• Facebook
  • Instagram
  • Húsbókin
  • Húsbókin
Eignaumsjon
  • Húsfélög
  • Atvinnuhúsnæði
  • Leigufélög
  • Húsumsjón
  • Hitavaktin
  • AÐGANGSSTÝRINGAR
  • Íbúðaumsjón
  • Rafbílahleðsla
  • Um okkur
    • Mannauður
    • Hafa samband
    • Húsbók Eignaumsjónar
    • Umboð fyrir Húsbókina
    • Umhverfisáherslur
    • Persónuvernd og skilmálar
    • Spurningar og svör
    • Fundarsalir til leigu
  • Fréttir
    • Greinar
    • Myndbönd
Select Page

Nútímaleg og vönduð fjölbýlishús í Gróttubyggð á Nesinu

Apr 30, 2025 | Fréttir

Gróttubyggð á Sertjarnarnesi er óðum að taka á sig mynd. Þar er búið að byggja tvö  fjölbýlishús og þrjú fjórbýlishús  við Bygggarða. Tölvumynd: ONNO ehf.

Eignaumsjón kom nýlega að stofnun fimm húsfélaga í fyrsta áfanga svokallaðrar Gróttubyggðar, sem verktakafyrirtækið Jáverk er langt komið með að reisa á gömlu iðnaðarsvæði vestarlega á Seltjarnarnesi.

Þessi fyrsti áfangi Gróttubyggðar samanstendur af tveimur 25 og 26 íbúða fjölbýlishúsum með bílakjöllurum; Bygggörðum 1-5 og Bygggörðum 27-31, ásamt þremur fjórbýlishúsum við Bygggarða 7, 9 og 25. Samtals eru íbúðirnar 63 í þessum fyrsta áfanga en gert er ráð fyrir að alls verði reistar um 170 íbúðaeiningar í Gróttubyggð og að þar muni búa um 500 manns þegar byggingarframkvæmdum lýkur.

Uppbyggingin hófst í lok árs 2022 og hefur mikið  verið lagt í hönnun, innivist, efnisval og frágang íbúða og umhverfis, að því er fram kemur á heimsíðu verkefnisins. Eru húsin sögð nútímaleg og vönduð og byggð samkvæmt kröfum Svansins, sem er hið opinbera umhverfismerki Norðurlandanna. Stefnt er að því að allar íbúðir fái Svansvottun við lok framkvæmda. Sjá nánar á www.grottubyggd.is.

Skemmtilegt verkefni

„Það var gaman að koma að þessu verkefni með Jáverki og öðrum eigendum í þessum fimm nýbyggingum við Bygggarða,“ segir Hallur Guðjónsson á sölu- og samskiptasviði Eignaumsjónar.

„Þar er ekki á herjum degi sem ný fjölbýlishús rísa á Nesinu en þarna opnaðist tækifæri fyrir fólk sem vill búa þar,“ segir Hallur og bætir við að auk þess að stofna félögin fimm, sjái Eignaumsjón um rekstur stærri húsfélaganna.

Fjármál og fundir

Húsfélagið í Bygggörðum 27-31, sem samanstendur af 26 eignarhlutum, tekur til starfa 1. maí  2025 og  húsfélagið í Bygggörðum 1-5, sem samanstendur af 25 eignarhlutum, tekur til starfa 1. júní 2025.  Bæði félögin eruí þjónustuleið Þ-2: fjármál og fundir.

 

 

0
0
0
1
0
1
0
0

Recent Posts

  • Eignaumsjón um allt land
  • Nútímaleg og vönduð fjölbýlishús í Gróttubyggð á Nesinu
  • Gleðilega páska!
  • Við hjálpum til við að útvega þrif og sótthreinsun á djúpgámum
  • Ráðgjöf og faglegt eftirlit með kerfum bygginga og orkunotkun
Eignaumsjón | Suðurlandsbraut 30 | Sími 585 4800