Jun 25, 2026 | Fréttir
Ein af grunnforsendum góðs reksturs húsfélaga er að hver eigandi greiði sinn réttmæta hlut af sameiginlegum kostnaði samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu. Til að tryggja það kveða fjöleignarhúsalög á um að árlega skuli gera rekstraruppgjör hússjóðs og jafna frávik milli áætlaðs kostnaðar og raunútgjalda.
„Rekstraruppgjörið er mikilvægt til að tryggja að kostnaður skiptist með réttum hætti milli eigenda og að enginn greiði meira eða minna en honum ber samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu,“ segir Ágústa Katrín Auðunsdóttir, forstöðumaður fjármálasviðs Eignaumsjónar.
Húsgjöld byggja á rekstrar- og framkvæmdaáætlun sem samþykkt er á aðalfundi húsfélags. Þar sem um áætlun er að ræða verða nær alltaf einhver frávik milli innheimtra húsgjalda og raunverulegs kostnaðar. Samkvæmt 49. gr. fjöleignarhúsalaga skal þessi munur jafnaður við árlegt heildaruppgjör reikninga húsfélagsins.
Passað upp á eigið fé hverrar eignar
Eignaumsjón sérhæfir sig í rekstrar- og kostnaðaruppgjöri húsfélaga. Með uppgjörinu kemur fram hvort eigandi hafi greitt meira eða minna en honum bar á árinu og hvort inneign eða skuld hafi myndast gagnvart hússjóðnum.
„Með uppgjörinu sjá eigendur skýrt hver staða þeirra er gagnvart húsfélaginu. Það stuðlar að gagnsæi og eykur traust á rekstri húsfélagsins,“ segir Ágústa.
Jafnframt er haldið utan um eigið fé hverrar eignar í bókhaldi húsfélagsins. Þannig er tryggt að hver íbúð eða atvinnueining greiði nákvæmlega þann kostnað sem henni ber og að fjármunir einstakra deilda eða stigaganga nýtist eingöngu þeim sem eiga rétt á þeim.
Rekstraruppgjör er lagt fram á aðalfundi húsfélags. Að fundi loknum er uppgjörið jafnað þannig að eigendur sem skulda greiða mismuninn, en þeir sem eiga inneign fá hana jafnaða á móti húsgjöldum.
Tryggir gagnsæi og traustan rekstur
Að sögn Ágústu verður rekstur húsfélaga jafnan flóknari eftir því sem eignirnar eru stærri og fjölbreyttari. Í minni húsfélögum sé fyrst og fremst verið að halda utan um rekstur sameignar sem skiptist á alla eigendur, en í stærri og flóknari félögum þurfi einnig að halda utan um sameignir sem aðeins tilheyra ákveðnum deildum eða stigagöngum.
„Meginmarkmiðið er samt alltaf það sama; að halda utan um fjármuni hvers eignarhluta með skýrum hætti og tryggja rétta kostnaðarskiptingu,“ segir Ágústa og áréttar að rekstraruppgjör sé því mun meira en formlega lagaskylda.
Jun 19, 2026 | Fréttir, Greinar
Íbúar við Hrólfsskálamel á Seltjarnarnesi hafa eignast nýjan og óvenjulegan samstarfsmann. Hann kvartar aldrei, biður ekki um kaffitíma og vinnur allan sólarhringinn ef því er að skipta. Nafnið hans er „Robbi“ og hann er slátturóbóti.
Vorið 2025 ákvað Lóðar- og bílageymslufélag Hrólfsskálamels 1–18 að stíga inn í framtíðina og fjárfesta í slátturóbót fyrir sameiginlegar grasflatir húsanna við Hrólfsskálamel 1–5, 2–8 og 10–18. Áður hafði verið keypt sláttuþjónusta en eftir nokkrar umræður á aðalfundi var ákveðið að prófa nýja lausn.
Ánægja með störf Robba þegar hann slær
Fljótlega eftir að Robbi hóf störf vakti hann mikla athygli meðal íbúa. Sérstaklega virðast karlarnir í húsunum hafa tekið nýja starfsmanninum opnum örmum. Ekki er óalgengt að sjá þá á svölunum sínum með kaffibolla í hönd, fylgjast grannt með ferðalagi hans um lóðina og ræða hvort hann sé á réttri leið eða hvort hann hafi tekið aðeins of skarpa beygju við næsta runna.
