður er með B.S. próf í viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri og starfaði sem bókari hjá Truenorth, áður en hún kom til starfa hjá Eignaumsjón. Þar áður vann hún m.a. á fjármálasviði 66°Norður við bókhald, uppgjör og afstemmingar. Valgerður hefur einnig unnið við sölustörf, sem flugliði hjá Icelandair og leiðbeinandi við leikskóla.

Áður en Sigurður hóf störf hjá Eignaumsjón var hann slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður í 35 ár; fyrst hjá Slökkviliði Akureyrar og síðast hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Samhliða slökkviliðsstarfinu hefur Sigurður sinnt ýmiskonar iðnaðarvinnu, akstri og vélavinnu. Hann er með sveinsbréf í málaraiðn og slökkviliðs- og sjúkraflutningsmenntun frá Brunamálaskóla Íslands og Sjúkraflutningaskóla Íslands ásamt viðbótarmenntun í stjórnun og sjúkraflutningum frá  Svíþjóð og Bandaríkjunum.  Sigurður sat í stjórn Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og í skóla- og fagráði Brunamálaskólans, þar sem hann hefur einnig sinnt kennslu.

Hulda var gjaldkeri hjá Bílaumboðinu Heklu í sex ár, áður en hún kom til starfa hjá Eignaumsjón. Hún hefur einnig unnið sem þjónustu- og innheimtufulltrúi hjá Öryggismiðstöð Íslands og þar áður Tæknivali. Hulda er með stúdentspróf frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. Hún lærði einnig til sjúkraliða við FB og starfaði við það í rúman áratug á Sjúkrahúsi Reykjavíkur/Landspítalanum Háskólasjúkrahúsi. Hún hefur einnig m.a. lagt stund á tölvunám við Iðnskólann í Reykjavík og tækniteiknun, sem og verkefnastjórn/leiðtogaþjálfun hjá Endurmenntun HÍ.

Um Eignaumsjón

Eignaumsjón býr að 24 ára þekkingu og reynslu í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög atvinnuhúsnæðis. Félagið þjónar í dag  1.200 hús- og rekstrarfélögum með hátt í 25.000 íbúðum/eignum. Áhersla er lögð á hlutlausa nálgun, öryggi, gæðamál og skýra verkferla til að gera rekstur fasteigna markvissari og ódýrari, auka upplýsingaflæði til eigenda og auðvelda störf stjórna.

Tæknisviði Eignaumsjónar vex fiskur um hrygg

Tæknisviði Eignaumsjónar vex fiskur um hrygg

Nýlega var gengið frá ráðningu tveggja nýrra sérfræðinga til Eignaumsjónar og starfa nú fjórir tölvunarfræðingar hjá tæknisviði félagsins, sem komið var á laggirnar í fyrra í tengslum við skiplagsbreytingar. Með þessum ráðningum er verið að efla enn frekar tæknigetu fyrirtækisins í öryggismálum og rafrænum tæknilausnum. Tæknisviðinu er ætlað að leiða stafræna vegferð Eignaumsjónar, sem hefur það að markmiði að gera bæði starfsfólki og viðskiptavinum kleift að vinna rafrænt með öll gögn sem tengjast þjónustu og rekstri fyrirtækisins.

Sigurður Gauti Hauksson, sem hefur unnið lengi að tölvu- og tæknimálum fyrir Eignaumsjón, hefur nú verið ráðinn sviðsstjóri tæknisviðs Eignaumsjónar. Með honum kemur líka til starfa Snæbjörn Halldór Snæbjörnsson, sem mun sinna hugbúnaðarþróun. Aðrir starfsmenn tæknisviðsins eru Emil Hilmarsson, öryggis- og upplýsingatæknistjóri og Sævar Þór Sigfússon, sem annast bæði hugbúnaðargerð og tækniþjónustu.

Úr pappír í starfrænt umhverfi

„Eignaumsjón hefur unnið markvisst að því í allmörg ár að færa starfsemi sína yfir í starfrænt umhverfi,“ segir sviðsstjóri tæknisviðsins, Sigurður Gauti Hauksson. Hann bendir á að þörfin sé brýn þar sem félagið er með yfir 900 hús- og rekstrarfélög í þjónustu, með um 20 þúsund fasteignum/einingum.

„Það gefur auga leið að mikið hagræði er að geta sent yfir 20 þúsund kröfur út rafrænt í hverjum mánuði ásamt um sjöþúsund gjaldareikningum í stað þess að senda þetta allt út á pappír, með tilheyrandi prent- og sendingarkostnaði.“

Öryggi gagna, rekstur og þróun netkerfa

Efling tæknisviðs Eignaumsjónar er rökrétt skref á þeirri braut sem fyrirtækið hefur verið að feta í rekstri upplýsingakerfa sinna. Meginverkefni tæknisviðsins er annars vegar að tryggja öryggi allra gagna og hins vegar að þróa áfram netkerfi fyrirtækisins og sjá til þess að rekstur þeirra gangi snurðulaust fyrir sig.

