Nýleg niðurstaða Úrskurðarnefndar í vátryggingarmálum undirstrikar mikilvægi þess að upplýsingar um stöðu húsfélaga við sölu eignar séu réttar, tæmandi og unnar af kostgæfni.

Þegar íbúð eða atvinnuhúsnæði í fjöleignarhúsi er sett á sölu skal lögum samkvæmt liggja fyrir yfirlýsing frá húsfélaginu, þar sem veittar eru fullnægjandi og tæmandi upplýsingar um yfirstandandi eða fyrirhugaðar framkvæmdir, viðgerðir eða endurbætur sem samþykktar hafa verið. Þar á einnig að koma fram fjárhagsstaða húsfélagsins og fjárhagsstaða einstakra eignarhluta gagnvart húsfélaginu.

Ábyrgð fylgir útgáfu húsfélagsyfirlýsinga

Yfirlýsing húsfélags kann að virðast einfalt skjal en nýlegur úrskurður sýnir að upplýsingar sem þar koma fram hafa verulega þýðingu fyrir kaupanda og að ábyrgð fylgir því að þeirra sé aflað og að þær séu réttar.

Í úrskurði sínum komst úrskurðarnefndin að þeirri niðurstöðu að fasteignasali hefði ekki uppfyllt skyldu sína um upplýsingaöflun, um yfirstandandi eða fyrirhugaðar framkvæmdir, í tengslum við sölu íbúðar í umræddu fjöleignarhúsi. Húsfélagsyfirlýsing, sem lögð var fram við söluna, var einungis undirrituð af seljanda og taldi nefndin að hún uppfyllti ekki þær kröfur sem lög gera til slíkra yfirlýsinga.

Niðurstaða úrskurðarnefndarinnar var sú að fasteignasalinn hefði af gáleysi veitt rangar eða ófullnægjandi upplýsingar í bæði söluyfirliti og húsfélagsyfirlýsingu og bæri ábyrgð á því gagnvart kaupanda. Eigandinn ætti því rétt á bótum úr starfsábyrgðartryggingu fasteignasalans.

Húsfélagsyfirlýsing er ekki formsatriði

Þessi úrskurður er áminning um að húsfélagsyfirlýsing er ekki bara formsatriði. Hún er mikilvægur hluti þeirra upplýsinga sem kaupandi byggir ákvörðun sína á. Í þessu tiltekna máli lá meðal annars fyrir að framkvæmdir hefðu átt sér stað á eigninni eftir að söluyfirlit var gert. Úrskurðarnefndin taldi að fasteignasalanum hefði borið að uppfæra söluyfirlitið. Jafnframt var talið að húsfélagsyfirlýsingin hefði ekki uppfyllt þær kröfur sem gerðar eru til hennar.

Þetta undirstrikar mikilvægi þess að upplýsingar séu ekki aðeins settar á blað heldur að þeirra sé aflað með markvissum hætti, þær sannreyndar og gengið úr skugga um að þær gefi sem réttasta mynd af stöðu húsfélagsins.

Vönduð húsfélagsyfirlýsing krefst vinnu

Hjá Eignaumsjón lítum við á gerð húsfélagsyfirlýsinga sem ábyrgðarverkefni. Til þess að hægt sé að gefa út trausta yfirlýsingu þarf meðal annars að afla upplýsinga úr gögnum húsfélagsins, skoða stöðu framkvæmda og samþykktra verkefna, fara yfir fjárhagslega stöðu og tryggja að upplýsingarnar sem fram koma séu eins réttar og kostur er þegar yfirlýsingin er gefin út.

Þetta er því ekki einfalt afgreiðsluverkefni þar sem nægir að fylla út eyðublað. Vanda þarf til verka og gæta þess að upplýsingarnar sem veittar eru séu traustar og gagnlegar fyrir þá sem þurfa að reiða sig á þær. Það er einmitt sú vinna sem liggur að baki þjónustu Eignaumsjónar þegar húsfélagsyfirlýsingar eru unnar og afgreiddar.

Réttar upplýsingar skipta máli

Niðurstaða Úrskurðarnefndar í vátryggingarmálum í umræddu máli sýnir að útgáfa yfirlýsinga húsfélaga er ekki bara spurning um góða þjónustu heldur snýst hún einnig um ábyrgð og mögulega fjárhagslega hagsmuni.

Fyrir húsfélagið og eigendur þess er mikilvægt að vandað sé til verka þegar slíkar upplýsingar eru veittar og fyrir kaupanda geta þessar upplýsingar haft áhrif á ákvörðun um kaup, kaupverð og fjárhagslegar skuldbindingar sem fylgja eigninni.

Sjá hér úrskurð Úrskurðarnefndar í vátryggingarmálum – mál nr. 152/2026 og frétt DV um úrskurðinn.