„Þetta er sannarlega ánægjuleg viðurkenning fyrir okkur og staðfestir almennt mjög jákvætt viðhorf starfsfólksins til fyrirtækisins,“ segir Daníel Árnason, framkvæmdastjóri Eignaumsjónar, sem fjórða árið í röð er í hópi leiðandi íslenskra fyrirtækja sem uppfylla ströng skilyrði HR Monitor til að vera útnefnd Mannauðshugsandi fyrirtæki.
Til að vera útnefnt Mannauðshugsandi fyrirtæki hjá HR Monitor þurfa viðkomandi fyrirtæki að hafa keyrt mannauðsmælingar meðal allra starfsmanna í hverjum ársfjórðungi, eða frá fjórum til tólf sinnum á líðandi ári, og hafa upplýst starfsfólk reglulega um niðurstöður þessara mælinga og árangur fyrirtækisins.
Með þessu verklagi er sýnt í verki að mannauður skiptir fyrirtækið miklu máli og jafnframt öðlast stjórnendur innsýn í viðhorf starfsfólks til fyrirtækisins í heild og yfirsýn yfir árangur sinna sviða, deilda og vinnuteyma.
Hjálpar okkur að vera með puttann á púlsinum
„Við hjá Eignaumsjón höfum nýtt okkur reglulegar mannauðsmælingar HR Monitor frá ársbyrjun 2022. Þær virka vel sem loftvog á vinnustaðinn og eru gott verkfæri til að fá endurgjöf frá starfsfólkinu. Starfsánægja er mikil og starfsandinn er mjög jákvæður hjá okkur og þessar kannanirnar hjálpa okkur að vera með puttann á púlsinum, til að gera gott fyrirtæki betra,“ segir framkvæmdastjóri Eignaumsjónar.