Hjá Eignaumsjón er mikið er lagt upp úr réttri boðun aðalfunda til að tryggja að fundir húsféalga verði löglegir, en boða skal til aðalfunda með sannanlegum hætti með minnst átta og mest 20 daga fyrirvarai. Fyrstu aðalfundirnir hefjast 12. janúar nk. en alls verða ríflega 1.200  aðalfundir húsfélaga og rekstrarfélaga á dagskrá fram til maíloka 2026.

Að öllu jöfnu verða aðalfundirnir haldnir frá mánudegi til fimmtudags og á laugardögum í fundarsölum Eignaumsjónar á Suðurlandsbraut 30 í Reykjavík og Bæjarhrauni 6 í Hafnarfirði, en einnig í sameignum húsfélaga og fundarsölum í þeirra nærumhverfi, s.s. í skólum, safnaðarheimilum og hjá íþróttafélögum.

Rafræn boðun funda í Húsbókinni er öruggust

Öruggasta og skilvirkasta boðunarleið aðalfundar er með tölvupósti til eiganda sem skráður er í Húsbókina á heimasíðunni okkar. Við hvetjum því alla eigendur, sem hafa ekki virkjað Húsbókina til að gera það strax. Það er ekki flókið. Viðkomandi skráir sig inn í fyrsta sinn með því að smella á Húsbókarhnappinn efst til hægri á www.eignaumsjon.is, auðkennir sig með rafrænum skilríkjum og skráir inn netfang. Nánari upplýsingar um Húsbókina, innskráningu og notendastillingar er að finna hér.

Aðalfundarboð eru send í bréfapósti á eigendur sem eru með lögheimili utan viðkomandi fasteignar og jafnframt sjá stjórnir um að hengja aðalfundarboð upp í sameign. Það má ekki gleymast – þá telst fundurinn ekki löglega boðaður.

Aðalfundargögn aðgengileg í Húsbókinni

Tímanlega fyrir aðalfund geta íbúðareigendur nálgast aðalfundargögnin í Húsbókinni. Þar verður líka hægt að skoða ársreikning viðkomandi hús- eða rekstrarfélags, kostnaðar- og húsgjaldaáætlun fyrir árið 2026, aðalfundarboðið og önnur gögn sem leggja á fyrir aðalfund. Í Húsbókinni er einnig hægt að skoða húsgjaldaseðla, fundargerðir og fleiri upplýsingar sem tengjast rekstri viðkomandi húsfélags og kynna sér  vildarkjör og afslætti, sem bjóðast öllum viðskiptavinum Eignaumsjónar.

Að lokum skal áréttað að fundargögn eru ekki lengur prentuð út fyrir aðalfundi sem eru haldnir í fundarsölum Eignaumsjónar, heldur varpað upp á skjá, en það er liður í viðleitni Eignaumsjónar að sýna samfélagslega ábyrgð með því að draga úr pappírsnotkun.