„Þegar hann slær, er almenn ánægja með störf hans,“ segir Ingimar Sigurðsson, formaður félagsins. Hann viðurkennir þó að ekki hafi allt gengið áfallalaust. Stundum hefur Robbi dottið úr sambandi eða ratað út fyrir skilgreint starfssvæði sitt og þá stöðvast vinnan þar til einhver tekur eftir því. „Slík stopp uppgötvast ekki endilega strax og því getur dýrmætur sláttutími farið forgörðum,“ bætir Ingimar við. Þrátt fyrir þessar áskoranir telur formaðurinn að þessi fjárfesting hafi verið rétt ákvörðun. Grasflatirnar eru nú nær alltaf snyrtilegar og nýslegnar, enda vinnur Robbi þegar flestir aðrir sofa.
Heildarniðurstaðan er jákvæð
Á aðalfundi félagsins árið 2026 kom fram að reynslan af róbótanum væri bæði góð og slæm, en þegar upp væri staðið væri heildarniðurstaðan jákvæð. Sérstaklega var bent á að grasflatirnar hefðu verið sérlega fallegar þegar slátturinn gekk samkvæmt áætlun.
Ingimar segir að húsfélagið myndi aldrei vilja fara aftur í gamla fyrirkomulagið. „Við myndum aldrei skipta honum út fyrir gamla kerfið,“ segir hann ákveðinn. Hann á einnig nokkur góð ráð handa þeim sem eru að íhuga sambærileg kaup:
- Slátturóbóti getur borgað sig upp á um tveimur árum.
- Flóknar lóðir krefjast góðra senda eða leiðslna.
- Einhver þarf að fylgjast með honum af og til.
- Lóðin verður mun snyrtilegri þar sem slátturinn er stöðugur.
Robbi, sem er af gerðinni Husqvarna AM430X NERA, hefur þannig ekki aðeins breytt umhirðu grasflatanna heldur einnig skapað nýtt áhugamál fyrir suma íbúana. Hvort sem það telst til eftirlits, tækniaðdáunar eða einfaldlega skemmtunar, þá hefur slátturóbótinn sannarlega skapað sér sess í hverfislífinu.
Og þegar sumarsólin skín yfir Hrólfsskálamelinn má sjá vaktmenn á svölunum að fylgjast með hvort allt sé ekki örugglega í lagi hjá nýjasta og duglegasta starfsmanni húsfélagsins.
Jun 4, 2026 | Fréttir
Samningar hafa tekist við Sjóvá tryggingar um að húsfélög sem eru í Húsumsjón hjá Eignaumsjón njóti sérstakra afsláttarkjara af fasteignatryggingum hjá Sjóvá.
Húsumsjón er sérþjónusta fyrir hús- og atvinnufélög sem tryggir reglubundið eftirlit og umsjón með sameign fasteignar, stuðlar að lægri viðhaldskostnaði og sér til þess að ásýnd viðkomandi fasteignar verði eins og best er á kosið.
Allt að 10% afsláttur af tryggingum
Samkvæmt samkomulaginu veitir Sjóvá allt að 10% afslátt af húseigendatryggingum fyrir viðskiptavini Eignaumsjónar sem eru í Húsumsjón og tryggja hjá félaginu, en endanleg afsláttarkjör ráðast þó af mati Sjóvá, þar sem horf er til aldurs fasteignar, tjónasögu og fleiri þátta.
„Við hjá Sjóvá leggjum mikla áherslu á forvarnir og lausnir sem stuðla að minni áhættu og betri vernd eigna. Húsumsjón Eignaumsjónar er gott dæmi um þjónustu sem styður við markvissari rekstur fasteigna, reglulegt eftirlit og betra viðhald. Með þessu samstarfi viljum við umbuna þeim húsfélögum sem leggja áherslu á faglega umsýslu og stuðla þannig að auknu öryggi og minni líkum á tjónum til lengri tíma,“ segir Heiður Huld Hreiðarsdóttir, forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar hjá Sjóvá.
Húsumsjón – enn öflugri heildarlausn
„Það eru bráðum 10 ár frá því við byrjuðum að bjóða stærri húsfélögum upp á þessa sérþjónustu og þessi samningur undirstrikar það sem við höfum sagt frá upphafi: Markviss umsjón, reglulegt eftirlit og fagleg þjónusta dregur úr áhættu og stuðlar að öruggari rekstri sameigna fjöleignarhúsa,“ segir Gunnþór S. Jónsson, forstöðumaður þjónustusviðs Eignaumsjónar.
„Að rótgróið tryggingafélag eins og Sjóvá meti húsumsjónarþjónustu okkar með þessum hætti eru skýr skilaboð að okkar mati og ánægjuleg viðurkenning á gæðum þjónustunnar. Með þessu samkomulagi er Húsumsjón enn öflugri heildarlausn fyrir húsfélög, sem felur í sér aukið öryggi, einfaldara utanumhald og raunverulegan fjárhagslegan ávinning.“
Samkomulagið hefur þegar tekið gildi og geta áhugasamir fengið nánari upplýsingar með því að hafa samband við þjónustuver Eignaumsjónar í síma 585-4800, í tölvupósti á thjonusta@eignaumsjon.is, eða í netspjalli á eignaumsjon.is.