„Svo til öll starfsemi okkar byggist orðið á tölvutækni og stefnan til framtíðar er að vinna allt rafrænt,“ segir Sigurður Gauti. Hann nefnir rafræna fundi, rafrænar undirskriftir og rafrænt greiðsluuppgjör sem dæmi um áhugaverða áfanga sem Eignaumsjón hefur náð á undanförnum misserum og árum , að ógleymdri Húsbókinni, sem tekin var í gagnið árið 2020 á 20 ára afmælisári fyrirtækisins.

„Í upphafi var töluvert mikið lagt í Húsbókina, sem er rafræn upplýsingagátt fyrir viðskiptavini, en við erum stöðugt að vinna að uppfærslum og viðbótum til að bæta enn frekar upplifun viðskiptavina okkar,“ segir sviðsstjóri tæknisviðsins og klikkir út með að næsta stóra skrefið þar sé að tryggja alrafræna afhendingu allra gagna yfir í Húsbókina.

Sævar Þór nýr starfsmaður á upplýsingatæknisviði

Sævar Þór nýr starfsmaður á upplýsingatæknisviði

Sævar Þór Sigfússon er nýr starfsmaður á upplýsingatæknisviði, nýju stoðsviði sem hefur umsjón með tölvutæknimálum Eignaumsjónar.

Sævar er menntaður tölvunarfræðingur frá Háskóla Íslands og kemur til Eignaumsjónar frá Advania, þar sem hann starfaði sem hugbúnaðarsérfræðingur. Þar áður starfaði hann sem sérfræðingur í aðgangsstýringum hjá Origo.

Hjá Eignaumsjón vinnur Sævar við vöruhús gagna, þ. á m. þróun og umsjón hugbúnaðar, tölfræði og nýsköpun í framsetningu gagna svo sem fyrir Húsbókina – mínar síður viðskiptavina, uppfærslur á vél- og tæknibúnaði, kennslu o.fl. tengt tölvutækni.

Um Eignaumsjón

Eignaumsjón hf. býr að 23 ára þekkingu og reynslu í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög atvinnuhúsnæðis. Félagið hefur umsjón með daglegum rekstri rúmlega 900 virkra félaga með tæplega 19.300 fasteignum og er umsvifamesta fyrirtæki landsins á þessu sviði. Áhersla er lögð á hlutlausa nálgun, öryggi, gæðamál og skýra verkferla með það að markmiði að gera rekstur fasteigna markvissari og ódýrari, auka upplýsingaflæði til eigenda og auðvelda störf stjórna.

Forstöðumaður þjónustusviðs Eignaumsjónar

Forstöðumaður þjónustusviðs Eignaumsjónar

Eignaumsjón óskar eftir að ráða áhugasaman og lífsglaðan einstakling, sem hefur gaman af samskiptum í síbreytilegu og lifandi starfsumhverfi með góðu samstarfsfólki, í starf forstöðumanns þjónustusviðs fyrirtækisins. Umsóknarfrestur er til og með 12. júní 2023.

Eignaumsjón er leiðandi fyrirtæki í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög og þjónustusviðið er eitt af meginsviðum fyrirtækisins og annast daglega þjónustu til viðskiptavina. Undir þjónustusviðið falla þjónustuver, fundateymi og ráðgjafar við rekstur fasteigna.

Helstu viðfangsefni og ábyrgð

Forstöðumaður þjónustusviðs situr í stjórnendateymi fyrirtækisins, ber ábyrgð á mannauðsmálum og verkefnum sviðsins og að þjónustan sé veitt með framúrskarandi hætti. Forstöðumaður hefur umsjón með gæðamálum og gerð verkferla á þjónustusviði, tekur þátt í þróun starfrænnar þjónustu og upplýsingakerfis fyrirtækisins og er leiðandi í að stuðla að hvetjandi, stöðugu og jákvæðu starfsumhverfi, ásamt því að taka þátt í sölu- og markaðsstarfi fyrirtækisins.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, s.s. viðskipta- eða verkfræðimenntun
  • Reynsla og góð færni í upplýsingatækni
  • Haldgóð reynsla af rekstri, samningagerð og stjórnun þjónustudeilda er kostur
  • Fagmennska og framúrskarandi þjónustulund
  • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
  • Góð greiningarhæfni og gott vald á íslensku og ensku

Umsóknarfrestur til 12. júní 2023

Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið en umsóknarfrestur er til og með 12. júní nk. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað.

Umsókn skal fylla út á www.intellecta.is og óskað er eftir að umsókn fylgi greinargóð ferilská og kynningarbréf, þar sem greint er frá ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.

Nánari upplýsingar veita Hafdís Ósk Pétursdóttir (hafdis@intellecta.is) og Sigríður Svava Sandholt (sigridur@intellecta.is) í síma 511 1225.