Óskum HS Orku til hamingju með stækkun Svartsengis

Óskum HS Orku til hamingju með stækkun Svartsengis

Með gangsetningu sjöunda áfanga Orkuversins Svartsengis þann 1. desember sl. vex rafmagnsframleiðsla þar um þriðjung, úr 63 í 85 megawött. Eignaumsjón óskar HS Orku til hamingju með þennan merka áfanga en um átta ár eru nú frá því að fyrirtækin gerðu með sér  samkomulag um raforkuviðskipti, sem hefur skilað viðskiptavinum Eignaumsjónar umtalsverðum afslætti af smásöluverði við kaup af raforku frá HS Orku.

Nýja orkuverið, Orkuver 7, leysir af hólmi tvö af eldri orkuverum HS Orku í Svartsengi, auk þess sem framkvæmdin felur í sér umtalsverðar endurbætur á ýmsum búnaði sem tengist heitavatnsframleiðslu fyrirtækisins. Stækkunin eykur framleiðslugetu á raforku í Svartsengi um allt að þriðjung en framleiðslugetan er nú um 63MW, að því er fram kemur á heimasíðu HS Orku, og Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku, er að vonum ánægður:

„Í ljósi náttúruhamfaranna sem gengið hafa yfir Reykjanes á framkvæmdatímanum, er það einstakt afrek að byggja þessa nýjustu virkjun Íslands þannig að allar áætlanir hafi staðist. Allir sem að verkefninu hafa komið eiga mikið hrós skilið, jafnt verktakar og ráðgjafar sem starfsfólk HS Orku.“ Sjá nánari umfjöllun í frétt á heimasíðu HS Orku.

Bestu kjör á markaði fyrir viðskiptavini Eignaumsjónar

Með samningi sínum við HS Orku getur Eignaumsjón boðið viðskiptavinum sínum upp á bestu kjör á rafmagni á markaði. Afsláttarkjör Eignaumsjónar hjá HS orku gilda um kaup á almennri, óskerðanlegri raforku en ná ekki til raforkuflutnings eða mælagjalds. Afsláttarkjörin gilda fyrir húsfélög og rekstrarfélög sem eru í þjónustu hjá Eignaumsjón. Afsláttarkjörin standa einnig til boða öllum eigendum fasteigna í húsfélögum sem eru í þjónustu hjá Eignaumsjón og eigendur/íbúar, sem vilja nýta sér afsláttarkjörin, geta skráð sig í viðskipti við HS Orku á Húsbókinni, mínum síðum eigenda á www.eignaumsjon.is.

Í ljósi verðhækkana á raforku undanfarið, er ljóst að það er ávinningur fyrir viðskiptavini  Eignaumsjónar að nýta sér þessi kjör.