Um Eignaumsjón og Sjóvá
Eignaumsjón býr að 25 ára þekkingu og reynslu í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög atvinnuhúsnæðis og er umsvifamesta fyrirtæki landsins á þessu sviði. Áhersla er lögð á hlutlausa nálgun, öryggi, gæðamál og skýra verkferla til að gera rekstur fasteigna markvissari og ódýrari, auka upplýsingaflæði til eigenda og auðvelda störf stjórna.
Sjóvá hefur þjónustað einstaklinga og fyrirtæki á Íslandi í yfir 100 ár og er eitt stærsta tryggingafélag landsins. Félagið býður fjölbreyttar tryggingalausnir fyrir heimili, fyrirtæki og stofnanir og leggur ríka áherslu á góða þjónustu, öryggi og forvarnir. Sjóvá hefur mælst efst í Ánægjuvoginni níu ár í röð, sem endurspeglar sterka stöðu félagsins og mikið traust viðskiptavina.
May 26, 2026 | Fréttir
Gunnar Egill Sigurðsson hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri Eignaumsjónar. Hann hefur starfað á dagvörumarkaðnum síðustu 23 árin, síðast sem forstjóri Samkaupa. Hann kemur til starfa í júní þegar Daníel Árnason, sem gegnt hefur starfi framkvæmdastjóra Eignaumsjónar síðustu tvo áratugina, lætur af störfum en Daníel kemur áfram að starfsemi félagsins sem stjórnarmaður.
Eignaumsjón er leiðandi fyrirtæki á Íslandi í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög fasteigna og býr yfir víðtækri þekkingu og reynslu í rekstri fjöleignarhúsa eftir rúmlega aldarfjórðungs starfsemi.
„Við bjóðum Gunnar Egil velkominn til starfa og hlökkum til að vinna með honum að áframhaldandi uppbyggingu Eignaumsjónar,“ segir Guðjón Ármann Jónsson, stjórnarformaður Eignaumsjónar.
„Ég er spenntur að leiða Eignaumsjón áfram veginn,“ segir Gunnar Egill Sigurðsson, verðandi framkvæmdastjóri Eignaumsjónar. „Félagið er fjárhagslega sterkt, það býr yfir reynslumiklu starfsfólki og ég hlakka til að kynnast því öfluga fólki sem þar starfar. Innviðir eru sömuleiðis traustir og ég sé fjölmörg tækifæri fyrir félagið til að sækja fram.“
Um Eignaumsjón
Eignaumsjón býr að 25 ára þekkingu og reynslu í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög fasteigna og er umsvifamesta fyrirtæki landsins á þessu sviði. Áhersla er lögð á hlutlausa nálgun, öryggi, gæðamál og skýra verkferla til að gera rekstur fasteigna markvissari, öruggari og ódýrari, sem og að auka upplýsingaflæði til eigenda og auðvelda störf stjórna.
Mikill vöxtur hefur verið í starfsemi Eignaumsjónar undanfarin ár, fjárhagsleg staða félagsins er traust, samtímis því sem kröfur hafa aukist um nýjar útfærslur á þjónustu og nýsköpun með enn frekari tæknivæðingu og stafrænum lausnum. Starfsmenn eru 65 talsins og hefur félagið nú umsjón með daglegum rekstri ríflega 1.350 hús- og rekstrarfélaga með hátt í 32.000 íbúðum/eignarhlutum.
May 22, 2026 | Fréttir
Edda Björk Eggertsdóttir er nýlega komin til starfa sem sérfræðingur í fjármálateymi Eignaumsjónar.
Edda er með MS gráðu í verkefnastjórnun frá Háskóla Íslands og BS gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst.
Áður en Edda kom til starfa hjá Eignaumsjón vann hún sem fagstjóri fjármáladeildar Samgöngustofu og þar áður m.a. hjá Eimskip-Flytjanda. Þá á Edda að baki langan feril sem leikmaður og þjálfari í handbolta og fótbolta, m.a. hjá Knattspyrnudeild Ungmennafélags Selfoss (UMFS) og yngri flokkum ÍBV í handbolta.
Um Eignaumsjón
Eignaumsjón býr að 25 ára þekkingu og reynslu í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög atvinnuhúsnæðis og er umsvifamesta fyrirtæki landsins á þessu sviði. Áhersla er lögð á hlutlausa nálgun, öryggi, gæðamál og skýra verkferla til að gera rekstur fasteigna markvissari og ódýrari, auka upplýsingaflæði til eigenda og auðvelda störf stjórna.