Fjarskiptafyrirtækin munu loka að fullu fyrir dreifingu á 2G og 3G farsímaþjónustu um áramótin. Því er ekki seinna vænna fyrir stjórnir húsfélaga og rekstrarfélaga í atvinnuhúsum þar sem neyðarsímar í lyftum styðjast enn við þessi símakerfi að huga að uppfærslu, til að tryggja að öryggisbúnaður í lyftum verði áfram í lagi.
Öll húsfélög þar sem lyfta eða lyftur eru til staðar eiga lögum samkvæmt að vera með þjónustusamning við viðurkenndan umsjónarmann um eftirlit, viðhald og viðgerðir á viðkomandi lyftu eða lyftum.
Lyftur verða að uppfylla kröfur um öryggi
Lokun 2G og 3G hefur áhrif á búnað sem ekki styður 4G og nýrri tækni. Þannig geta neyðarsímar, öryggishnappar, öryggiskerfi, mælar og fjarstýrð tæki sem notast við farsímakerfin hætt að virka ef þau styðja ekki við nýrri tækni. Einnig gildir þetta um eldri farsíma, spjaldtölvur og annan búnað sem aðeins styður 2G eða 3G.
Almennt má ætla að lokun 2G og 3G farsímakerfanna hafi fyrst og fremst áhrif á neyðarsíma í lyftum sem eru fimm ára eða eldri, en ef óvissa ríkir um stöðu þessara mála hvetjum við stjórn viðkomandi húsfélags til að hafa samband við sinn lyftuþjónustuaðila til að kanna stöðu þessara mála, hafi það ekki nú þegar verið gert.
Rétt er líka að árétta að rekstur á lyftum er leyfisskyldur og til að viðhalda slíku rekstrarleyfi þurfa lyftur að uppfylla öryggiskröfur Vinnueftirlits ríkisins.
Í takt við þróun farsímatækninnar
Fram hefur komið í fréttum að þessar breytingar séu eðlilegar og í takt við þróun farsímatækninnar. Þegar hefur verið slökkt á 2G og 3G fjarskiptasendum í Bandaríkjunum og í lok þessa árs stendur líka til að slökkva á öllum 2G og 2G sendum í öllum Evrópulöndum.
2G kerfið var fyrsta farsímakerfið sem tekið var í notkun á Íslandi. 3G kerfið var tekið í notkun hérlendis árið 2007, en síðan hefur 4G kerfið og síðar 5G kerfið leyst þau af hólmi.